Fara í efni

Refa- og minkaveiði 2026

Málsnúmer 2603223

Vakta málsnúmer

Landbúnaðar- og innviðanefnd - 46. fundur - 30.04.2026

Á fundi Landbúnaðar- og innviðanefndar 19. mars sl. var samþykkt áætlun fyrir refa- og minkaveiði ársins 2026, ásamt uppfærðri gjaldskrá vegna veiðanna. Þar sem ekki er búið að ganga frá ráðningu fulltrúa í starf umhverfis- og landbúnaðarfulltrúa samþykkir Landbúnaðar- og innviðanefnd samhljóða að í ár verði fallið frá árlegum fundi með veiðimönnum en þeim í þess stað sendar rafrænt upplýsingar um áætlað veiðimagn á hvern ráðinn veiðimann ásamt gjaldskrá og upplýsingum um heildarveiði síðasta árs.