Fara í efni

Brúsabyggð 14 Hólum F2142813 - Umsagnarbeiðni um rekstrarleyfi

Málsnúmer 2609075

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Skagafjarðar - 209. fundur - 17.09.2026

Lögð fram umsagnarbeiðni Sýslumannsins á Norðurlandi vestra vegna umsóknar Bjarna Jónssonar fyrir hönd Lifandi náttúru ehf., kt. 690925-0790, um rekstrarleyfi fyrir gististað í flokki II-G (íbúð) að Brúsabyggð 14, Hólum í Hjaltadal (fastanr. F214-2813), með hámarksgestafjölda sex gesti.

Byggðarráð gerir ekki athugasemd við veitingu leyfisins að því tilskildu að öllum lagalegum skilyrðum og kröfum annarra umsagnaraðila sé fullnægt.

Samþykkt samhljóða.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 94. fundur - 18.09.2026

Lagður fram tölvupóstur, dagsettur 9. september 2026 frá sýslumannsembættinu á Norðurlandi vestra úr máli nr. 2026-061723. Með vísan til 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, 26. og 27. gr. reglugerðar nr. 1277/2016 þar sem óskað er umsagnar byggingarfulltrúa varðandi umsókn Bjarna Jónssonar f.h. Lifandi náttúra ehf. um leyfi til að reka gististað í flokki II - G íbúðir í parhúsi, F2142813 sem stendur á lóðinni númer 14 við Brúsabyggð á Hólum í Hjaltadal. Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við umsóknina.