Fara í efni

Hólar skólahús F2142788 - Umsagnarbeiðni um rekstrarleyfi

Málsnúmer 2609041

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Skagafjarðar - 208. fundur - 10.09.2026

Lagt er fram erindi frá Sýslumanninum á Norðurlandi vestra, dags. 4. september 2026, þar sem óskað er eftir umsögn sveitarfélagsins vegna umsóknar Austan Vatna ehf., kt. 440225-2170, um rekstrarleyfi í flokki II A (veitingahús) fyrir starfsstöðina Austan Vatna á Hólum (skólahús), fasteignanúmer F2142788, rýmisnúmer 090101. Sótt er um leyfi fyrir allt að 56 gesti og afgreiðslutíma áfengis virka daga frá kl. 11:30 - 23:30 og aðfaranætur frídaga frá kl. 11:00 - 00:00.

Byggðarráð gerir ekki athugasemd við veitingu rekstrarleyfisins og staðfestir, með vísan til 1. tölul. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, að fyrirhuguð starfsemi, staðsetning og afgreiðslutími séu í samræmi við gildandi skipulag og reglur sveitarfélagsins, enda liggi fyrir jákvæðar umsagnir og samþykki annarra umsagnaraðila.