Byggingarnefnd skóla- og íþróttamannvirkja á Hofsósi - 7
Málsnúmer 2604019F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Skagafjarðar - 49. fundur - 19.05.2026
Fundargerð 7. fundar byggingarnefndar skóla- og íþróttamannvirkja á Hofsósi frá 22. apríl 2026 var lögð fram til afgreiðslu á 49. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Einar E. Einarsson forseti kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Byggingarnefnd skóla- og íþróttamannvirkja á Hofsósi - 7 Á fundinum var lögð fram tillöguteikning að límtréshúsi sem hannað er af Ómari Péturssyni hjá Nýhönnun ehf. og teiknuð af Þorvaldi E. Þorvaldssyni. Fyrirliggjandi tillöguteikning sýnir viðbyggingu við Grunnskólann austan Vatna sem ætlað er að rúma íþróttahús, skólamötuneyti og sal, tónlistarkennslu, fundarherbergi, tæknirými og fleira, í einni og sömu byggingunni.
Á fundinum fór sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs einnig yfir frumdrög að kostnaðaráætlun fyrrgreindrar tillöguteikningar.
Byggingarnefnd skóla- og íþróttamannvirkja á Hofsósi samþykkir samhljóða að fela sviðsstjóra að vinna áfram að nánari útfærslum tillöguteikninga. Byggingarnefnd felur jafnframt sviðsstjóra fjölskyldusviðs í samráði við stjórnendur að kynna teikningar fyrir starfsfólki grunn-, leik- og tónlistarskóla á Hofsósi. Bókun fundar Fundargerð 7. fundar byggingarnefndar skóla- og íþróttamannvirkja á Hofsósi var staðfest á 49. fundi sveitarstjórnar 19. maí 2026 með níu atkvæðum.