Fara í efni

Samningur um sérstakan húsnæðisstuðning

Málsnúmer 2610021

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Skagafjarðar - 212. fundur - 05.10.2026

Sólborg Sigurrós Borgarsdóttir vék af fundi við afgreiðslu þessa máls.

Lagt fram erindi frá Regínu Valdimarsdóttur, framkvæmdastjóra brunavarna og leigumarkaðar hjá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS), dags. 22. september 2026, þar sem óskað er eftir afstöðu Skagafjarðar til áframhaldandi samstarfs um umsýslu sérstaks húsnæðisstuðnings. Með erindinu fylgja gildandi þjónustusamningur um sérstakan húsnæðisstuðning, viðaukar við samninginn og kynning HMS um samstarfsverkefnin.

Byggðarráð fagnar góðu samstarfi Skagafjarðar og HMS um sérstakan húsnæðisstuðning sem staðið hefur frá árinu 2019. Samstarfið hefur falið í sér sameiginlegt umsóknarferli fyrir almennar húsnæðisbætur og sérstakan húsnæðisstuðning þar sem HMS annast umsýslu umsókna á grundvelli viðmiða sveitarfélagsins. Samkvæmt upplýsingum HMS hefur verkefnið einfaldað umsóknarferli og stuðlað að því að fleiri heimili njóti stuðnings.

Byggðarráð samþykkir með tveimur atkvæðum að framlengja samstarfið og felur sveitarstjóra að vinna áfram með HMS að gerð ótímabundins þjónustusamnings um umsýslu sérstaks húsnæðisstuðnings. Samningurinn skal lagður fyrir byggðarráð til afgreiðslu þegar fyrir liggja endanleg drög.