Fara í efni

Stofnun lögbýlis Prestbær - beiðni um umsögn

Málsnúmer 2610066

Vakta málsnúmer

Landbúnaðar- og innviðanefnd - 54. fundur - 14.10.2026

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 7.10.2026 frá Magnúsi Gylfasyni, eiganda Hestabúgarðurinn Prestbær ehf. Þar sem óskað er eftir umsögn sveitarstjórnar vegna stofnunar lögbýlis á jörðinni Prestbær, 551 Sauðárkróki, fastanúmer 232-1369. Áformað er að nýta jörðina fyrir hrossarækt og skógrækt. Veðbókarvottorð jarðarinnar fylgir erindinu ásamt yfirlitsmynd af landamerkjum hennar gagnvart aðliggjandi jörðum. Landbúnaðar- og innviðanefnd sér ekkert því til fyrirstöðu að lögbýlið verði stofnað og mælir með að það hljóti jákvæða umsögn sveitarstjórnar.
Nefndin samþykkir samhljóða að vísa málinu til sveitarstjórnar.