Lagt fram erindi frá stjórn Norðurár bs., dags. 24. ágúst 2026, þar sem óskað er eftir afstöðu sveitarfélaganna Skagafjarðar, Húnabyggðar og Skagastrandar til tilboðs ReSource um eftirlit með lokuðum urðunarstöðum á Skarðsmóum, í Draugagili og á Neðri-Harrastöðum.
Í erindinu kemur fram að aðalfundur Norðurár bs. hafi í mars 2026 beint því til stjórnar að kanna hagkvæmni þess að semja við ReSource um eftirlit með lokuðum urðunarstöðum fyrir hönd sveitarfélaganna. Fyrir liggur tilboð frá ReSource og er jafnframt óskað eftir afstöðu sveitarfélaganna til þess hvort Norðurá bs. geti verið samningsaðili fyrir þeirra hönd og annist síðan endurheimtu kostnaðar samkvæmt sundurliðun tilboðsins.
Byggðarráð tekur jákvætt í framlagt tilboð og samþykkir samhljóða að Norðurá bs. verði samningsaðili um eftirlit með lokuðum urðunarstöðum fyrir hönd aðildarsveitarfélaganna, enda verði kostnaði skipt samkvæmt fyrirliggjandi sundurliðun. Byggðarráð felur sveitarstjóra að koma afstöðu sveitarfélagsins á framfæri við stjórn Norðurár bs.