Fara í efni

Byggðarráð Skagafjarðar - 209

Málsnúmer 2609007F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Skagafjarðar - 54. fundur - 14.10.2026

Fundargerð 209. fundar byggðarráðs frá 17. september 2026 var lögð fram til afgreiðslu á 54. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Sveinn Þ. Finster Úlfarsson forseti kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 209 Arnór Hafstað lögmaður sat fundinn í gegnum fjarfundarbúnað.

    Arnór fór yfir helstu málavexti er varða Helgustaði, þar sem fyrir liggur staðbundið hættumat dags. 18. júlí 2024 um ofanflóðahættu á svæðinu.

    Byggðarráð leggur áherslu á að vandað verði til áframhaldandi málsmeðferðar, þar á meðal með samráði við landeigendur, lögreglustjóra, Veðurstofu Íslands, ríkislögreglustjóra og Ofanflóðanefnd eftir því sem við á.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela lögmanni að vinna málið áfram í samráði við sveitarstjóra.
    Bókun fundar Afgreiðsla 209. fundar byggðarráðs var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 209 Lögð fram drög að samningi milli sveitarfélagsins Skagafjarðar og Drangeyjarferða ehf. um nýtingu Drangeyjar til ferðaþjónustu. Málið var áður til umfjöllunar á fundi byggðarráðs 27. ágúst 2026 þar sem sveitarstjóra var falið að vinna málið áfram og leggja fyrir byggðarráð að nýju.

    Samningurinn hefur verið yfirfarinn af lögmanni sveitarfélagsins og lagður fram til samþykktar.

    Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagðan samning með áorðnum breytingum og felur sveitarstjóra að leggja hann fyrir fulltrúa Drangeyjarferða ehf. til undirritunar og undirrita hann fyrir hönd Sveitarfélagsins Skagafjarðar.
    Bókun fundar Jóhanna Ey Harðardóttir vék af fundi við afgreiðslu þessa máls.

    Afgreiðsla 209. fundar byggðarráðs var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með átta atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 209 Fært í trúnaðarbók. Bókun fundar Afgreiðsla 209. fundar byggðarráðs var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 209 Lagt fram erindi Ólínu Bjarkar Hjartardóttur vegna árlegrar kvöldopnunar á Aðalgötu þann 13. október nk. Óskað er eftir leyfi til að loka hluta Aðalgötu (frá Ráðhúsi) á milli kl. 20:00 og 22:00.

    Byggðarráð samþykkir erindið samhljóða að því tilskildu að lokun fari fram í samráði við lögreglu.
    Bókun fundar Afgreiðsla 209. fundar byggðarráðs var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 209 Lagður fram tölvupóstur frá Hafdísi Einarsdóttur, formanns björgunarsveitarinnar Skagfirðingasveitar, dagsettur 9. september 2026.

    Í tölvupóstinum fer hún þess á leit fyrir hönd Skagfirðingasveitar að veitt verði leyfi til að setja upp stuðlabergs-stein austast við brimvarnargarðinn með Strandveginum á Sauðárkróki. Fyrirhugað er að setja skjöld með QR-kóða sem leiðir inn á heimasíðu Skagfirðingasveitar auk smá fróðleiks framan á steininn, m.a. um sjóskaða á Skagafirði, um björgunarsveitirnar og störf þeirra.

    Byggðarráð tekur jákvætt í erindið og felur sveitarstjóra að afla frekari upplýsinga um málið.
    Bókun fundar Afgreiðsla 209. fundar byggðarráðs var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 209 Lögð fram umsagnarbeiðni Sýslumannsins á Norðurlandi vestra vegna umsóknar Sveins Þ. Finster Úlfarssonar fyrir hönd 1001 minks ehf., kt. 691203-3360, um rekstrarleyfi fyrir gististað í flokki II-H (frístundahús) að Spegilshúsinu, Ytri-Ingveldarstöðum (fastanr. F213-9882), með hámarksgestafjölda tvo gesti.

    Byggðarráð gerir ekki athugasemd við veitingu leyfisins að því tilskildu að öllum lagalegum skilyrðum og kröfum annarra umsagnaraðila sé fullnægt.

    Samþykkt samhljóða.
    Bókun fundar Sveinn Þ. Finster Úlfarsson vék af fundi við afgreiðslu þessa máls og Sólborg Sigurrós Borgarsdóttir tók við stjórn fundarins.

    Afgreiðsla 209. fundar byggðarráðs var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með átta atkvæðum.

    Sveinn Þ. Finster Úlfarsson tók aftur við stjórn fundarins.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 209 Lögð fram umsagnarbeiðni Sýslumannsins á Norðurlandi vestra vegna umsóknar Bjarna Jónssonar fyrir hönd Lifandi náttúru ehf., kt. 690925-0790, um rekstrarleyfi fyrir gististað í flokki II-G (íbúð) að Brúsabyggð 14, Hólum í Hjaltadal (fastanr. F214-2813), með hámarksgestafjölda sex gesti.

    Byggðarráð gerir ekki athugasemd við veitingu leyfisins að því tilskildu að öllum lagalegum skilyrðum og kröfum annarra umsagnaraðila sé fullnægt.

    Samþykkt samhljóða.
    Bókun fundar Afgreiðsla 209. fundar byggðarráðs var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.
  • Byggðarráð Skagafjarðar - 209 Lagt fram til kynningar bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsett 8. september 2026. Sambandið vill vekja máls á mikilvægi þess að skipa í lögbundin notendaráð sveitarfélaga þ.e. samráðshóp í málefnum fatlaðs fólks, öldungaráð og ungmennaráð. Bókun fundar Afgreiðsla 209. fundar byggðarráðs var staðfest á 54. fundi sveitarstjórnar 14. október 2026 með níu atkvæðum.