Lagður fram tölvupóstur frá Hafdísi Einarsdóttur, formanns björgunarsveitarinnar Skagfirðingasveitar, dagsettur 9. september 2026.
Í tölvupóstinum fer hún þess á leit fyrir hönd Skagfirðingasveitar að veitt verði leyfi til að setja upp stuðlabergs-stein austast við brimvarnargarðinn með Strandveginum á Sauðárkróki. Fyrirhugað er að setja skjöld með QR-kóða sem leiðir inn á heimasíðu Skagfirðingasveitar auk smá fróðleiks framan á steininn, m.a. um sjóskaða á Skagafirði, um björgunarsveitirnar og störf þeirra.
Byggðarráð tekur jákvætt í erindið og felur sveitarstjóra að afla frekari upplýsinga um málið.