Fara í efni

Félagsmála- og tómstundanefnd - 47

Málsnúmer 2609018F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Skagafjarðar - 54. fundur - 14.10.2026

Fundargerð 47. fundar félagsmála- og tómstundanefndar frá 1. október 2026 var lögð fram til afgreiðslu á 54. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Sveinn Þ. Finster Úlfarsson forseti kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Félagsmála- og tómstundanefnd - 47 Lögð fram drög að fjárhagsáætlun ársins 2027 fyrir málaflokk 01 (Þjónusta við fatlað fólk) til fyrri umræðu. Drögin taka mið af núverandi rekstri og fyrirliggjandi forsendum. Fram kemur að fjárhagsáætlunin sé enn í vinnslu og geti tekið breytingum við áframhaldandi vinnu.

    Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir samhljóða framlögð drög að fjárhagsáætlun fyrir árið 2027 og vísar þeim til fyrri umræðu í byggðarráði og sveitarstjórn. Jafnframt felur nefndin sviðsstjóra að vinna áfram að gerð áætlunarinnar og leggja endurskoðuð drög fyrir nefndina til síðari umræðu.
    Bókun fundar Afgreiðsla 47. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Félagsmála- og tómstundanefnd - 47 Lögð fram drög að fjárhagsáætlun ársins 2027 fyrir málaflokk 02 (Félagsþjónusta) til fyrri umræðu. Drögin taka mið af núverandi rekstri og fyrirliggjandi forsendum. Fram kemur að fjárhagsáætlunin sé enn í vinnslu og geti tekið breytingum við áframhaldandi vinnu.

    Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir samhljóða framlögð drög að fjárhagsáætlun fyrir árið 2027 og vísar þeim til fyrri umræðu í byggðarráði og sveitarstjórn. Jafnframt felur nefndin sviðsstjóra að vinna áfram að gerð áætlunarinnar og leggja endurskoðuð drög fyrir nefndina til síðari umræðu.
    Bókun fundar Afgreiðsla 47. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Félagsmála- og tómstundanefnd - 47 Lögð fram drög að fjárhagsáætlun ársins 2027 fyrir málaflokk 06 (Æskulýðs- og íþróttamál) til fyrri umræðu. Drögin taka mið af núverandi rekstri og fyrirliggjandi forsendum. Fram kemur að fjárhagsáætlunin sé enn í vinnslu og geti tekið breytingum við áframhaldandi vinnu.

    Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir samhljóða framlögð drög að fjárhagsáætlun fyrir árið 2027 og vísar þeim til fyrri umræðu í byggðarráði og sveitarstjórn. Jafnframt felur nefndin sviðsstjóra að vinna áfram að gerð áætlunarinnar og leggja endurskoðuð drög fyrir nefndina til síðari umræðu.
    Bókun fundar Afgreiðsla 47. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Félagsmála- og tómstundanefnd - 47 Daggjald er ákvarðað á grundvelli reglugerðar nr. 1245/2016 um dagdvöl aldraðra. Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir samhljóða að leggja til við byggðarráð að fæðiskostnaður dvalargesta árið 2027 hækki um 2,5% og verði 689 kr. á dag. Vísað til byggðarráðs. Bókun fundar Afgreiðsla 47. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Félagsmála- og tómstundanefnd - 47 Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir samhljóða að leggja til við byggðarráð að gjaldskrá heimaþjónustu árið 2027 taki mið af launaflokki 128 í kjarasamningum Öldunnar/Kjalar frá 1. apríl 2026, með 8% persónuálagi og launatengdum gjöldum. Tekjuviðmið til lækkunar gjalda taki mið af greiðslum Tryggingastofnunar. Vísað til byggðarráðs. Bókun fundar Afgreiðsla 47. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Félagsmála- og tómstundanefnd - 47 Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir samhljóða að leggja til við byggðarráð að hlutur notenda Iðju í fæðiskostnaði fyrir hádegisverð hækki um 2,5% árið 2027, úr 747 kr. í 766 kr., sem nemur um helmingi af heildarkostnaði við máltíðina. Notendur greiða ekki fyrir morgun- og síðdegishressingu. Vísað til byggðarráðs. Bókun fundar Afgreiðsla 47. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Félagsmála- og tómstundanefnd - 47 Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir samhljóða að leggja til við byggðarráð að miðað verði við jafnaðartaxta NPA-miðstöðvarinnar frá 1. janúar 2027 við útreikning á jafnaðarstundum í NPA-samningum. Stuðst verði við þrjá mismunandi taxta sem taka mið af þörfum notenda. Skipting kostnaðar felur í sér framlag til launakostnaðar (85%), umsýslukostnaðar (10%) og starfsmannakostnaðar (5%). Vísað til byggðarráðs. Bókun fundar Afgreiðsla 47. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Félagsmála- og tómstundanefnd - 47 Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir samhljóða að leggja til við byggðarráð að greiðslur vegna þjónustu stuðningsfjölskyldna árið 2027 taki mið af fjárhæð meðlags í júní 2026 (50.634 kr.):

    - Umönnunarflokkur 1: 85% af meðlagi, samtals 43.039 kr. á sólarhring.
    - Umönnunarflokkur 2: 75% af meðlagi, samtals 37.976 kr. á sólarhring.
    - Umönnunarflokkur 3: 50% af meðlagi, samtals 25.317 kr. á sólarhring.

    Þjónusta stuðningsfjölskyldna á grundvelli barnaverndarlaga miðast við greiðslur skv. 2. flokki umönnunarmats Tryggingastofnunar, en þjónusta á grundvelli laga um félagsþjónustu sveitarfélaga miðast við 3. flokk umönnunarmats. Vísað til byggðarráðs.
    Bókun fundar Afgreiðsla 47. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Félagsmála- og tómstundanefnd - 47 Lögð er fram tillaga að gjaldskrá íþróttamannvirkja fyrir árið 2027. Breytingarnar fela almennt í sér um 2,5% hækkun í samræmi við fjárhagsramma. Helstu breytingar eru eftirfarandi:

    - Gjaldskrárliðir íþróttasala, gervigrasvallar, búnaðarleigu og almennra sundmiða hækka um 2,5% að jafnaði.
    - Gjald fyrir börn 0?6 ára helst óbreytt (0 kr.) og handhafar þjónustukorta Skagafjarðar hafa áfram endurgjaldslausan aðgang að sundlaugum.
    - Árskort í sund lækka um 6,4% (úr 42.600 kr. í 39.900 kr.) til að hvetja til reglulegrar hreyfingar, samveru og lýðheilsu.
    - Stakt sundgjald hækkar um 7,1% og 10 miða kort fullorðinna hækka um 7,4% sem vegur á móti lækkun á árskortum.

    Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir samhljóða að leggja til við byggðarráð að fyrirliggjandi gjaldskrá íþróttamannvirkja fyrir árið 2027 verði samþykkt með áorðnum breytingum. Málinu er vísað til byggðarráðs til afgreiðslu.
    Bókun fundar Afgreiðsla 47. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Félagsmála- og tómstundanefnd - 47 Lögð er fram tillaga að endurskoðaðri gjaldskrá Húss frítímans fyrir árið 2027. Gjaldskráin tekur mið af 2,5% hækkun í samræmi við fjárhagsramma á almennum leiguliðum, en gjald vegna gistingar íþróttafélaga helst óbreytt.
    Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir samhljóða að leggja til við byggðarráð að framlögð gjaldskrá verði samþykkt. Málinu er vísað til byggðarráðs.
    Bókun fundar Afgreiðsla 47. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Félagsmála- og tómstundanefnd - 47 Fyrir liggur vísun frá 48. fundi atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar vegna verðs á sameiginlegum miðum í sundlaugar og á Byggðasafn Skagfirðinga fyrir árið 2027.
    Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir samhljóða fyrir sitt leyti framlagðan gjaldskrárlið vegna sameiginlegra miða (sund og söfn), í samræmi við afgreiðslu á gjaldskrá íþróttamannvirkja í lið 9. Málinu er vísað til byggðarráðs.
    Bókun fundar Afgreiðsla 47. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Félagsmála- og tómstundanefnd - 47 Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir samhljóða að leggja til við byggðarráð að grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar frá 1. janúar 2027 miðist áfram við 9. gr. reglna Skagafjarðar um fjárhagsaðstoð, þ.e. 80,4% af atvinnuleysisbótum í nóvember 2026. Vísað til byggðarráðs. Bókun fundar Afgreiðsla 47. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Félagsmála- og tómstundanefnd - 47 Lagt er fram erindi Rótarýklúbbs Sauðárkróks um afnot af íþróttahúsinu á Sauðárkróki endurgjaldslaust þann 28. nóvember 2026 vegna hins árlega jólahlaðborðs klúbbsins.
    Félagsmála- og tómstundanefnd fagnar framtaki Rótarýklúbbsins og samþykkir samhljóða endurgjaldslaus afnot af íþróttahúsinu fyrir viðburðinn, enda er hann öllum opinn og án endurgjalds. Í ákvörðun sinni vísar nefndin til 4. gr. reglna um útleigu á íþróttahúsum þar sem ljóst er að ekki er hægt að halda viðburðinn í öðru húsnæði í sveitarfélaginu.
    Bókun fundar Afgreiðsla 47. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Félagsmála- og tómstundanefnd - 47 Fyrir liggur erindi þar sem óskað er eftir að notkun farsíma og annarra snjalltækja verði alfarið bönnuð í búningsklefum og á laugarsvæðum í sundlaugum Skagafjarðar.
    Félagsmála- og tómstundanefnd þakkar fyrir ábendinguna. Nefndin áréttar að hvers kyns símanotkun, myndatökur og upptökur eru stranglega bannaðar í búningsklefum og sturtum í þágu friðhelgi einkalífs, samanber núgildandi reglur um sundlaugar í Skagafirði. Á opnum laugarsvæðum telur nefndin hins vegar ekki rétt að leggja á allsherjarbann við símanotkun, enda nýta margir gestir snjalltæki í hljóði með heyrnartólum til hlustunar eða lestrar án þess að valda öðrum ónæði.
    Nefndin leggur ríka áherslu á að snjalltækjanotkun megi aldrei draga úr virkri athygli og gæslu forráðamanna og minnir sérstaklega á skyldu þeirra til að hafa óskipta athygli á börnum sínum við laugar. Leiðtoga frístunda- og íþróttamála er falið að yfirfara og skerpa á merkingum við innganga og í klefum í samræmi við þetta.
    Bókun fundar Jóhanna Ey Harðardóttir vék af fundi við afgreiðslu þessa máls.

    Afgreiðsla 47. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með átta atkvæðum.
  • Félagsmála- og tómstundanefnd - 47 Lagðar fram til kynningar tvær fundargerðir, nr. 51 frá 31. ágúst 2026 og nr. 52 frá 14. september 2026. Bókun fundar Afgreiðsla 47. fundar félagsmála- og tómstundanefndar var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.