Fara í efni

Byggðarráð Skagafjarðar - 192

Málsnúmer 2604025F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Skagafjarðar - 49. fundur - 19.05.2026

Fundargerð 192. fundar byggðarráðs frá 29. apríl 2026 var lögð fram til afgreiðslu á 49. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Einar E. Einarsson forseti kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 192 Fært í trúnaðarbók. Bókun fundar Afgreiðsla 192. fundar byggðarráðs var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 192 Einar E. Einarsson vék af fundinum við afgreiðslu þessa máls.

    Á fundinum var lagt fram bréf dagsett 20. apríl 2026, frá sóknarnefnd Glaumbæjarkirkju. Í bréfinu fer sóknarnefnd þess á leit við byggðarráð að sveitarfélagið malbiki bílaplan Glaumbæjarkirkju sem gjöf í tilefni 100 ára afmælis kirkjunnar.

    Byggðarráð óskar Glaumbæjarkirkju innilega til hamingju með 100 ára afmælið og samþykkir samhljóða að styðja sóknarnefndina um 1,5 m.kr. til framkvæmdarinnar. Styrkurinn greiðist út af lið 21890.
    Bókun fundar Einar E. Einarsson vék af fundi við afgreiðslu þessa máls.

    Afgreiðsla 192. fundar byggðarráðs var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með átta atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 192 Mál áður á dagskrá 191. fundi byggðarráðs þann 22. apríl sl. Áður hafði byggðarráð og sveitarstjórn staðfest viljayfirlýsingu um samstarf um uppbyggingu leigumarkaðar í Skagafirði. Stjórn Bríetar hefur lagt til smávægilegar breytingar á orðalagi viljayfirlýsingarinnar sem lagðar voru fyrir byggðarráð.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða tillögu með áorðnum breytingum.
    Bókun fundar Afgreiðsla 192. fundar byggðarráðs var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 192 Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 595. mál - Loftslagslög.

    Frestur til að senda inn umsögn er til og með 8. maí nk.

    Byggðarráð tekur undir mikilvægi þess að styrkja ramma loftslagsmála og fagnar því að sett sé fram heildstæð endurskoðun laga um loftslagsmál með aukinni áherslu á markmiðasetningu, eftirfylgni og aðlögun að loftslagsbreytingum. Frumvarpið endurspeglar alþjóðlegar skuldbindingar Íslands og mikilvægi réttlátra umskipta. Byggðarráð telur þó að skoða þurfi frekar nokkur atriði áður en frumvarpið verður að lögum. Þar ber fyrst að nefna að í frumvarpinu eru gerðar ítarlegri og umfangsmeiri kröfur til sveitarfélaga um gerð loftslagsstefnu, losunarbókhald, árlegt mat á framgangi og gerð áhættumats og aðlögunaraðgerða. Byggðarráð telur ljóst að þetta feli í sér verulegan aukinn umsýslukostnað, sérstaklega fyrir lítil og meðalstór sveitarfélög með litla yfirbyggingu þar sem augljóst er að svo ríkar kröfur til stefnumótunar og greiningar skapi aukið vinnuálag í stjórnsýslu sveitarfélagsins sem eingöngu verði mætt með auknum stöðugildafjölda eða aðkeyptri ráðgjöf. Byggðarráð leggur ríka áherslu á að slík lögbundin verkefni verði fjármögnuð með skýrum hætti af hálfu ríkisins, í samræmi við meginreglur sveitarstjórnarréttar.

    Vert er að benda á að frumvarpið leggur ríka áherslu á losun og kolefnisbindingu vegna landnotkunar. Mikilvægt er að skýrt verði í lögum eða reglugerð hver beri ábyrgð á aðgerðum tengdum landnotkun og að tryggt verði að slíkar aðgerðir séu fjármagnaðar af ríkinu, einkum þegar þær byggjast á almennum loftslagsmarkmiðum en ekki ákvörðunum sveitarfélaga sjálfra. Skagafjörður er landmikið sveitarfélag með mikla landbúnaðarstarfsemi og raunverulegt framlag til kolefnisbindingar. Í frumvarpinu er mikilvægi landnotkunar og skógræktar við kolefnisbindingu viðurkennt en ekki skilgreint nægilega vel hver ber ábyrgð, hvort það falli á sveitarfélagið, landeiganda eða ríkið. Slík óljós skil skapa áhættu að væntingar ríkisins um bindingu færist á sveitarfélagið, beint eða óbeint. Þá leggur byggðarráð einnig áherslu á að aðgerðir á landi kalli á sanngjarna hvata og fjármögnun.

    Byggðarráð tekur undir mikilvægi aðlögunar að loftslagsbreytingum en bendir á að áhættumat og aðlögunaraðgerðir geta leitt til verulegra fjárútláta í framtíðinni. Mikilvægt er að ríkið taki skýra ábyrgð á samstarfi og fjármögnun slíkra aðgerða, sérstaklega þegar um er að ræða varnir og innviði sem þjóna almannaöryggi.
    Bókun fundar Afgreiðsla 192. fundar byggðarráðs var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 192 Vísað frá 47. fundi fræðslunefndar þann 21. apríl sl., þannig bókað:
    "Fundargerðir skólaráðs Árskóla frá 3. desember 2025, 11. febrúar 2026 og 4. mars 2026 lagðar fram til kynningar.

    Fræðslunefnd samþykkir samhljóða að vísa ályktun skólanefndar frá 5. nóvember 2025 til byggðarráðs."

    Ályktun skólanefndar er svohljóðandi:
    "Skólaráð lýsir áhyggjum sínum vegna styttingar á tímabili skólaaksturs innanbæjar á þessu skólaári. Styttingin hefur í för með sér aukna bílaumferð í kringum skólann sem getur skapað hættu fyrir gangandi umferð í myrkri eða slæmu skyggni og færð. Einnig má benda á að aukin bílaumferð hefur í för með sér stærra kolefnisspor."

    Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs að vinna drög að mögulegum úrbótum til að auka öryggi vegfarenda í kringum sleppistæði við Árskóla.
    Bókun fundar Afgreiðsla 192. fundar byggðarráðs var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum.
  • .6 2601002 Ábendingar 2026
    Byggðarráð Skagafjarðar - 192 Lagðar fram til kynningar ábendingar sem borist hafa sveitarfélaginu á tímabilinu janúar til apríl 2026 ásamt viðbrögðum við innsendum ábendingum. Skagafjörður tekur við ábendingum í gegnum ábendingagátt á heimasíðu sveitarfélagsins eða með tölvupósti á skagafjordur@skagafjordur.is. Bókun fundar Afgreiðsla 192. fundar byggðarráðs var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum.