Fara í efni

Byggingarnefnd skóla- og íþróttamannvirkja á Hofsósi - 8

Málsnúmer 2605006F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Skagafjarðar - 49. fundur - 19.05.2026

Fundargerð 8. fundar byggingarnefndar skóla- og íþróttamannvirkja á Hofsósi frá 13. maí 2026 var lögð fram til afgreiðslu á 49. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Einar E. Einarsson forseti kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Byggingarnefnd skóla- og íþróttamannvirkja á Hofsósi - 8 Á fundinum var lögð fram uppfærð tillöguteikning að límtréshúsi sem hannað er af Ómari Péturssyni hjá Nýhönnun ehf. og teiknuð af Þorvaldi E. Þorvaldssyni. Fyrirliggjandi tillöguteikning sýnir viðbyggingu við Grunnskólann austan Vatna sem ætlað er að rúma íþróttahús, skólamötuneyti og sal, tónlistarkennslu, fundarherbergi, tæknirými og fleira, í einni og sömu byggingunni.

    Byggingarnefnd skóla- og íþróttamannvirkja á Hofsósi samþykkir samhljóða að stefna að næsta fundi 27. maí nk. Á þeim fundi verður tekin til afgreiðslu þarfagreining sem skólastjórar og leiðtogi frístunda- og íþróttamála vinna fram að því.
    Bókun fundar Fundargerð 8. fundar byggingarnefndar skóla- og íþróttamannvirkja á Hofsósi var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum.