Fara í efni

Lokun sundlaugar HSN

Málsnúmer 2610122

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Skagafjarðar - 54. fundur - 14.10.2026

Magnús Barðdal Reynisson, sveitarstjóri kvaddi sér hljóðs og lagði fram sameiginlega ályktun sveitarstjórnar vegna lokunar sundlaugar Heilbrigðisstofnunar Norðurlands á Sauðárkróki.

Sveitarstjórn Skagafjarðar lýsir yfir þungum áhyggjum af lokun endurhæfingarlaugar Heilbrigðisstofnunar Norðurlands á Sauðárkróki og þeim áhrifum sem lokunin hefur á íbúa Skagafjarðar og Norðurlands vestra.
Laugin hefur um árabil gegnt mikilvægu hlutverki í endurhæfingu og heilsueflingu fjölbreytts hóps notenda, meðal annars eldra fólks, einstaklinga með stoðkerfisvanda og skerta hreyfigetu, fatlaðs fólks, barnshafandi kvenna og foreldra með ung börn. Engin önnur sambærileg innilaug er á Norðurlandi vestra og því er ekki um sambærilegan valkost að ræða á svæðinu.
Sveitarstjórn telur sérstaklega mikilvægt að horft verði til þess að mannvirkið er þegar til staðar og hefur verið nýtt til þjónustu sem stuðlar að heilsueflingu, forvörnum og endurhæfingu. Lokun slíkrar þjónustu vegna fjárhagslegs aðhalds kann að leiða til aukinnar þarfar fyrir aðra og kostnaðarsamari heilbrigðisþjónustu.
Sveitarstjórn telur óásættanlegt að nauðsynlegt rekstraraðhald heilbrigðisstofnana leiði til þess að mikilvæg þjónusta við íbúa á landsbyggðinni falli niður án þess að tryggð sé önnur sambærileg þjónusta.
Sveitarstjórn Skagafjarðar skorar því á heilbrigðisráðherra og ríkisstjórn Íslands að tryggja Heilbrigðisstofnun Norðurlands nauðsynlegt fjármagn svo unnt verði að opna endurhæfingarlaugina að nýju og tryggja áframhaldandi starfsemi hennar. Jafnframt óskar sveitarstjórn eftir fundi með heilbrigðisráðherra sem fyrst um málið.
Sveitarstjórn leggur áherslu á að hér er ekki eingöngu um heilbrigðismál að ræða heldur einnig mikilvægt byggða- og jafnréttismál, enda eiga íbúar Norðurlands vestra að hafa raunhæfan aðgang að endurhæfingu og heilsueflandi þjónustu óháð búsetu.

Einar E. Einarsson kvaddi sér hljóðs.

Framlögð ályktun borin upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykkt með níu atkvæðum.