Fara í efni

Nestún 22 - Fyrirspurn varðandi deiliskipulagsbreytingu

Málsnúmer 2609068

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 106. fundur - 17.09.2026

Skúli Hermann Bragason sendir inn fyrirspurn í tölvupósti dags. 13.09.2026 fyrir hönd lóðarhafa Nestúns 22 varðandi hvort fengist samþykkt að byggja þrjár íbúðir á lóðinni í stað tveggja samkvæmt gildandi deiliskipulagi.

Þá myndi á lóðinni koma tvær þriggja herbergja íbúðir með bílskúr 120-140 m2 hvor og ein þriggja herbergja án bílskúrs 80-100 m2. Erindinu fylgir afstöðumynd "Nestún 22- Afstöðumynd A4" dags. 13.09.2026 unnin af Skúla Hermanni Bragasyni. Gert er ráð fyrir þremur bílastæðum við hverja íbúð ásamt sorptunnum.
Nýtingarhlutfall lóðarinnar yrði 0,3-0,32.
Enda íbúðirnar myndu speglast með bílskúr inn að miðju og minni íbúðin þar á milli. Útlitslega yrði raðhúsið svipað og Nestún 20, þ.e.a.s. hvað varðar byggingarlag, frágangur húss og lóðar.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að auglýsa umbeðna deiliskipulagsbreytingu skv. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Nefndin bendir jafnframt á að umsækjandi beri kostnað vegna vinnslu og auglýsingu á deiliskipulagsbreytingunni skv. gildandi gjaldskrá sveitarfélagsins.