Fara í efni

Forgangsröðun endurnýjunar gatna og hitaveituframkvæmda

Málsnúmer 2603014

Vakta málsnúmer

Landbúnaðar- og innviðanefnd - 43. fundur - 05.03.2026

Sviðstjóri veitu- og framkvæmdasviðs fór yfir fyrirliggjandi framkvæmda- og fjárfestingaáætlun fyrir gatnaframkvæmdir og Skagafjarðarveitur fram til ársins 2030.
Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða að sviðstjóri vinni áfram að áætluninni og leggi fyrir nefndina.

Landbúnaðar- og innviðanefnd - 46. fundur - 30.04.2026

Sviðstjóri Veitu- og framkvæmdasviðs lagði fram uppfærða forgangsröðun að endurnýjun gatna á Sauðárkróki. Í endurnýjun felst heildarendurnýjun götu ásamt gangstéttum og öllum lögnum. Gert er ráð fyrir að lágmarki einni götu á ári.
Forgangur, m.v. stöðu 2026

Víðigrund
2026
Grundarstígur
2027
Smáragrund
2028
Hólavegur að Öldustíg 2029
Hólavegur frá Öldustíg að Ránarstíg 2030
Freyjugata að Freyjugötu 11 2030
Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir áætlunina samhljóða og felur sviðsstjóra að vinna hana áfram með tilliti til fjárhagsáætlunar.