Fara í efni

Byggðarráð Skagafjarðar - 193

Málsnúmer 2605002F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Skagafjarðar - 49. fundur - 19.05.2026

Fundargerð 193. fundar byggðarráðs frá 7. maí 2026 var lögð fram til afgreiðslu á 49. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Einar E. Einarsson forseti kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 193 Fært í trúnaðarbók. Bókun fundar Afgreiðsla 193. fundar byggðarráðs var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 193 Lagður var fram tölvupóstur frá Erni Elíasi Guðmundssyni dagsettur 2. maí 2026. Örn Elías, betur þekktur sem Mugison, er að skipuleggja tónleikaferðalag um landið næsta sumar þar sem markmiðið er að spila á fallegum útivistarsvæðum svo sem í görðum, lautum, giljum og ströndum. Hann óskar eftir heimild landeiganda til viðburðarhalds 18. júlí nk. milli 15-16 og leggur fram tvær tillögur. Annars vegar í brekkunni til hliðar við Vesturfararsetrið eða á grasbalanum við hliðina Pakkhúsinu.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða að gera ekki athugasemd við að viðburðurinn verði haldinn í brekkunni til hliðar við Vesturfararsetrið, með fyrirvara um jákvæða umsögn forsvarsmanna Vesturfarasetursins. Sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs er falið að afla umsagnar Vesturfarasetursins.

    Bókun fundar Afgreiðsla 193. fundar byggðarráðs var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 193 Lóðarleigusamningur frá 28.12. 1990 um lóðina Steinahlíð L146229 við Steinsstaðahverfi er útrunninn. Leigutaki hefur forleigurétt að hinni leigðu lóð að leigutíma loknum og óskar eftir áframhaldandi leigu hennar. Í gildandi aðalskipulagi Skagafjarðar er lóðin á skilgreindu frístundasvæði utan þéttbýlismarka Steinsstaða.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela skipulagsfulltrúa að vinna að gerð nýs lóðarleigusamnings við leigutaka og að skilmálar umrædds lóðarleigusamnings verði sömu skilmálar og gilda um aðra nýlega samninga um lóðir á frístundasvæðum í sveitarfélaginu.
    Bókun fundar Afgreiðsla 193. fundar byggðarráðs var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 193 Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 78/2026, "Breyting á reglugerð um skráningarskyldan atvinnurekstur samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir". Umsagnarfrestur er til og með 13.05. 2026. Bókun fundar Afgreiðsla 193. fundar byggðarráðs var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 193 Innviðaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 79/2026, "Drög að frumvarpi um breytingar á lögum um Byggðastofnun". Umsagnarfrestur er til og með 30.06. 2026. Bókun fundar Afgreiðsla 193. fundar byggðarráðs var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum.