Fara í efni

Félagsmála- og tómstundanefnd

44. fundur 07. maí 2026 kl. 14:00 - 15:47 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Sigurður Bjarni Rafnsson formaður
  • Sandra Björk Jónsdóttir varaform.
  • Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir aðalm.
  • Jóhanna Ey Harðardóttir áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Bryndís Lilja Hallsdóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Þorvaldur Gröndal frístundastjóri
  • Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir leiðtogi fatlaðs fólks og eldra fólks
Fundargerð ritaði: Bryndís Lilja Hallsdóttir sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Dagskrá

1.Sumarafleysingar 2026

Málsnúmer 2604034Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað frá leiðtoga fatlaðs fólks og eldra fólks um stöðu sumarafleysinga í málaflokki 01 og 02. Staða ráðninga er frekar slæm sjöunda árið í röð og má segja að þessi vandi sé orðin viðvarandi.

Á starfsstöðvum í Skagafirði vantar enn um 10 - 12 stöðugildi. Á starfsstöðum í Húnaþingi vestra og Húnabyggð er staðan nokkuð góð. Um lögbundna þjónustu er að ræða og alvarlegt að ekki hafi tekist að fá fólk til starfa. Í minnisblaðinu koma fram ýmsar leiðir sem búið er að reyna til að leysa mönnunarvanda en hafa ekki skilað tilætluðum árangri.

Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir samhljóða að skerða heimaþjónustu og dagdvöl aldraðra eins og þörf er á í sumar ef ekki tekst að manna sumarafleysingar. Skoða verður hvort þurfi að loka dagdvöl tímabundið í sumar. Nefndin lýsir yfir áhyggjum sínum af viðvarandi mönnunarvanda og vekur athygli á því að félagsþjónustan sinnir lögbundnu hlutverki í þjónustu við fatlað fólk og eldra fólk.

Nefndin felur starfsmönnum nefndarinnar að vinna áfram með minnisblað leiðtoga og skoða hvort og þá hvaða leiðir eru færar til að búa til hvata til framtíðar fyrir starfsmenn í samráði við mannauðsstjóra og nefndina.

Einnig lagt fram minnisblað frá leiðtoga frístunda- og íþróttamála um stöðu sumarafleysinga í málaflokki 06. Ágætlega hefur gengið að ráða inn í sumarafleysingar og miðað við stöðuna á ráðningum núna er ekki útlit fyrir að skerða þurfi áður samþykkta opnunartíma íþróttamannavirkja.

Félagsmála- og tómstundanefnd vísar málinu samhljóða til sveitarstjórnar.

2.Opnunartími sundlaugarinnar í Varmahlíð sumar 2026

Málsnúmer 2605015Vakta málsnúmer

Félagsmála- og tómstundanefnd leggur til að mönnun verði aukin í sundlauginni í Varmahlíð sumarið 2026, þannig að opið verði frá 7:00-21:00 á virkum dögum.

Opnunartími sundlauga er að jafnaði ákveðinn við gerð fjárhagsáætlunar ár hvert. Á 39. fundi félagsmála- og tómstundanefndar, þann 27. október síðastliðinn, var bókað að opnunartími væri ekki meitlaður í stein og mætti endurskoða þegar lægi fyrir hver eftirspurn og staða á mönnun væri.

Leiðtogi frístunda- og íþróttamála fór yfir stöðuna með nefndinni. Útlit er fyrir að það takist að manna áður samþykktan opnunartíma. Lenging á opnunartíma þýðir að 1,4 stöðugildi þarf til viðbótar við núverandi fjárhagsáætlun. Miðað við stöðuna á sumarafleysingum í öðrum málaflokkum verður að setja fyrirvara á að starfsfólk fáist til að sinna viðbótarvöktum sem verða til við lengingu opnunartíma.

Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir samhljóða að lengja opnunartíma í sundlauginni í Varmahlíð ef næst að manna 1,4 stöðugildi með fyrirvara um fjármögnun í viðauka. Vísað til byggðarráðs.

Jafnframt samþykkir nefndin samhljóða að fela starfsmönnum nefndarinnar að endurskoða opnunartíma í sundlaugum Skagafjarðar. Starfsmönnum er falið að skila minnisblaði með kostnaði og tillögu að breyttum opnunartíma og leggja fyrir á næsta fundi nefndarinnar.

3.Innleiðing á Memaxi - samskipta og skipulagslausn í Velferðarþjónustu

Málsnúmer 2603179Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað leiðtoga fatlaðs fólks og eldra fólks um innleiðingu Memaxi í þjónustu Skammtímavalar árið 2026 og mögulega innleiðingu á fleiri starfsstöðvar í þjónustu við fatlað fólk á Nl. vestra árið 2027. Um er að ræða leiðandi samskipta- og skipulagslausn í velferðarþjónustu sem tengir saman fagfólk, notendur þjónustu og aðstandendur, heldur utan um einstaklingsmiðaðar áætlanir notenda sem þurfa aðstoð í daglegu lífi og er notað í íbúðakjörnum, hæfingarstöðvum, heimahjúkrun og stuðnings- og stoðþjónustu víðs vegar um landið.

4.Fundargerðir fagráðs - málefni fatlaðs fólks

Málsnúmer 2601063Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar tvær fundargerðir frá fundi nr. 46 frá 16. mars og fundi nr. 47 frá 27. apríl 2026.

5.Barnavernarþjónusta Mið - Norðurlands fundargerðir faghóps

Málsnúmer 2301093Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar tvær fundargerðir frá fundi nr. 67 frá 15. desember 2025 og fundi nr. 68 frá 4. maí 2026.

Fundi slitið - kl. 15:47.