Fara í efni

Virkjunaráform í Héraðsvötnum - Staða mála

Málsnúmer 2610281

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 110. fundur - 12.11.2026

Jódís Helga Káradóttir fulltrúi Miðflokksins óskar í tölvupósti dags. 29.10.2026 eftir formlegri umfjöllun um stöðu virkjunaráforma í Héraðsvötnum.

Í ljósi þeirrar umræðu sem nú á sér stað um framtíð raforkuframleiðslu á Íslandi, orkuöryggi og mögulegar breytingar á regluverki virkjunarframkvæmda tel ég tímabært að við skoðum stöðu Héraðsvatna sérstaklega út frá hagsmunum Skagafjarðar.
Virkjunaráform í Héraðsvötnum eiga sér áratugalanga sögu og hafa verið til umfjöllunar bæði hjá sveitarfélaginu og á vettvangi rammaáætlunar. Að mínu mati er mikilvægt að sveitarfélagið hafi skýra yfirsýn yfir stöðu þessara mála, ekki síst í ljósi mögulegra áhrifa á atvinnuuppbyggingu, byggðaþróun og raforkuöryggi á Norðurlandi vestra.
Ég myndi því vilja óska eftir að við fengjum á fundinum stutta yfirferð yfir:
Núverandi stöðu virkjunarkosta í Héraðsvötnum samkvæmt rammaáætlun.
Hvernig virkjunaráformin samræmast gildandi Aðalskipulagi Skagafjarðar 2025-2040.
Hvaða skipulagslegu og stjórnsýslulegu forsendur þyrftu að liggja fyrir ef til frekari undirbúnings eða endurskoðunar áformanna kæmi.
Hvort ástæða sé til þess að sveitarfélagið óski eftir uppfærðum upplýsingum um möguleg áhrif orkunýtingar á atvinnulíf, byggðaþróun og afhendingaröryggi raforku í héraðinu.
Markmið mitt með þessari beiðni er fyrst og fremst að hefja upplýsta og málefnalega umræðu innan sveitarfélagsins um framtíð þessara mikilvægu náttúruauðlinda og þá hagsmuni sem eru í húfi.
Ég tel mikilvægt að Skagafjörður hafi frumkvæði að því að móta eigin sýn á þessi mál, fremur en að vera eingöngu umsagnaraðili þegar ákvarðanir um framtíð vatnasvæða koma til meðferðar á öðrum stjórnsýslustigum.

Farið var yfir fyrirliggjandi upplýsingar sem koma fram í rammaáætlun stjórnvalda, gildandi Aðalskipulag Skagafjarðar 2025-2040 og skýrslur Veðurstofu Íslands um reiknuð endurkomuflóð í Héraðsvötnunum.

Einar E. Einarsson fulltrúi Framsóknarflokksins óskar bókað:
"Rétt er að minna á stefnu stjórnvalda um að orkuskiptum á Íslandi skuli lokið fyrir árið 2040. Skatastaðavirkjun er besti virkjunarkostur á Íslandi til að stuðla að raunhæfni þess markmiðs. Einnig má benda á að á Norðurlandi öllu er verulegur skortur á orku ásamt því að vegalengdir frá virkjunum hamla meðal annars möguleikum á nýtingu jarðstrengja í uppbyggingu flutningskerfisins á Norðurlandi. Dreifing raforkuvinnslu hefur jákvæð áhrif á flutningskerfi raforku samhliða því að styrkja staðbundið orkuöryggi.
Jafnframt er rétt að minna á þá miklu jarðfræðilegu óvissu sem ríkir í dag um jarðvarmavirkjanir á Suðvesturhorni landsins en við virkjun Blöndu á sínum tíma voru meðal annars notuð þau rök að hún væri utan eldvirkra svæða. Sömu rök gilda einnig í dag um t.d. virkjun Skatastaðavirkjunar en ógnin af áhrifum eldsumbrota á virkjanir á Suðvesturhorninu hefur aldrei verið áþreifanlegri en í dag. Um hreint þjóðaröryggismál er að ræða og því mikilvægt að stjórnvöld flytji virkjunina í nýtingarflokk svo hægt sé að gera raunverulegt umhverfismat á áhrifum framkvæmdarinnar.“

Jódís Helga Káradóttir fulltrúi Miðflokksins óskar bókað:
"Ástæða þess að ég óskaði eftir því að málið yrði tekið á dagskrá er einföld. Við búum yfir miklum orkuauðlindum í Skagafirði og ég tel að okkur beri að skoða af fullri alvöru hvernig við getum nýtt þær til framtíðaruppbyggingar. Í gildandi aðalskipulagi er fjallað um Skatastaðavirkjun og Villinganesvirkjun, en þar er ekki mörkuð skýr stefna sveitarfélagsins um framtíðarnýtingu Héraðsvatna. Það vil ég að við skoðum hvort rétt sé að breyta. Ég tel mikilvægt að Skagafjörður hafi frumkvæði að því að móta eigin stefnu um orkumál, enda geta ákvarðanir á þessu sviði haft veruleg áhrif á atvinnulíf, byggðaþróun og framtíðarmöguleika svæðisins og Norðvesturlands í heild. Ég er að leggja til að sveitarfélagið hefji markvissa vinnu við að skýra stefnu sína, kanna hvaða skipulagsbreytingar eru mögulegar og stuðla að því að virkjunarhugmyndir í Héraðsvötnum fái frekari umfjöllun á grundvelli uppfærðra gagna. Það er mikilvægt að sveitarfélagið sjálft taki virkan þátt í þessari umræðu og marki afstöðu sína til framtíðarnýtingar orkuauðlinda í Skagafirði. Þess vegna legg ég til að við tökum fyrsta formlega skrefið á þessu kjörtímabili hér í dag.“