Fara í efni

Skipulagsnefnd

110. fundur 12. nóvember 2026 kl. 13:00 - 14:45 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Ingvar Daði Jóhannsson formaður
  • Jón Daníel Jónsson varaform.
  • Jódís Helga Káradóttir aðalm.
  • Einar Eðvald Einarsson
Starfsmenn
  • Sæunn Kolbrún Þórólfsdóttir skipulagsfulltrúi
  • Sigurður H Ingvarsson starfsmaður skipulagsfulltrúa
Fundargerð ritaði: Sæunn Kolbrún Þórólfsdóttir skipulagsfulltrúi
Dagskrá

1.Furulundur 3, 5, og 7 í Varmahlíð - Deiliskipulag

Málsnúmer 2603229Vakta málsnúmer

Farið yfir samantekt á innsendum umsögnum við vinnslutillögu deiliskipulags og aðalskipulagsbreytingar fyrir Furulund 3, 5 og 7 í Varmahlíð, mál nr. 483/2026 (https://skipulagsgatt.is/issues/2026/483 ) og mál nr. 484/2026 (https://skipulagsgatt.is/issues/2026/484 ) í Skipulagsgáttinni, samráðsgátt Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar um skipulagsmál.
Vinnslutillögurnar voru í auglýsingu dagana 21.10.2026- 08.11.2026 og bárust 3 umsagnir við vinnslutillögu deiliskipulags og sömuleiðis 3 umsagnir við vinnslutillögu aðalskipulagsbreytingarinnar.

Umsagnirnar gefa ekki til tilefni til breytinga.

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi og aðalskipulagsbreytingu fyrir Furulund í Varmahlíð, uppdrættir DS01 og AS01 dags. 01.10.2026, unnir á Stoð ehf. verkfræðistofu af Birni Magnúsi Árnasyni og Árna Ragnarssyni.
Aðalskipulagsbreyting gengur út á að svæði fyrir samfélagsþjónustu verður íbúðarsvæði annars vegar og miðsvæði hins vegar. Deiliskipulagsuppdráttur nr. DS-01 sýnir lóðamörk, aðkomu að lóðum og byggingarreiti ásamt helstu byggingarskilmálum.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir "Furulund, Varmahlíð" skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, jafnframt samþykkir skipulagsnefnd samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að auglýsa tillögu að aðalskipulagsbreytingu skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

2.Glaumbær Byggðasafn Skagfirðinga - Deiliskipulag

Málsnúmer 2101290Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi fyrir Glaumbæ í Skagafirði, skipulagsuppdráttur nr. 001 og greinargerð dags. 08.11.2026, unnið á Teiknistofu Norðurlands af Arnari Birgi Ólafssyni. Greinargerðinni fylgir húsakönnun.
Samhliða er jafnframt lögð fram skipulagslýsing og vinnslutillaga fyrir aðalskipulagsbreytingu unnin á VSÓ ráðgjöf dags. nóvember 2026.

Helstu viðfangsefni skipulagsins eru að skilgreina lóðarmörk safnsins, byggingar
reiti, aðkomu, bílastæði, stígakerfi og dvalarsvæði. Markmið skipulagsins er að setja fram stefnu og skilmála um framtíðaruppbyggingu á safnsvæðinu.
Í því felst m.a. gerð nýrrar aðkomu að safninu, uppbygging bílastæðis og bygging þjónustuhúss sem mun rúma gestamótöku, þjónustu, veitingarými og aðstöðu starfsfólks. Þjónustuhúsi er valinn staður á jaðri safnsvæðisins til að hafa sem minnst sjónræn áhrif á bæjarstæðið sjálft. Skipulagið gerir ekki ráð fyrir að fleiri friðuð hús verði flutt á safnsvæðið og aukin áhersla verður lögð á að uppbygging
mannvirkja við bæjarstæði Glaumbæjar styrki miðlun á búsetumenningu og byggingarhefðum eins og þær birtust í torfbæjum og á bæjarstæðum í Skagafirði í lok 19. aldar.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir "Glaumbæ í Skagafirði" skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, jafnframt samþykkir skipulagsnefnd samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að hluti af landi Glaumbæjar 1 L146031 verði tekið úr landbúnaðarnotkun (flokkað sem L-1 og L4 í gildandi aðalskipulagi) og að samþykkja skipulagslýsingu og vinnslutillögu að aðalskipulagsbreytingu fyrir Glaumbæ skv. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

3.Neðri-Ás 2, land 3 og 4 - Umsókn um deiliskipulag

Málsnúmer 1505046Vakta málsnúmer

Lögð fram uppfærð greinargerð og uppdráttur fyrir deiliskipulag Neðri-Áss 2, land 3 og 4, dags. 11.11.2026, unnin á Kollgátu ehf. arkitektastofu þar sem fram kemur að tekið hafi verið tillit til athugasemda Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar (HMS) sem bárust 19.10.2026.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að samþykkja uppfærða deiliskipulagstillögu þar sem tekið hefur verið tillit til athugasemda Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar (HMS) að mestu leiti, en fellst á að lóðir og þegar byggðar lóðir innan skipulagssvæðisins séu minni og með hærra nýtingarhlutfall en lagt er til í gildandi aðalskipulagi. Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt samhljóða að leggja til við sveitastjórn að samþykkja uppfærða tillögu skv. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og fela skipulagsfulltrúa að auglýsa gildistöku skipulagsins í B-deild Stjórnartíðinda.

4.Dýrfinnustaðir L146274 - Deiliskipulag

Málsnúmer 2611086Vakta málsnúmer

Finnur Kristinsson landlagsarkitekt óskar eftir fyrir hönd ábúanda og landeigenda á Dýrfinnustöðum heimild til að gera deiliskipulag á eigin kostnað fyrir um 3,7 ha svæði í kringum núverandi byggingar á jörðinni, landnúmer L146274.
Ekki er gert ráð fyrir að gera skipulagslýsingu vegna fyrirhugaðrar skipulagsvinnu þar sem áætlaðar framkvæmdir falla undir íbúðarhús, útihús og byggingar til landbúnaðarnota og eru í samræmi við gildandi Aðalskipulag Skagafjarðar 2025-2040.
Jafnframt er lögð fram tillaga að deiliskipulagi ásamt greinargerð fyrir Dýrfinnustaði í Skagafirði dags. 10.11.2026, verknr. 2609, þar sem helstu viðfangsefni eru m.a. afmörkun á lóð með byggingarreit fyrir nýtt íbúðarhús, þrír byggingarreitir innan jarðarinnar, þar af tveir utan um núverandi byggingar vegna viðbygginga og einn fyrir nýja skemmu/verkstæði. Einnig eru sett viðeigandi ákvæði varðandi fyrirhugaða uppbyggingu á jörðinni.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að heimila landeigendum að láta vinna deiliskipulag á eigin kostnað skv. 38. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, jafnframt felst skipulagsnefnd á að heimila að skipulagslýsingu sé sleppt.
Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir "Dýrfinnustaði í Skagafirði" skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

5.Nestún 9 - Umsókn um lóð

Málsnúmer 2611031Vakta málsnúmer

Hallgrímur Ingi Jónsson og Guðrún Björg Egilsdóttir sækja um einbýlishúsalóðina Nestún 9 á Sauðárkróki.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að úthluta lóðinni til umsækjenda.

6.Breið L146153 í Lýtingsstaðahreppi - Umsókn umstofnun landspildu

Málsnúmer 2611074Vakta málsnúmer

Sindri Sigfússon og Erna Reynisdóttir þinglýstireigendur jarðarinnar Breið, landnúmer 146153 óska eftir heimild til að stofna 889,6m² spildu úr landi jarðarinnar, sem Breið 1, skv. meðfylgjandi afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki 75120000 útg. 4. nóvember 2026. Afstöðuppdráttur var unnin á Stoð verkfræðistofu ehf. af Þórði Karli Gunnarssyni.
Landheiti nýrrar spildu vísar til uppruna lands.
Öll hlunnindi tilheyra áfram Breið landnr. 146153.
Í Aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040 er spildan á landbúnaðarlandi nr. L-4. Landskiptin samræmast stefnu aðalskipulagsins um uppbyggingu og landnotkun í dreifbýli og styðja því viðmarkmið aðalskipulags um búsetu í dreifbýli.
Landskiptin hafa óveruleg áhrif á búrekstrarskilyrði og skerða ekki landbúnaðarsvæði í I. og II. flokki. Engin verndarsvæði skv. gildandi aðalskipulagi eru innan útskiptrar spildu.
Eitt mannvirki eru innan útskiptar spildu. Er það íbúðarhús skráð 104,2m² (Mhl. 02) sem er með fasteignanúmer F2140944 úr landi Breiðar og byggt árið 1969. Fasteign skal fylgja útskiptri lóð. Lögbýlarétturinn mun áfram fylgja Breið, landnr. 146153.
Málsnúmer í landeignaskráningu HMS M004491.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðin landskipti, nefndin samþykkir jafnframt samhljóða umbeðið nafnleyfi.

7.Bakki L146016 í Vallhólma, Skagafirði - Umsókn um stofnun byggingarreits

Málsnúmer 2611075Vakta málsnúmer

Felix Jósafatsson þinglýstur eigandi jarðarinnar Bakka, landnr. 146016, óskar eftir heimild til að stofna 2100 m² byggingarreit á landi jarðarinnar, skv. meðfylgjandi, hnitsettum afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki 78970000 útg. 5. nóv. 2026. Afstöðuppdráttur var unninn á Stoð ehf. verkfræðistofu af Dagnýju Stefánsdóttur.
Byggingar sem nú þegar eru skráðar á landnúmerið eru:
Mhl 02 sem er fjárhús, 180.7 m2 að stærð, byggt árið 1956.
Mhl 03 sem er fjárhús með áburðark, 121,3 m2 að stærð, byggt árið 1952.
Mhl 04 sem er hlaða, 112,1 m2 að stærð, byggt árið 1952.
Mhl 05 sem er hesthús, 62,7 m2 að stærð, byggt árið 1989.
Um er að ræða byggingarreit vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar frístundahúss og tilheyrandi fylgihúsa, allt að 3 húsum innan reitsins, endanleg hönnun mannvirkja liggur ekki fyrir.
Í kafla 3.7 í greinargerð aðalskipulagsins um heildarfjölda og stærðarmörk mannvirkja segir:
"Uppbygging nýrra stakra bygginga... fari ekki yfir 2.000 m² og heildarfjöldi þeirra ekki fleiri en 3."
Auk þess er í gr. 5.3.2.12 í Skipulagsreglugerð nr. 90/2013 kveðið á um heimild til byggingar fylgihúsa með eftirfarandi hætti:
"Frístundahús ásamt tilheyrandi mannvirkjum, svo sem geymslu, gestahúsi og bátaskýli skulu að jafnaði vera á sér lóð..."
Byggingarreitur, sem sótt er um, er innan marka Bakka landnr. 146016, sem er á skilgreindu landbúnaðarsvæði nr. L-4 í aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040.
Áform um uppbyggingu eru í samræmi við almenn ákvæði aðalskipulags um landnotkun á landbúnaðarsvæðum (kafli 3.7) og ákvæði um stakar framkvæmdir í dreifbýli. Í kafla 3.16 í greinargerð aðalskipulagsins segir meðal annars:
"Sveitarstjórn getur ákveðið að veita megi leyfi fyrir stökum framkvæmdum í dreifbýli án þess að gera þurfi kröfu um skipulagsgerð umfram það sem þörf er fyrir... Meðal framkvæmda sem ákvæði skipulagsreglugerðar um stakar framkvæmdir getur átt við eru byggingar og mannvirki sem tilheyra landbúnaðarstarfsemi, stök frístundahús eða stök íbúðarhús á landbúnaðarlandi án tengsla við búrekstur... Á það við þegar byggingaráform varða ekki hagsmuni annarra en umsækjandans, samrýmast landnotkun og yfirbragði svæðisins og hafa ekki neikvæð umhverfisáhrif."
Hér er sótt um byggingarreit fyrir frístundahús og fylgihús. Lögð verður áhersla á að mannvirkin samræmist yfirbragði og ásýnd umhverfisins. Núverandi innviðir nýtast áfram og er framkvæmdin ekki líkleg til að hafa neikvæð áhrif á umhverfi, mengun eða aðgengi á svæðinu.
Fyrirliggur jákvæð umsögn minjavarðar.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðinn byggingarreit.

8.Íbishóll L146044 - Umsókn um stækkun lóðar og staðfestingu hnitsetningar

Málsnúmer 2611083Vakta málsnúmer

Magnús Bragi Magnússon, þinglýstur eigandi jarðarinnar Íbishóls, landnúmer 146044, óskar eftir heimild til að stækka Íbishól lóð landnr. 218231, um 93.954 m2 með spildu sem skipt er úr landi jarðarinnar, skv. meðfylgjandi afstöðuuppdrætti nr. S-101 í verki 74570001, útg. 15. okt. 2026. Afstöðuuppdráttur var unninn á Stoð ehf. verkfræðistofu af Atla Gunnari Arnórssyni.
Öll hlunnindi tilheyra áfram Íbishóli landnr. 146044.
Stækkunin er á landbúnaðarsvæði nr. L-4, og samræmist Aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040. Í kafla um skipulagsákvæði þegar taka á land úr landbúnaðarnotum, skipta því eða sameina, segir meðal annars: "Við mat á áhrifum þess að taka land úr landbúnaðarnotum og leggja til annarra nota, skipta landi eða sameina það, skal taka mið af ákvæðum 5. og 6. gr. jarðalaga nr. 81/2004 og gera grein fyrir og taka afstöðu til eftirfarandi:
Hvort landið sé stærra en þörf er að teknu tilliti til þeirra áforma sem er lýst. Jafnframt hvort fremur megi taka annað land til sömu nota, sem hentar síður til landbúnaðar og þá sérstaklega jarðræktar.
Tekið skal tillit til ræktunarmöguleika lands skv. flokkun ræktarlands.
Hvort áform leiði af sér að girt sé fyrir búrekstrarnot í framtíðinni."
Með vísan til ofangreinds er tekið fram að landið sem bætist við lóðina leiðir ekki af sér skerðingu á búrekstrarnotum eða ræktunarmöguleikum upprunajarðarinnar í flokki L-1 og L-2. Áformin eru í samræmi við gildandi skipulag og helgast stærð landspildunnar, sem er 93.954 m², af því að innan hennar stendur hesthús (matshluti 08, 189 m² að stærð, byggt árið 1974). Stækkunin dregur íbúðarhús lóðarinnar (matshluti 01) og hesthúsið ásamt eðlilegu athafna- og beitarlandi umhverfis það saman í eina starfshæfa og samfellda lóðareiningu. Landskiptin skerða á engan hátt búrekstrarskilyrði upprunajarðarinnar Íbishóls, en öll hlunnindi og lögbýlaréttur munu áfram fylgja Íbishóli, landnr. 146044. Þá er landið í flokki L-4 og samræmist breytingin almennum skipulagsákvæðum aðalskipulagsins, kafla 2.6 og 3.7, um að styðja við fjölbreytta nýtingu landbúnaðarlands, hestamennsku og búsetu í dreifbýli.
Engin verndarsvæði skv. gildandi aðalskipulagi eru innan útskiptrar spildu. Helgunarsvæði háspennulínu sem liggur um landið verður áfram virt samkvæmt gildandi skipulagsskilmálum.
Málsnúmer í landeignaskráningu HMS M004447.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðin landskipti og staðfesta hnitsetningar sbr. merkjalýsingu.

9.Reykjarhóll L146060 - Umsókn um framkvæmdarleyfi

Málsnúmer 2611012Vakta málsnúmer

Lögð fram afgreiðsla skipulagsfulltrúa á umsókn Rarik um framkvæmdaleyfi fyrir strenglögn á 12 kV háspennustreng og setja jarðspennistöð og tengiskáp í landi Reykjahóls í Varmahlíð, vegna heimtaugaumsóknar um land landnúmer 146064 og L146060.
Fyrirliggja umsagnir frá Minjastofnun og Skógræktarfélagi Skagafjarðar án athugasemda.

10.Virkjunaráform í Héraðsvötnum - Staða mála

Málsnúmer 2610281Vakta málsnúmer

Jódís Helga Káradóttir fulltrúi Miðflokksins óskar í tölvupósti dags. 29.10.2026 eftir formlegri umfjöllun um stöðu virkjunaráforma í Héraðsvötnum.

Í ljósi þeirrar umræðu sem nú á sér stað um framtíð raforkuframleiðslu á Íslandi, orkuöryggi og mögulegar breytingar á regluverki virkjunarframkvæmda tel ég tímabært að við skoðum stöðu Héraðsvatna sérstaklega út frá hagsmunum Skagafjarðar.
Virkjunaráform í Héraðsvötnum eiga sér áratugalanga sögu og hafa verið til umfjöllunar bæði hjá sveitarfélaginu og á vettvangi rammaáætlunar. Að mínu mati er mikilvægt að sveitarfélagið hafi skýra yfirsýn yfir stöðu þessara mála, ekki síst í ljósi mögulegra áhrifa á atvinnuuppbyggingu, byggðaþróun og raforkuöryggi á Norðurlandi vestra.
Ég myndi því vilja óska eftir að við fengjum á fundinum stutta yfirferð yfir:
Núverandi stöðu virkjunarkosta í Héraðsvötnum samkvæmt rammaáætlun.
Hvernig virkjunaráformin samræmast gildandi Aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040.
Hvaða skipulagslegu og stjórnsýslulegu forsendur þyrftu að liggja fyrir ef til frekari undirbúnings eða endurskoðunar áformanna kæmi.
Hvort ástæða sé til þess að sveitarfélagið óski eftir uppfærðum upplýsingum um möguleg áhrif orkunýtingar á atvinnulíf, byggðaþróun og afhendingaröryggi raforku í héraðinu.
Markmið mitt með þessari beiðni er fyrst og fremst að hefja upplýsta og málefnalega umræðu innan sveitarfélagsins um framtíð þessara mikilvægu náttúruauðlinda og þá hagsmuni sem eru í húfi.
Ég tel mikilvægt að Skagafjörður hafi frumkvæði að því að móta eigin sýn á þessi mál, fremur en að vera eingöngu umsagnaraðili þegar ákvarðanir um framtíð vatnasvæða koma til meðferðar á öðrum stjórnsýslustigum.

Farið var yfir fyrirliggjandi upplýsingar sem koma fram í rammaáætlun stjórnvalda, gildandi Aðalskipulag Skagafjarðar 2025-2040 og skýrslur Veðurstofu Íslands um reiknuð endurkomuflóð í Héraðsvötnunum.

Einar E. Einarsson fulltrúi Framsóknarflokksins óskar bókað:
"Rétt er að minna á stefnu stjórnvalda um að orkuskiptum á Íslandi skuli lokið fyrir árið 2040. Skatastaðavirkjun er besti virkjunarkostur á Íslandi til að stuðla að raunhæfni þess markmiðs. Einnig má benda á að á Norðurlandi öllu er verulegur skortur á orku ásamt því að vegalengdir frá virkjunum hamla meðal annars möguleikum á nýtingu jarðstrengja í uppbyggingu flutningskerfisins á Norðurlandi. Dreifing raforkuvinnslu hefur jákvæð áhrif á flutningskerfi raforku samhliða því að styrkja staðbundið orkuöryggi.
Jafnframt er rétt að minna á þá miklu jarðfræðilegu óvissu sem ríkir í dag um jarðvarmavirkjanir á Suðvesturhorni landsins en við virkjun Blöndu á sínum tíma voru meðal annars notuð þau rök að hún væri utan eldvirkra svæða. Sömu rök gilda einnig í dag um t.d. virkjun Skatastaðavirkjunar en ógnin af áhrifum eldsumbrota á virkjanir á Suðvesturhorninu hefur aldrei verið áþreifanlegri en í dag. Um hreint þjóðaröryggismál er að ræða og því mikilvægt að stjórnvöld flytji virkjunina í nýtingarflokk svo hægt sé að gera raunverulegt umhverfismat á áhrifum framkvæmdarinnar.“

Jódís Helga Káradóttir fulltrúi Miðflokksins óskar bókað:
"Ástæða þess að ég óskaði eftir því að málið yrði tekið á dagskrá er einföld. Við búum yfir miklum orkuauðlindum í Skagafirði og ég tel að okkur beri að skoða af fullri alvöru hvernig við getum nýtt þær til framtíðaruppbyggingar. Í gildandi aðalskipulagi er fjallað um Skatastaðavirkjun og Villinganesvirkjun, en þar er ekki mörkuð skýr stefna sveitarfélagsins um framtíðarnýtingu Héraðsvatna. Það vil ég að við skoðum hvort rétt sé að breyta. Ég tel mikilvægt að Skagafjörður hafi frumkvæði að því að móta eigin stefnu um orkumál, enda geta ákvarðanir á þessu sviði haft veruleg áhrif á atvinnulíf, byggðaþróun og framtíðarmöguleika svæðisins og Norðvesturlands í heild. Ég er að leggja til að sveitarfélagið hefji markvissa vinnu við að skýra stefnu sína, kanna hvaða skipulagsbreytingar eru mögulegar og stuðla að því að virkjunarhugmyndir í Héraðsvötnum fái frekari umfjöllun á grundvelli uppfærðra gagna. Það er mikilvægt að sveitarfélagið sjálft taki virkan þátt í þessari umræðu og marki afstöðu sína til framtíðarnýtingar orkuauðlinda í Skagafirði. Þess vegna legg ég til að við tökum fyrsta formlega skrefið á þessu kjörtímabili hér í dag.“

11.Freyjugata 7 og 9 - Lóðarmál sbr. DSK

Málsnúmer 2606191Vakta málsnúmer

Skipulagsfulltrúi leggur fram merkjalýsingu dags. 12.11.2026 fyrir eftirtaldar lóðir við Freyjugötu á Sauðárkróki: 7a, 7b, 7c, 7d, 7e, 7f og 7g, Freyjugötu 9, opið svæði og Freyjugötu 7h.
Merkjalýsing er unnin af Birni Magnúsi Árnasyni merkjalýsanda á Stoð ehf. verkfræðistofu skv. reglugerð um merki fasteigna, nr. 160/2024 og á grundvelli 48. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 6. gr. laga nr. 6/2001 um skráningu, merki og mat fasteigna.
Merkjalýsingin er gerð í samræmi við breytingu á deiliskipulagi Gamla bæjarins á Sauðárkróki, samþykktri í sveitarstjórn Skagafjarðar 19.05.2026 sem auglýst hefur verið skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Gildistakan var auglýst í B-deild 19.06.2026.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða framlagða merkjalýsingu.
Skipulagsnefnd afgreiðir málið að fullu, á grundvelli 1. tölul. 3. gr. viðauka I við samþykkt um stjórn Skagafjarðar nr. 1336/2022 og felur skipulagsfulltrúa að ganga frá stofnun þessara lóða.

Fundi slitið - kl. 14:45.