Spegilshúsið Ytri-Ingveldarstaðir F213-9882 - Umsagnarbeiðni um rekstrarleyfi
Málsnúmer 2609064
Vakta málsnúmerAfgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 94. fundur - 18.09.2026
Lagður fram tölvupóstur, dagsettur 8. september 2026 frá sýslumannsembættinu á Norðurlandi vestra úr máli nr. 2026-061337. Með vísan til 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, 26. og 27. gr. reglugerðar nr. 1277/2016 þar sem óskað er umsagnar byggingarfulltrúa varðandi umsókn Sveins Þ. Finster Úlfarssonar f.h. 1001 minks ehf. um leyfi til að reka gististað í flokki II - H frístundahús í mhl. 02 0101, gestahúsi, F2139882 sem stendur á lóðinni Ytri-Ingveldarstöðum, L145944 á Reykjarströnd. Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við umsóknina.
Byggðarráð gerir ekki athugasemd við veitingu leyfisins að því tilskildu að öllum lagalegum skilyrðum og kröfum annarra umsagnaraðila sé fullnægt.
Samþykkt samhljóða.