Byggðarráð Skagafjarðar - 212
Málsnúmer 2610003F
Vakta málsnúmerSveitarstjórn Skagafjarðar - 54. fundur - 14.10.2026
Fundargerð 212. fundar byggðarráðs frá 5. október 2026 var lögð fram til afgreiðslu á 54. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Sveinn Þ. Finster Úlfarsson forseti kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 212 Undir þessum lið sátu Elín Dögg Väljaots Gunnarsdóttir fjármálastjóri og Margeir Friðriksson verkefnastjóri.
Margeir lagði fram til fyrri umræðu fjárhagsáætlun Skagafjarðar 2027 ásamt þriggja ára áætlun 2028-2031.
Byggðarráð samþykkir samhljóða fjárhagsáætlun 2027-2031 til fyrri umræðu og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Fjárhagsáætlun 2027-2030, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 212 Lagður fram viðauki 7 við fjárhagsáætlun 2026. Viðaukinn felur í sér hækkun rekstrargjalda um 160,8 m.kr. og hækkun eigna um 17 m.kr.
Hækkun rekstrargjalda felast í kaupum á rafmagnsspennuskápum vegna tjaldsvæðis á Sauðárkróki (4 m.kr.), breytinga stöðugilda á Fjölskyldusviði (3,5 m.kr.), Breytingar á fjármagnsliðum vegna uppfærslu lánasafns m.t.t. verðlagsbreytinga (259,1 m.kr.),
Rekstrarliðum er mætt að hluta með hækkun útsvarstekna og breytingar á framlögum jöfnunarsjóðs (98 m.kr.), lækkun áætlunar um niðurgreiðslu leikskólagjalda (10 m.kr.), auknum fjárframlögum vegna dagdvalar aldraðra, sjúkraflutninga og frá Úrvinnslusjóði (8,5 m.kr.), auknum tekjum frá Gretti sterka (6 m.kr.) og hækkun áætlunar vegna fráveitugjalda (15 m.kr.).
Breytingar á efnahagsreikningi tengjast breytingar á eignum og skuldum vegna uppfærslu á niðurstöðu ársreiknings 2025 í fjárhagsáætlun ársins 2026 auk fjárfestingar í uppfærslu á tölvubúnaði veitumannvirkja (17 m.kr.) og hækkun fjárheimildar vegna vinnu við fjölgun bílastæða við Sundlaug Sauðárkróks (4,1 m.kr.).
Eftirstandandi breytingum er mætt með lækkun handbærs fjár að upphæð 181,9 m.kr.
Eftir viðaukann verður áætluð rekstrarniðurstaða A-hluta 552,2 m.kr. og samstæðu A- og B-hluta 2,199 m.kr.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagðan viðauka með áorðinni hækkun að upphæð 4,1 m.kr. vegna stækkunar bílastæða við sundlaugar Sauðárkróks. Byggðarráð vísar málinu til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Viðauki 7 við fjárhagsáætlun 2026, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 212 Sveitarstjórn samþykkti í viðauka 5 við fjárhagsáætlun 2026 að veita 16,1 m.kr. í stækkun bílasplans við sundlaug Sauðárkróks. Í kjölfarið var farið í fullnaðarhönnun verksins og ráðist í verðfyrirspurn.
Fyrir fundinum lá fundargerð tilboðsopnunar sem haldin var á skrifstofu Stoðar verkfræðistofu þriðjudaginn 1. september 2026 kl. 13 ásamt innkomnu tilboði.
Eitt tilboð barst í verkið frá Þ.Hansen sem hljóðar upp á 107,4% af kostnaðaráætlun verksins.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs að ganga til samninga við Þ. Hanssen um verkið. Í viðauka 7 er gert ráð fyrir 4,1 m.kr. til viðbótar til verksins. Bókun fundar Afgreiðsla 212. fundar byggðarráðs var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 212 Lagt fram erindi frá Vegagerðinni, dags. 1. október 2026, þar sem óskað er eftir afstöðu Skagafjarðar til þess hvort sveitarfélagið hafi áhuga á að taka við eignarhaldi á núverandi brú yfir Flókadalsá. Erindið tengist undirbúningi framkvæmda vegna fyrirhugaðra Fljótaganga, þar sem ráðgert er að leggja nýjan Siglufjarðarveg frá Stafá að Ketilási og byggja nýja brú yfir Flókadalsá. Fram kemur að núverandi brú sé mikilvæg tenging milli svæða og að áhugi hafi komið fram meðal landeigenda og annarra hagsmunaaðila á að nýta hana áfram sem hluta af reiðleiðakerfi svæðisins þegar umferð þjóðvegar færist af brúnni.
Byggðarráð felur sveitarstjóra að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum. Bókun fundar Afgreiðsla 212. fundar byggðarráðs var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 212 Stjórn Íbúasamtaka Varmahlíðar sendi formlegt erindi til byggðarráðs Skagafjarðar, dagsett 30. september 2026. Í bréfinu er óskað eftir að ráðist verði í nauðsynlegan frágang Birkimels í Varmahlíð. Er þá sérstaklega horft til þess að ljúka malbikun 120 metra kafla götunnar, leggja samfellda gangstétt, koma upp fullnægjandi götulýsingu og ráðast í nauðsynlegt viðhald og jöfnun götunnar. Jafnframt er óskað eftir mati á umferðaröryggi og hvort þörf sé á hraðalækkandi aðgerðum. Íbúasamtökin óska eftir að frágangur Birkimels verði settur inn í fjárhagsáætlun næsta árs og að íbúar verði upplýstir um fyrirhugaða tímasetningu framkvæmda.
Byggðarráð þakkar fyrir innkomið erindi. Byggðarráð samþykkir samhljóða að vísa málinu til gerðar fjárhagsáætlunar 2027. Bókun fundar Afgreiðsla 212. fundar byggðarráðs var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum. - .6 2610019 Framkvæmdir við húsnæði Flugbjörgunarsveitarinnar og Brunavarna Skagafjarðar í Varmahlíð.Byggðarráð Skagafjarðar - 212 Lagt fram erindi Flugbjörgunarsveitarinnar í Varmahlíð, dags. 30. september 2026, undirritað af Einari Ólasyni formanni fyrir hönd stjórnar sveitarinnar. Í erindinu er gerð grein fyrir umfangsmiklum viðhalds- og endurbótaframkvæmdum á húsnæði sveitarinnar í Varmahlíð. Húsnæðið skiptist annars vegar í félagsaðstöðu í eigu björgunarsveitarinnar og hins vegar tækjasal sem er í 60% eigu Flugbjörgunarsveitarinnar og 40% eigu Skagafjarðar (Brunavarna Skagafjarðar).
Í erindinu er óskað eftir að sveitarfélagið taki þátt í um 8 milljóna króna framkvæmda- og viðhaldskostnaði við tækjasal sem er í sameign aðila, en ráðist var í framkvæmdirnar án undangengins samráðs við sveitarfélagið.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að kalla eftir ítarlegri gögnum og boða fulltrúa Flugbjörgunarsveitarinnar á fund byggðarráðs.
Bókun fundar Afgreiðsla 212. fundar byggðarráðs var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 212 Lagt fram boð á stofnfund Samtaka landbúnaðarsveitarfélaga miðvikudaginn 7. október kl. 15:00 - 16:00 í sal á 2. hæð á Hilton Reykjavík.
Sveitarfélög sem hafa verulega beina hagsmuni af landbúnaði geta gerst stofnaðilar að samtökunum. Við mat á því skal meðal annars líta til umfangs landbúnaðarstarfsemi innan sveitarfélagsins, hlutfalls starfa í landbúnaði og tengdum greinum, sem og annarra þátta sem sýna fram á verulega hagsmuni sveitarfélagsins af málefnum landbúnaðar.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að gerast aðili að Samtökum landbúnaðarsveitarfélaga og felur sveitarstjóra að sitja stofnfundinn fyrir hönd Skagafjarðar og fara með fullt og ótakmarkað umboð sveitarfélagsins á fundinum. Byggðarráð felur sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs að gera ráð fyrir félagsgjöldum í fjárhagsáætlun 2027. Bókun fundar Afgreiðsla 212. fundar byggðarráðs var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 212 Sólborg Sigurrós Borgarsdóttir vék af fundi við afgreiðslu þessa máls.
Lagt fram erindi frá Regínu Valdimarsdóttur, framkvæmdastjóra brunavarna og leigumarkaðar hjá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS), dags. 22. september 2026, þar sem óskað er eftir afstöðu Skagafjarðar til áframhaldandi samstarfs um umsýslu sérstaks húsnæðisstuðnings. Með erindinu fylgja gildandi þjónustusamningur um sérstakan húsnæðisstuðning, viðaukar við samninginn og kynning HMS um samstarfsverkefnin.
Byggðarráð fagnar góðu samstarfi Skagafjarðar og HMS um sérstakan húsnæðisstuðning sem staðið hefur frá árinu 2019. Samstarfið hefur falið í sér sameiginlegt umsóknarferli fyrir almennar húsnæðisbætur og sérstakan húsnæðisstuðning þar sem HMS annast umsýslu umsókna á grundvelli viðmiða sveitarfélagsins. Samkvæmt upplýsingum HMS hefur verkefnið einfaldað umsóknarferli og stuðlað að því að fleiri heimili njóti stuðnings.
Byggðarráð samþykkir með tveimur atkvæðum að framlengja samstarfið og felur sveitarstjóra að vinna áfram með HMS að gerð ótímabundins þjónustusamnings um umsýslu sérstaks húsnæðisstuðnings. Samningurinn skal lagður fyrir byggðarráð til afgreiðslu þegar fyrir liggja endanleg drög. Bókun fundar Sólborg Sigurrós Borgarsdóttir vék af fundi við afgreiðslu þessa máls.
Afgreiðsla 212. fundar byggðarráðs var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með átta atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 212 Gjaldskrá dagdvalar aldraðra fyrir árið 2027 vísað frá 47. fundi félagsmála- og tómstundanefndar þann 1. október sl.
Gjaldskráin tekur 2,5% hækkun frá líðandi ári í samræmi við ákvörðun sveitarstjórnar.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Gjaldskrá Dagdvöl 2027, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 212 Gjaldskrá Iðju hæfingar fyrir árið 2027 vísað frá 47. fundi félagsmála- og tómstundanefndar þann 1. október sl.
Gjaldskráin tekur 2,5% hækkun frá líðandi ári í samræmi við ákvörðun sveitarstjórnar.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Gjaldskrá Iðju hæfingar 2027, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 212 Fjárhæðir greiðslna vegna þjónustu stuðningsfjölskyldna fyrir árið 2027 vísað frá 47. fundi félagsmála- og tómstundanefndar þann 1. október sl.
Félagsmála- og tómstundanefnd lagði til við byggðarráð að greiðslur vegna þjónustu stuðningsfjölskyldna árið 2027 taki mið af fjárhæð meðlags í júní 2026 (50.634 kr.):
- Umönnunarflokkur 1: 85% af meðlagi, samtals 43.039 kr. á sólarhring.
- Umönnunarflokkur 2: 75% af meðlagi, samtals 37.976 kr. á sólarhring.
- Umönnunarflokkur 3: 50% af meðlagi, samtals 25.317 kr. á sólarhring.
Þjónusta stuðningsfjölskyldna á grundvelli barnaverndarlaga miðast við greiðslur skv. 2. flokki umönnunarmats Tryggingastofnunar, en þjónusta á grundvelli laga um félagsþjónustu sveitarfélaga miðast við 3. flokk umönnunarmats.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða tillögu að fjárhæðum og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Greiðslur vegna þjónustu stuðningsfjölskyldna 2027, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 212 Gjaldskrá Húss frítímas fyrir árið 2027 vísað frá 47. fundi félagsmála- og tómstundanefndar þann 1. október sl.
Gjaldskráin tekur 2,5% hækkun frá líðandi ári í samræmi við ákvörðun sveitarstjórnar.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Gjaldskrá Húss frítímans 2027, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 212 Grunnupphæð fjárhagsaðstoðar fyrir árið 2027 vísað frá 47. fundi félagsmála- og tómstundanefndar þann 1. október sl.
Félagsmála- og tómstundanefnd lagði til við byggðarráð að grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar frá 1. janúar 2027 verði reiknuð með sama hætti og verið hefur samkvæmt 9. gr. reglna Skagafjarðar um fjárhagsaðstoð, þ.e. 80,4 % af atvinnuleysisbótum eins og þær voru í nóvember árið á undan.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlögð greiðsluviðmið og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Grunnupphæð fjárhagsaðstoðar 2027, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 212 Gjaldskrá leikskóla Skagafjarðar fyrir árið 2027 vísað frá 51. fundi fræðslunefndar þann 30. september sl.
Gjaldskráin tekur 2,5% hækkun frá líðandi ári í samræmi við ákvörðun sveitarstjórnar.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Gjaldskrá leikskóla 2027, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 212 Gjaldskrá í grunnskólum Skagafjarðar fyrir árið 2027 vísað frá 51. fundi fræðslunefndar þann 30. september sl.
Gjaldskráin tekur 2,5% hækkun frá líðandi ári í samræmi við ákvörðun sveitarstjórnar.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Gjaldskrá grunnskóla 2027, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 212 Gjaldskrá frístundar fyrir árið 2027 vísað frá 51. fundi fræðslunefndar þann 30. september sl.
Gjaldskráin tekur 2,5% hækkun frá líðandi ári í samræmi við ákvörðun sveitarstjórnar.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Gjaldskrá frístundar 2027, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 212 Gjaldskrá í tónlistarskóla Skagafjarðar fyrir árið 2027 vísað frá 51. fundi fræðslunefndar þann 30. september sl.
Gjaldskráin tekur 2,5% hækkun frá líðandi ári í samræmi við ákvörðun sveitarstjórnar.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Gjaldskrá tónlistarskóla 2027, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 212 Gjaldskrá fráveitu í Skagafirði fyrir árið 2027 vísað frá 53. fundi landbúnaðar- og innviðanefndar þann 29. september sl.
Gjaldskráin tekur breytingum í kjölfar útboðs á tæmingu rotþróa fyrr á þessu ári. Eru gjaldaflokkar að breytast og tæmingar að lækka í verði.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Gjaldskrá fráveitu og tæmingu rotþróa 2027, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 212 Gjaldskrá vegna lausagöngu búfjár fyrir árið 2027 vísað frá 53. fundi landbúnaðar- og innviðanefndar þann 29. september sl.
Gjaldskráin tekur 2,5% hækkun frá líðandi ári í samræmi við ákvörðun sveitarstjórnar.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Gjaldskrá vegna lausagöngu búfjár 2027, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 212 Gjaldskrá gámageymslusvæða fyrir árið 2027 vísað frá 53. fundi landbúnaðar- og innviðanefndar þann 29. september sl.
Gjaldskráin tekur 2,5% hækkun frá líðandi ári í samræmi við ákvörðun sveitarstjórnar.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Gjaldskrá gámageymslusvæða 2027, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 212 Gjaldskrá hitaveitu fyrir árið 2027 vísað frá 53. fundi landbúnaðar- og innviðanefndar þann 29. september sl.
Gjaldskráin tekur 2,5% hækkun frá líðandi ári í samræmi við ákvörðun sveitarstjórnar.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagða gjaldskrá og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Gjaldskrá hitaveitu 2027, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 212 Lagðar fram til kynningar fyrir byggðarráð ábendingar sem borist hafa sveitarfélaginu á tímabilinu maí til september 2026. Bókun fundar Afgreiðsla 212. fundar byggðarráðs var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 212 Lagt fram til kynningar erindi Innviðaráðuneytisins, dagsett 15. september 2026, vegna Alþjóðlegs minningardags Sameinuðu þjóðanna um fórnarlömb umferðarslysa sem haldinn verður 15. nóvember 2026. Í erindinu kemur fram að minningarathöfn verði venju samkvæmt haldin kl. 14 við þyrlupall Landspítalans í Fossvogi og jafnframt fari fram táknrænar minningarathafnir víða um land á vegum Slysavarnarfélagsins Landsbjargar. Bókun fundar Afgreiðsla 212. fundar byggðarráðs var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 212 Lagt fram erindi frá Berglindi Björnsdóttur, dags. 16. september 2026, þar sem kynnt er verkefnið Jafnvægisvogin á vegum Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA). Markmið verkefnisins er að stuðla að auknu jafnvægi kynja í efsta lagi stjórnunar hjá fyrirtækjum, stofnunum og sveitarfélögum með skýrri markmiðasetningu og reglulegri mælingu á árangri. Bókun fundar Afgreiðsla 212. fundar byggðarráðs var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.