Fara í efni

Sumarafleysingar 2026

Málsnúmer 2604034

Vakta málsnúmer

Félagsmála- og tómstundanefnd - 44. fundur - 07.05.2026

Lagt fram minnisblað frá leiðtoga fatlaðs fólks og eldra fólks um stöðu sumarafleysinga í málaflokki 01 og 02. Staða ráðninga er frekar slæm sjöunda árið í röð og má segja að þessi vandi sé orðin viðvarandi.

Á starfsstöðvum í Skagafirði vantar enn um 10 - 12 stöðugildi. Á starfsstöðum í Húnaþingi vestra og Húnabyggð er staðan nokkuð góð. Um lögbundna þjónustu er að ræða og alvarlegt að ekki hafi tekist að fá fólk til starfa. Í minnisblaðinu koma fram ýmsar leiðir sem búið er að reyna til að leysa mönnunarvanda en hafa ekki skilað tilætluðum árangri.

Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir samhljóða að skerða heimaþjónustu og dagdvöl aldraðra eins og þörf er á í sumar ef ekki tekst að manna sumarafleysingar. Skoða verður hvort þurfi að loka dagdvöl tímabundið í sumar. Nefndin lýsir yfir áhyggjum sínum af viðvarandi mönnunarvanda og vekur athygli á því að félagsþjónustan sinnir lögbundnu hlutverki í þjónustu við fatlað fólk og eldra fólk.

Nefndin felur starfsmönnum nefndarinnar að vinna áfram með minnisblað leiðtoga og skoða hvort og þá hvaða leiðir eru færar til að búa til hvata til framtíðar fyrir starfsmenn í samráði við mannauðsstjóra og nefndina.

Einnig lagt fram minnisblað frá leiðtoga frístunda- og íþróttamála um stöðu sumarafleysinga í málaflokki 06. Ágætlega hefur gengið að ráða inn í sumarafleysingar og miðað við stöðuna á ráðningum núna er ekki útlit fyrir að skerða þurfi áður samþykkta opnunartíma íþróttamannavirkja.

Félagsmála- og tómstundanefnd vísar málinu samhljóða til sveitarstjórnar.