Fara í efni

Nafir 14 L143946, Sauðárkróki - Umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir fráveitulögn að sundlaug Sauðárkróks

Málsnúmer 2605002

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 97. fundur - 04.05.2026

Hjörvar Halldórsson f.h. Veitu- og framkvæmdasviðs Skagafjarðar, þinglýsts eiganda lóðarinnar Nafir 14, landnr. 143946, og Skagfirðingabrautar, landnr. 143721, óskar eftir framkvæmdaleyfi fyrir lagningu fráveitulagnar frá samþykktum byggingarreit á lóðinni Nafir 14, meðfram göngustíg niður Nafir og að fráveitubrunni norðvestan við Sundlaug Sauðárkróks.
Meðfylgjandi er greinargerð og afstöðuuppdráttur, í verki nr. 41200001 útg. 28. apríl 2026, sem gera grein fyrir framkvæmdinni. Gögn voru unnin á Stoð verkfræðistofu ehf. Um er að ræða lagningu um 220 metra langrar fráveitulagnar (110 mm og 160 mm PVC) frá nýju þjónustuhúsi tjaldstæðisins í Nöfum að tengipunkti við sundlaug Sauðárkróks. Áætlað er að framkvæmdir hefjist í maí 2026 og að þeim verði lokið í júní 2026.

Skv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 getur sveitarstjórn ákveðið að veita megi framkvæmdaleyfi fyrir framkvæmd sem er í samræmi við aðalskipulag þótt ekki liggi fyrir deiliskipulag. Ekki liggur fyrir deiliskipulag. Skipulagsnefnd er heimilt að falla frá grenndarkynningu ef sýnt er fram á að leyfisskyld framkvæmd varði ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og/eða umsækjanda. Um er að ræða framkvæmd neðanjarðar á opnu svæði og ekki verður séð að lögnin skerði hagsmuni annarra hvað varðar landnotkun, innsýn, aðgengi eða aðra umhverfisþætti.
Óskað hefur verið eftir umsögn Minjastofnunar.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að fallið verði frá grenndarkynningu í samræmi við ákvæði 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og jafnframt að sveitarstjórn veiti umbeðið framkvæmdaleyfi að fenginni jákvæðri umsögn Minjastofnunar.

Eyþór Fannar Sveinsson fulltrúi Byggðalista óskar bókað:
Mikilvægt er að vanda til verka við skipulag og framkvæmdir á vegum sveitarfélagsins.
Forsaga þessa máls er ákvörðun sem tekin var fyrir á 91. fundi Skipulagsnefndar, um stofnun byggingarreits á Nöfum og umsókn um framkvæmdaleyfi vegna tilfærslu á aðstöðuhúsi tjaldsvæðis frá Flæðum og upp á Nafir. Forsendur fyrir stofnun byggingarreits gerði meðal annars ráð fyrir innviðum nálægt reitnum og kemur það kómískt fyrir sjónir að inn á borð komi umsókn af þessum toga.
Skipulagslýsing fyrir nýtt tjaldsvæði við Borgargerði á Sauðárkróki er nú þegar í auglýsingaferli, og rennur út 21. maí n.k. Ef skynsemi réði för yrði beðið með flutning á aðstöðuhúsi af Flæðum þar til deiliskipulag yrði staðfest við Borgargerði. Með flutningi frá Flæðum beint í Borgargerði myndi sparast bæði flutningskostnaður hússins upp á Nafir og framkvæmdir við fráveitu sem þessa, sem eðlilega þyrfti að skoða í stærra samhengi með framtíðar íbúðabyggð á Nöfum í huga.