Innleiðing á Memaxi - samskipta og skipulagslausn í Velferðarþjónustu
Málsnúmer 2603179
Vakta málsnúmerFélagsmála- og tómstundanefnd - 44. fundur - 07.05.2026
Lagt fram minnisblað leiðtoga fatlaðs fólks og eldra fólks um innleiðingu Memaxi í þjónustu Skammtímavalar árið 2026 og mögulega innleiðingu á fleiri starfsstöðvar í þjónustu við fatlað fólk á Nl. vestra árið 2027. Um er að ræða leiðandi samskipta- og skipulagslausn í velferðarþjónustu sem tengir saman fagfólk, notendur þjónustu og aðstandendur, heldur utan um einstaklingsmiðaðar áætlanir notenda sem þurfa aðstoð í daglegu lífi og er notað í íbúðakjörnum, hæfingarstöðvum, heimahjúkrun og stuðnings- og stoðþjónustu víðs vegar um landið.