Fara í efni

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

94. fundur 18. september 2026 kl. 08:15 - 09:00 í Ráðhúsi, Skr.
Nefndarmenn
  • Einar Andri Gíslason byggingarfulltrúi
  • Sigurður Óli Ólafsson starfsmaður byggingarfulltrúa
Fundargerð ritaði: Einar Andri Gíslason byggingarfulltrúi
Dagskrá

1.Borgarflöt 9 (01-0107) - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi

Málsnúmer 2609077Vakta málsnúmer

Þórir Guðmundsson byggingarfræðingur sækir f.h. Mið-Mós ehf. um leyfi til að setja upp milliloft í fjöleignarhúsi, geymsluhúsnæði með fasteignanúmerið F2538815, eining 0107 sem stendur á lóðinni númer 9 við Borgarflöt á Sauðárkróki. Framlagður aðaluppdráttur gerður af umsækjanda. Uppdráttur í verki HA26170, númer A-101, dagsettur 31.08.2026. Framkvæmdin fellur undir umfangsflokk 1. skv. gr. 1.3.2. í byggingarreglugerð. Byggingaráform samþykkt.

2.Hólar skólahús F2142788 - Umsagnarbeiðni um rekstrarleyfi

Málsnúmer 2609041Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur, dagsettur 4. september 2026 frá sýslumannsembættinu á Norðurlandi vestra úr máli nr. 2026-060606. Með vísan til 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, 26. og 27. gr. reglugerðar nr. 1277/2016 þar sem óskað er umsagnar byggingarfulltrúa varðandi umsókn Ingu Dóru Þórarinsdóttur f.h. Austan Vatna ehf. um leyfi til reksturs veitingaleyfis í flokki II - A, veitingahús í mhl. 09 0101, matstofu Hólaskóla, F2142788 að Hólum í Hjaltadal. Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við umsóknina.

3.Spegilshúsið Ytri-Ingveldarstaðir F213-9882 - Umsagnarbeiðni um rekstrarleyfi

Málsnúmer 2609064Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur, dagsettur 8. september 2026 frá sýslumannsembættinu á Norðurlandi vestra úr máli nr. 2026-061337. Með vísan til 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, 26. og 27. gr. reglugerðar nr. 1277/2016 þar sem óskað er umsagnar byggingarfulltrúa varðandi umsókn Sveins Þ. Finster Úlfarssonar f.h. 1001 minks ehf. um leyfi til að reka gististað í flokki II - H frístundahús í mhl. 02 0101, gestahúsi, F2139882 sem stendur á lóðinni Ytri-Ingveldarstöðum, L145944 á Reykjarströnd. Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við umsóknina.

4.Brúsabyggð 14 Hólum F2142813 - Umsagnarbeiðni um rekstrarleyfi

Málsnúmer 2609075Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur, dagsettur 9. september 2026 frá sýslumannsembættinu á Norðurlandi vestra úr máli nr. 2026-061723. Með vísan til 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, 26. og 27. gr. reglugerðar nr. 1277/2016 þar sem óskað er umsagnar byggingarfulltrúa varðandi umsókn Bjarna Jónssonar f.h. Lifandi náttúra ehf. um leyfi til að reka gististað í flokki II - G íbúðir í parhúsi, F2142813 sem stendur á lóðinni númer 14 við Brúsabyggð á Hólum í Hjaltadal. Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við umsóknina.

Fundi slitið - kl. 09:00.