Fara í efni

Landbúnaðar- og innviðanefnd

56. fundur 18. nóvember 2026 kl. 09:00 - 10:20 að Borgarteigi 15, Sauðárkróki
Nefndarmenn
  • Guðlaugur Skúlason formaður
  • Elínborg Erla Ásgeirsdóttir varaform.
  • Atli Már Traustason aðalm.
  • Högni Elfar Gylfason áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Sveinn Þ. Finster Úlfarsson umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi
  • Hjörvar Halldórsson sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs
  • Sigurður Arnar Friðriksson forstöðumaður framkvæmda
Fundargerð ritaði: Sigurður Arnar Friðriksson forstöðumaður framkvæmda
Dagskrá

1.Styrkir til fjallskilanefnda - tillaga

Málsnúmer 2610286Vakta málsnúmer

Farið yfir umsóknir fjallskiladeilda um fjárframlög vegna viðhalds og framkvæmda fyrir árið 2027.
Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða eftirfarandi úthlutun til fjallskiladeilda:

Austur-Fljót: 500.000 kr.
Vestur-Fljót og Hrolleifsdalur: 390.000 kr.
Hofsós og Unadalur: 200.000 kr.
Deildardalur: 550.000 kr.
Hóla- og Viðvíkurhreppur: 900.000 kr.
Hegranes: 840.000 kr.
Skarðshreppur: 1.100.000 kr.
Sauðárkrókur: 350.000 kr.
Staðarhreppur: 700.000 kr.
Úthluti Seyluhrepps: 250.000 kr.
Skefilsstaðahreppur: 1.700.000 kr.
Framhluti Skagafjarðar: 400.000 kr.
Hofsafrétt: 480.000 kr.
Upprekstrarfélag Akrahrepps: 850.000 kr.

Samtals nemur úthlutunin 9.210.000 kr.

2.Fundaskipulag Landbúnaðar- og innviðanefndar 2027

Málsnúmer 2611135Vakta málsnúmer

Fundað verði á tveggja vikna fresti á miðvikudögum kl. 09:00. Ef miðvikudagur stendur uppá frídag er leitast við að flytja fund fram um einn dag.

Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir tillöguna samhljóða.

3.Aðgerðir í aðgerðaráætlun vatnaáætlunar 2028-2033

Málsnúmer 2611033Vakta málsnúmer

Landbúnaðar- og innviðanefnd óskar eftir að umfang, kostnaður og ábyrgð vegna aðgerðanna verði skýrð áður en afstaða er tekin til tímarammans. Nefndin leggur áherslu á að áhrif efnistöku í Djúpadalsá verði metin og að kannað verði hvaðan fosfat berst í innri hluta fjarðarins.

Nefndin felur sviðstjóra Veitu- og framkvæmdasviðs að svara erindinu.

4.Refa- og minkaveiði 2026

Málsnúmer 2603223Vakta málsnúmer

Tölfræðigögn vegna refa- og minkaveiða síðustu ára yfirfarin.

Sveinn Þ. Finster Úlfarsson umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi sat fundinn undir þessum lið.

5.Hafnasambandsþing 2026

Málsnúmer 2601195Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar og umræðu.

6.Tilboð í eftirlit með lokuðum urðunarstöðum

Málsnúmer 2608236Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar og umræðu.

7.Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2026

Málsnúmer 2601012Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar og umræðu.

8.Fundargerðir Norðurár bs. 2026

Fundi slitið - kl. 10:20.