Fara í efni

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 46

Málsnúmer 2604006F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Skagafjarðar - 49. fundur - 19.05.2026

Fundargerð 46. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar frá 7. maí 2026 var lögð fram til afgreiðslu á 49. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Einar E. Einarsson forseti kynnti fundargerð. Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir og Hrefna Jóhannesdóttir kvöddu sér hljóðs.
  • Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 46 Starfsmaður nefndarinnar fer yfir þau mál sem eru á döfinni frá síðasta fundi.

    Skýrslan er flutt munnlega og til kynningar.

    Á síðasta fundi var samþykkt að taka fyrir erindi vegna listamanns Skagafjarðar ásamt ramma að menningarvitund. Ekki tókst að ljúka þeirri vinnu og þeim erindum því frestað til næsta fundar.

    Nefndin þakkar fyrir yfirferðina.
    Bókun fundar Afgreiðsla 46. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum.

    Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir óskar bókað:
    "Fulltrúar VG og óháðra vekja athygli á því að þessi tillaga um tilnefningu listamanns Skagafjarðar var sett fram af nefndarmanni okkar fyrir um ári síðan, en hefur allan þennan tíma ekki hlotið afgreiðslu og er afgreiðslu málsins ennþá frestað. Þetta getur ekki talist eðlileg stjórnsýsla. Það hlýtur því að vera þörf á skýrari verkferlum og betra utanumhaldi innan stjórnsýslunnar svo tryggt sé að bókaðar afgreiðslur nefnda falli ekki niður eða dragist óeðlilega á langinn án eftirfylgni eins og raunin er hér. Gerum betur takk."
  • Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 46 Tekin fyrir styrkbeiðni frá stjórn Byggjum upp Hofsós og nágrennis, dagsett 17.04.2026 vegna bæjarhátíðarinnar Hofsós heim sem haldin verður 18. - 21. júní 2026.

    Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd þakkar erindið og samþykkir samhljóða að styrkja hátíðina um 450.000 kr.
    Bókun fundar Afgreiðsla 46. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum.
  • Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 46 Framlagt erindi dagsett 9. apríl 2026, frá Ágústi Brynjarssyni þar sem óskað er eftir styrk til að halda tónlistardag fyrir samfélagið sem felur í sér skólaheimsóknir, tónlistarstundir og kvöldtónleika með hljómsveit. Markmiðið með verkefninu er að færa lifandi íslenska tónlist til fólks um allt land.

    Nefndin þakkar fyrir erindið og samþykkir samhljóða að styrkja tónlistardag með Ágústi um 150.000 kr. og felur starfsmönnum að skipuleggja daginn með Ágústi með það að markmiði að sem flestir í sveitarfélaginu njóti góðs af.
    Bókun fundar Afgreiðsla 46. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum.
  • Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 46 Framlögð styrkbeiðni Leikhópsins Lottu dagsett 20.04.2026, þar sem óskað er eftir styrk að upphæð kr. 90.400 vegna leiksýningar leikhópsins á Sauðárkróki í sumar.

    Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd þakkar fyrir erindið en telur sér ekki fært að verða við styrkbeiðninni.
    Bókun fundar Afgreiðsla 46. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum.
  • Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 46 Tekið fyrir erindi frá Helga Grím Hermannssyni og Helga Sæmundi Guðmundssyni dagsett 15.04.2026 þar sem óskað er eftir styrk vegna tónlistahátíðarinnar Sveitavegir á Hofsósi.

    Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd fagnar framtakinu og samþykkir samhljóða að styrkja hátíðina um 150.000 kr.

    Jafnframt vill nefndin nota tækifærið til að minna á uppbyggingasjóð SSNV fyrir verkefni sem þessi og hvetur fólk til að sækja þar um. Næsti umsóknarfrestur sjóðsins verður 16. september til 21. október 2026.
    Bókun fundar Afgreiðsla 46. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum.
  • Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 46 Lagt fram til kynningar yfirlit um gestafjölda bókasafnsins frá febrúar til apríl 2026.

    Nefndin þakkar fyrir yfirlitið og fagnar því hve laugardagsopnunin er vel sótt.
    Bókun fundar Afgreiðsla 46. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum.
  • Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 46 Lagt fram erindi frá Markaðsstofu Norðurlands dags. 28. apríl 2026, þar sem óskað er eftir uppfærðum lista yfir forgangsverkefni frá sveitarfélögum á Norðurlandi.

    Skagafjörður auglýsti eftir tillögum að verkefnum fyrir sveitarfélagið 4. maí og er gefinn frestur til 29. júní til að skila þeim inn.
    Bókun fundar Afgreiðsla 46. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum.
  • Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 46 Lagt fram til kynningar minnisblað frá Hafnasambandi Íslands dagsett 9. apríl 2026 er varðar virðisaukaskattskyldu skemmtiferðaskipa. Bókun fundar Afgreiðsla 46. fundar atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum.