Landbúnaðar- og innviðanefnd
Dagskrá
1.Umhverfisdagar Skagafjarðar 2026
Málsnúmer 2604155Vakta málsnúmer
2.Forgangsröðun endurnýjunar gatna
Málsnúmer 2603014Vakta málsnúmer
Sviðstjóri Veitu- og framkvæmdasviðs lagði fram uppfærða forgangsröðun að endurnýjun gatna á Sauðárkróki. Í endurnýjun felst heildarendurnýjun götu ásamt gangstéttum og öllum lögnum. Gert er ráð fyrir að lágmarki einni götu á ári.
Forgangur, m.v. stöðu 2026
Víðigrund
2026
Grundarstígur
2027
Smáragrund
2028
Hólavegur að Öldustíg 2029
Hólavegur frá Öldustíg að Ránarstíg 2030
Freyjugata að Freyjugötu 11 2030
Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir áætlunina samhljóða og felur sviðsstjóra að vinna hana áfram með tilliti til fjárhagsáætlunar.

3.Refa- og minkaveiði 2026
Málsnúmer 2603223Vakta málsnúmer
Á fundi Landbúnaðar- og innviðanefndar 19. mars sl. var samþykkt áætlun fyrir refa- og minkaveiði ársins 2026, ásamt uppfærðri gjaldskrá vegna veiðanna. Þar sem ekki er búið að ganga frá ráðningu fulltrúa í starf umhverfis- og landbúnaðarfulltrúa samþykkir Landbúnaðar- og innviðanefnd samhljóða að í ár verði fallið frá árlegum fundi með veiðimönnum en þeim í þess stað sendar rafrænt upplýsingar um áætlað veiðimagn á hvern ráðinn veiðimann ásamt gjaldskrá og upplýsingum um heildarveiði síðasta árs.
4.Aðalfundur Heiðadeildar Veiðif. Blöndu og Svartár
Málsnúmer 2604146Vakta málsnúmer
Aðalfundur Heiðadeildar Veiðif. Blöndu og Svartár fer fram í kvöld 30. apríl.
Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða að fulltrúar sveitarfélagsins á aðalfundi 2026 séu:
Sviðstjóri veitu- og framkvæmdasviðs Hjörvar Halldórsson, Aron Pétursson, Þórunn Eyjólfsdóttir og Gunnar Valgarðsson.

5.Uppfærsla gjaldskrár fráveitu og tæmingu rotþróa 2026
Málsnúmer 2604158Vakta málsnúmer
Forstöðumaður framkvæmda Sigurður Arnar Friðriksson lagði fram niðurstöðu úr sameiginlegu útboði með Húnavatnssýslunum um losun rotþróa á svæðinu og lagði fram uppfærða gjaldskrá vegna losunar. Tekið hefur verið lægsta tilboði frá Verkvali ehf.
Landbúnaðar- og innviðanefnd fagnar niðurstöðu útboðsins sem leiðir til lækkunar gjalda til eigenda fyrir losun á rotþróm sem fram fer á þriggja ára fresti á hverju svæði, en Skagafirði er skipt í þrjú losunarsvæði.
Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir gjaldskrána samhljóða og verður hún birt á heimasíðu sveitarfélagsins.

6.Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2026
Málsnúmer 2601012Vakta málsnúmer
Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2026 lagðar fram til kynningar
7.Fjallskilamál - ný reglugerð um flutning yfir varnarlínur
Málsnúmer 2604072Vakta málsnúmer
Fjallskilamál - ný reglugerð um flutning yfir varnarlínur lögð fram til kynningar.
Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða að reglugerðin verði send fjallskilastjórum og formanni félags sauðfjárbænda til kynningar.
Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða að reglugerðin verði send fjallskilastjórum og formanni félags sauðfjárbænda til kynningar.
Fundi slitið - kl. 09:35.
Allur almennur garðaúrgangur s.s jarðvegur, gras/hey og smærri greinar eiga að fara í jarðvegstippinn rétt sunnan við leikskólann Ársali, austan við veginn Borgargerði á Sauðárkróki, móttökustöðina í Varmahlíð eða jarðvegstipp sunnan við Hofsós.
Stærri greinar, tré og steypuafgangar, hellur, flísar o.þ.h fer upp í gryfjur við Gránumóa ofan Sauðárkróks.
Sameinumst öll í átakinu, lögum til og höldum Skagafirði snyrtilegum.
Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða að einstaklingar geti losað sig við úrgang gjaldfrjálst á móttökustöðvum sveitarfélagsins meðan á átakinu stendur.
Sérstaklega skorar nefndin á fyrirtæki og stofnanir að snyrta sitt nærumhverfi.