Fara í efni

Gjaldskrá fráveitu og tæmingu rotþróa 2027

Málsnúmer 2608182

Vakta málsnúmer

Landbúnaðar- og innviðanefnd - 53. fundur - 29.09.2026

Lögð fram drög að endurnýjaðri gjaldskrá fyrir fráveitu og tæmingu rotþróa 2027. Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir gjaldskrána samhljóða.

Byggðarráð Skagafjarðar - 212. fundur - 05.10.2026

Gjaldskrá fráveitu í Skagafirði fyrir árið 2027 vísað frá 53. fundi landbúnaðar- og innviðanefndar þann 29. september sl.

Gjaldskráin tekur breytingum í kjölfar útboðs á tæmingu rotþróa fyrr á þessu ári. Eru gjaldaflokkar að breytast og tæmingar að lækka í verði.

Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.

Sveitarstjórn Skagafjarðar - 54. fundur - 14.10.2026

Vísað frá 212. fundi byggðarráðs frá 5. október sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað:
"Gjaldskrá fráveitu í Skagafirði fyrir árið 2027 vísað frá 53. fundi landbúnaðar- og innviðanefndar þann 29. september sl.

Gjaldskráin tekur breytingum í kjölfar útboðs á tæmingu rotþróa fyrr á þessu ári. Eru gjaldaflokkar að breytast og tæmingar að lækka í verði.

Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar."

Framlögð gjaldskrá var borin upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykkt með níu atkvæðum.