Byggðarráð Skagafjarðar
Dagskrá
1.Helgustaðir L192697 í Unadal - Fyrirspurn um breytta notkun.
Málsnúmer 2312156Vakta málsnúmer
2.Beiðni um samning vegna nýtingar Drangeyjar
Málsnúmer 2608086Vakta málsnúmer
Lögð fram drög að samningi milli sveitarfélagsins Skagafjarðar og Drangeyjarferða ehf. um nýtingu Drangeyjar til ferðaþjónustu. Málið var áður til umfjöllunar á fundi byggðarráðs 27. ágúst 2026 þar sem sveitarstjóra var falið að vinna málið áfram og leggja fyrir byggðarráð að nýju.
Samningurinn hefur verið yfirfarinn af lögmanni sveitarfélagsins og lagður fram til samþykktar.
Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagðan samning með áorðnum breytingum og felur sveitarstjóra að leggja hann fyrir fulltrúa Drangeyjarferða ehf. til undirritunar og undirrita hann fyrir hönd Sveitarfélagsins Skagafjarðar.

3.Umsókn um styrk til greiðslu fasteignaskatts
Málsnúmer 2609074Vakta málsnúmer
Fært í trúnaðarbók.
4.Kvöldopnun í Aðalgötunni
Málsnúmer 2609122Vakta málsnúmer
Lagt fram erindi Ólínu Bjarkar Hjartardóttur vegna árlegrar kvöldopnunar á Aðalgötu þann 13. október nk. Óskað er eftir leyfi til að loka hluta Aðalgötu (frá Ráðhúsi) á milli kl. 20:00 og 22:00.
Byggðarráð samþykkir erindið samhljóða að því tilskildu að lokun fari fram í samráði við lögreglu.
Byggðarráð samþykkir erindið samhljóða að því tilskildu að lokun fari fram í samráði við lögreglu.
5.Beiðni um uppsetningu á steini
Málsnúmer 2609080Vakta málsnúmer
Lagður fram tölvupóstur frá Hafdísi Einarsdóttur, formanns björgunarsveitarinnar Skagfirðingasveitar, dagsettur 9. september 2026.
Í tölvupóstinum fer hún þess á leit fyrir hönd Skagfirðingasveitar að veitt verði leyfi til að setja upp stuðlabergs-stein austast við brimvarnargarðinn með Strandveginum á Sauðárkróki. Fyrirhugað er að setja skjöld með QR-kóða sem leiðir inn á heimasíðu Skagfirðingasveitar auk smá fróðleiks framan á steininn, m.a. um sjóskaða á Skagafirði, um björgunarsveitirnar og störf þeirra.
Byggðarráð tekur jákvætt í erindið og felur sveitarstjóra að afla frekari upplýsinga um málið.

6.Spegilshúsið Ytri-Ingveldarstaðir F213-9882 - Umsagnarbeiðni um rekstrarleyfi
Málsnúmer 2609064Vakta málsnúmer
Lögð fram umsagnarbeiðni Sýslumannsins á Norðurlandi vestra vegna umsóknar Sveins Þ. Finster Úlfarssonar fyrir hönd 1001 minks ehf., kt. 691203-3360, um rekstrarleyfi fyrir gististað í flokki II-H (frístundahús) að Spegilshúsinu, Ytri-Ingveldarstöðum (fastanr. F213-9882), með hámarksgestafjölda tvo gesti.
Byggðarráð gerir ekki athugasemd við veitingu leyfisins að því tilskildu að öllum lagalegum skilyrðum og kröfum annarra umsagnaraðila sé fullnægt.
Samþykkt samhljóða.
Byggðarráð gerir ekki athugasemd við veitingu leyfisins að því tilskildu að öllum lagalegum skilyrðum og kröfum annarra umsagnaraðila sé fullnægt.
Samþykkt samhljóða.
7.Brúsabyggð 14 Hólum F2142813 - Umsagnarbeiðni um rekstrarleyfi
Málsnúmer 2609075Vakta málsnúmer
Lögð fram umsagnarbeiðni Sýslumannsins á Norðurlandi vestra vegna umsóknar Bjarna Jónssonar fyrir hönd Lifandi náttúru ehf., kt. 690925-0790, um rekstrarleyfi fyrir gististað í flokki II-G (íbúð) að Brúsabyggð 14, Hólum í Hjaltadal (fastanr. F214-2813), með hámarksgestafjölda sex gesti.
Byggðarráð gerir ekki athugasemd við veitingu leyfisins að því tilskildu að öllum lagalegum skilyrðum og kröfum annarra umsagnaraðila sé fullnægt.
Samþykkt samhljóða.
Byggðarráð gerir ekki athugasemd við veitingu leyfisins að því tilskildu að öllum lagalegum skilyrðum og kröfum annarra umsagnaraðila sé fullnægt.
Samþykkt samhljóða.
8.Notendaráð sveitarfélaga
Málsnúmer 2609072Vakta málsnúmer
Lagt fram til kynningar bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsett 8. september 2026. Sambandið vill vekja máls á mikilvægi þess að skipa í lögbundin notendaráð sveitarfélaga þ.e. samráðshóp í málefnum fatlaðs fólks, öldungaráð og ungmennaráð.
Fundi slitið - kl. 10:15.
Arnór fór yfir helstu málavexti er varða Helgustaði, þar sem fyrir liggur staðbundið hættumat dags. 18. júlí 2024 um ofanflóðahættu á svæðinu.
Byggðarráð leggur áherslu á að vandað verði til áframhaldandi málsmeðferðar, þar á meðal með samráði við landeigendur, lögreglustjóra, Veðurstofu Íslands, ríkislögreglustjóra og Ofanflóðanefnd eftir því sem við á.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela lögmanni að vinna málið áfram í samráði við sveitarstjóra.