Fara í efni

Helgustaðir L192697 í Unadal - Fyrirspurn um breytta notkun.

Málsnúmer 2312156

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Skagafjarðar - 209. fundur - 17.09.2026

Arnór Hafstað lögmaður sat fundinn í gegnum fjarfundarbúnað.

Arnór fór yfir helstu málavexti er varða Helgustaði, þar sem fyrir liggur staðbundið hættumat dags. 18. júlí 2024 um ofanflóðahættu á svæðinu.

Byggðarráð leggur áherslu á að vandað verði til áframhaldandi málsmeðferðar, þar á meðal með samráði við landeigendur, lögreglustjóra, Veðurstofu Íslands, ríkislögreglustjóra og Ofanflóðanefnd eftir því sem við á.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela lögmanni að vinna málið áfram í samráði við sveitarstjóra.