Forstöðumaður framkvæmda Sigurður Arnar Friðriksson lagði fram niðurstöðu úr sameiginlegu útboði með Húnavatnssýslunum um losun rotþróa á svæðinu og lagði fram uppfærða gjaldskrá vegna losunar. Tekið hefur verið lægsta tilboði frá Verkvali ehf.
Landbúnaðar- og innviðanefnd fagnar niðurstöðu útboðsins sem leiðir til lækkunar gjalda til eigenda fyrir losun á rotþróm sem fram fer á þriggja ára fresti á hverju svæði, en Skagafirði er skipt í þrjú losunarsvæði.
Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir gjaldskrána samhljóða og verður hún birt á heimasíðu sveitarfélagsins.