Lögð fram tillaga að gjaldskrá frístundar sem tekur gildi 1. janúar 2027. Gert er ráð fyrir 2,5% hækkun gjalda í samræmi við forsendur þjóðhagsspár Hagstofu Íslands um verðlagsbreytingar. Samkvæmt tillögunni hækkar dvalargjald í frístund úr 325 kr. í 333 kr. og síðdegishressing úr 280 kr. í 287 kr. Á heilsdagsopnunardögum bætist við greiðsla fyrir fæði, þar sem morgunverður hækkar úr 386 kr. í 396 kr. og hádegisverður úr 801 kr. í 821 kr. Systkinaafsláttur af dvalargjaldi helst óbreyttur (50% fyrir annað barn og 100% fyrir þriðja barn) og börn í dreifbýli hafa áfram forgang að heilsdagsvistun.
Fræðslunefnd samþykkir samhljóða fyrirliggjandi tillögu að gjaldskrá og vísar henni til byggðarráðs til afgreiðslu.
Anna Karítas Ingvarsdóttir Sighvats sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Fræðslunefnd samþykkir samhljóða fyrirliggjandi tillögu að gjaldskrá og vísar henni til byggðarráðs til afgreiðslu.