Lögð fram tillaga að gjaldskrá leikskóla sem tekur gildi 1. janúar 2027. Gert er ráð fyrir 2,5% hækkun á dvalargjöldum, fæðisgjöldum og gjöldum vegna skráningardaga í samræmi við forsendur þjóðhagsspár Hagstofu Íslands um verðlagsbreytingar. Systkinaafsláttur af dvalargjaldi helst óbreyttur (50% fyrir annað barn og 100% fyrir þriðja barn). Jafnframt helst sektargjald vegna vistar utan úthlutaðs dvalartíma óbreytt.
Fræðslunefnd samþykkir samhljóða fyrirliggjandi tillögu að gjaldskrá og vísar henni til byggðarráðs til afgreiðslu.
Anna Karítas Ingvarsdóttir Sighvats sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Fræðslunefnd samþykkir samhljóða fyrirliggjandi tillögu að gjaldskrá og vísar henni til byggðarráðs til afgreiðslu.