Sveitarstjórn Skagafjarðar
1.Byggðarráð Skagafjarðar - 141
Málsnúmer 2504006FVakta málsnúmer
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 141 Hjörvar Halldórsson, sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lagt fram bréf frá Foreldraráði leikskólans Ársala, dagsett 20. mars sl., þar sem viðraðar eru áhyggjur af lóð leikskólans sem ætluð er fyrir útiveru eldri árganga. Að sögn foreldra verður lóðin eitt drullusvað á vorin og borið hefur á vatnssöfnun á lóðinni og við leiktæki. Einnig hefur eitt leiktæki verið fjarlægt vegna skemmda og tvö vegna slysahættu, en ekki hafa komið leiktæki í stað þeirra sem tekin voru niður.
Einnig var lagt fram minnisblað frá umsjónarmanni eignarsjóðs, dagsett 7. apríl 2025 þar sem bornar eru upp tillögur til úrbóta á leikskólalóðinni.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs að útfæra nánar úrlausnir og kostnaðaráætlun vegna úrbóta á leikskólalóð Ársala. Málið verður tekið fyrir að nýju þegar uppfærðar tillögur frá sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs liggja fyrir. Bókun fundar Afgreiðsla 141. fundar byggðarráðs staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 141 Lagt fram bréf frá Eingarhaldsfélaginu Brunabótafélagi Íslands, dagsett 2. apríl 2025, sem sent var til aðildarsveitarfélaga EBÍ. Í bréfinu er vakin athygli á því að sveitarfélögum stendur til boða að sækja um framlög úr sjóðnum. Styrktarsjóður EBÍ var stofnaður árið 1996 og er tilgangur sjóðsins að styrkja með fjárframlögum sérstakar athuganir eða rannsóknir á ýmsum þróunarþáttum í atvinnulífi, samgöngum, fræðslu- og menningarmálum í aðildarsveitarfélögum EBÍ. Ekki er hægt að sækja um styrk vegna almennra rekstrarverkefna sveitarfélaga. Frestur til að sækja um styrk úr sjóðnum er til 30. apríl n.k.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að vinna útfærslur í samræmi við umræður á fundinum. Bókun fundar Afgreiðsla 141. fundar byggðarráðs staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 141 Lagt fram aðalfundarboð frá Landskerfi bókasafna hf., dagsett 2. apríl 2025, vegna aðalfundar félagsins þann 6. maí 2025 í Reykjavík.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela Kristínu Einarsdóttur héraðsbókaverði að fara með atkvæðisrétt sveitarfélagsins á fundinum. Bókun fundar Afgreiðsla 141. fundar byggðarráðs staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 141 Byggðarráð samþykkir samhljóða að skipt verði út úr landi Hofsóss L218098, landspildu sem skilgreind er á uppdrætti sem gerður hefur verið af Stoð ehf, verkfræðistofu. Uppdráttur „RÆKTUNARLÖND HOFSÓSI“ Verknr.416302, uppdráttur nr. S01, dagsettur 21. júní 2016, breyting: nr. 4, dagsett 22.10.2024.
Landið sem um ræðir er hólf nr. 23, austan Hofsóss, sunnan Deildardalsafleggjara, þar skráð 15,8 ha.
Byggðarráð felur sveitarstjóra jafnframt að láta vinna merkjalýsingu og önnur tilskilin gögn í samræmi við gildandi reglur og reglugerð nr. 160/2024.
Frestur til að bjóða í framangreint hólf nr. 23 austan Hofsóss, sem auglýst var til sölu þann 14. mars sl., rann út 31. mars sl. Fjórir aðilar buðu í hólfið og var hæstbjóðandi Rúnar Páll Dalmann Hreinsson sem bauð kr. 5.200.000 fyrir það.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að ganga að kauptilboði Rúnars Páls Dalmanns Hreinssonar og felur sveitarstjóra að ganga frá sölunni í kjölfar útskiptingar og stofnunar landspildunnar.
Bókun fundar Afgreiðsla 141. fundar byggðarráðs staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 141 Málið var áður á dagskrá 134. fundar byggðarráðs þann 19. febrúar sl. sem vísaði málinu til afgreiðslu félagsmála- og tómstundanefndar. Málinu er nú vísað frá 33. fundi félagsmála- og tómstundanefndar þann 3. apríl sl., þannig bókað:
"Málið áður á dagskrá nefndarinnar þann 6. mars sl., þá bókað: "Pílukastfélag Skagafjarðar hefur síðustu ár leigt húsnæði hér í bænum undir sína íþróttastarfsemi og staðið undir þeim kostnaði sjálft. Kostnaður vegna leigu vegur þungt í rekstri félagsins, sem telur rúmlega 60 skráða iðkendur. Alls eru 24 iðkendur undir 18 ára aldri og af þeim eru 19 á grunnskólaaldri. Félagið heldur úti æfingum fyrir börn undir leiðsögn leiðbeinanda. Félagið fékk formlega inngöngu í UMSS á síðasta ársþingi þess. Pílukastfélag Skagafjarðar óskar eftir styrk frá Skagafirði til niðurgreiðslu leigu húsnæðis sem félagið hefur haft á leigu undanfarin ár. Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir samhljóða að fela starfsmönnum nefndarinnar að boða forsvarsmenn Pílukastfélags Skagafjarðar á næsta fund nefndarinnar."
Forsvarsmenn Pílukastfélags Skagafjarðar, þeir Atli Víðir Arason, Arnar Geir Hjartarson, Þröstur Kárason og Ingvi Þór Óskarsson komu á fund nefndarinnar og kynntu starfsemi Pílukastfélagsins. Nefndin fagnar starfsemi félagsins og leggur til við byggðarráð að samþykkt verði að greiða styrk út ágúst 2025 að upphæð 35.000 kr. á mánuði. Nefndin felur byggðarráði að ákvarða upphaf styrktímabils. Samþykkt samhljóða og vísað til byggðarráðs."
Byggðarráð samþykkir samhljóða að upphaf styrktímabils verði 1. mars sl. Styrkurinn greiðist af málaflokk 06890. Bókun fundar Afgreiðsla 141. fundar byggðarráðs staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 141 Máli vísað frá 33. fundi félagsmála- og tómstundanefndar þann 3. apríl sl., þannig bókað:
"Innviðaráðherra auglýsir nú eftir umsóknum um framlög sem veitt eru á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2022-2036 vegna verkefna sem tengjast aðgerð A. 10 Almenningssamgöngur á milli byggða. Við forgangsröðun umsókna verður litið til verkefna sem m.a. auka möguleika ungs fólks á dreifbýlum svæðum til að sækja íþrótta- og menningarstarfsemi. Umsóknarfrestur er til 5. maí 2025.
Félagsmála- og tómstundanefnd samþykkir samhljóða að leggja til við byggðarráð að sótt verði um framlög til verkefna sem tengjast bættum samgöngum sem gagnast ungu fólki á dreifbýlum svæðum til að sækja íþrótta- og menningarstarfsemi. Samþykkt samhljóða og vísað til byggðarráðs."
Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sviðsstjóra fjölskyldusviðs að sækja um í sjóðinn vegna reksturs frístundaaksturs til íþróttaiðkunar ungmenna í Skagafirði. Bókun fundar Afgreiðsla 141. fundar byggðarráðs staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 141 Vísað frá 33. fundi félagsmála- og tómstundanefndar þann 3. apríl sl., þannig bókað:
"Niðurstöður könnunar sem send var forráðamönnum iðkenda á vegum Smárans, Neista og Hjalta í árgöngum 2009-2014 lagðar fram. Alls bárust 25 svör. Niðurstöður sýna að almenn ánægja sé með fyrirkomulag frístundaaksturs og leggur nefndin til við byggðarráð að óbreytt fyrirkomulag verði viðhaft næstkomandi skólaár og óskar eftir því að verkefnið fái fjármögnun með viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2025 fyrir haustönn 2025. Nefndin felur starfsfólki nefndarinnar að vinna málið áfram með hlutaðeigandi aðilum og biðlar til skólastjórnenda að hafa frístundaakstur í huga við skipulag skólastarfs skólaársins 2025-2026. Samþykkt samhljóða. Vísað til byggðarráðs."
Byggðarráð samþykkir samhljóða að viðhafa sama fyrirkomulag á frístundaakstri og verið hefur og felur sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs að undirbúa viðauka vegna málsins. Bókun fundar Afgreiðsla 141. fundar byggðarráðs staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkvæðum. - 1.8 2503348 Samráð; Reglugerð um 13. breytingu á reglugerð nr 745 2016 um vigtun og skráningu sjávaraflaByggðarráð Skagafjarðar - 141 Atvinnuvegaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 65/2025, "Reglugerð um 13. breytingu á reglugerð nr. 745/2016 um vigtun og skráningu sjávarafla".
Umsagnarfrestur er til og með 08.04.2025. Bókun fundar Afgreiðsla 141. fundar byggðarráðs staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 141 Lagt fram til kynningar bréf frá Eingarhaldsfélaginu Brunabótafélagi Íslands, dagsett 2. apríl 2025, sem sent var til aðildarsveitarfélaga EBÍ. Í bréfinu er vakin athygli á því að á aukafundi fulltrúaráðs EBÍ þann 19. mars sl. var lögð fram og samþykkt tillaga að nýjum samþykktum fyrir EBÍ. Bókun fundar Afgreiðsla 141. fundar byggðarráðs staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkvæðum.
2.Byggðarráð Skagafjarðar - 142
Málsnúmer 2504015FVakta málsnúmer
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 142 Mál síðast á dagskrá 136. fundar byggðarráðs þann 5. mars sl. Þá samþykkti byggðarráð samhljóða að svara innkomnu tilboði í fasteignina Háholt með gagntilboði sem tilboðsgjafi féllst á. Tilboðið var háð fyrirvara um fjármögnun og var frestur til að sýna fram á fjármögnun til 14. apríl sl. Kaupanda tókst ekki að sýna fram á fjármögnun fyrir tilskilinn frest og þarf því að taka stöðu til næstu skrefa í þessu máli.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að auglýsa Háholt til sölu á ný. Bókun fundar Afgreiðsla 142. fundar byggðarráðs staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 142 Lögð fram afskriftarbeiðni frá sýslumannsembættinu á Norðurlandi vestra dagsett 7. apríl 2025. Í beiðninni er óskað eftir afskrift á þing- og sveitarsjóðsgjöldum að upphæð 19.831 krónu auk 12.155 króna í dráttarvexti. Samtals er það afskrift að upphæð 31.986 krónum með dráttarvöxtum.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að afskrifa framangreind gjöld. Bókun fundar Afgreiðsla 142. fundar byggðarráðs staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 142 Lagður fram tölvupóstur frá sýslumannsembættinu á Norðurlandi vestra, dagsettur 11. apríl 2025 þar sem óskað er umsagnar um umsókn Snorra Snorrasonar, kt. 280470-3179 fyrir hönd fyrirtækisins Tenor slf., kt. 650111-0520 um leyfi til að reka gististað í flokki III - E Fjallaskáli í Menningarhúsinu Miðgarði, 560 Varmahlíð, fasteignanúmer F2140833.
Byggðarráð leggst gegn umræddri leyfisveitingu með hliðsjón af fjölda gesta sem sótt er um leyfi fyrir ásamt flokkun gististaðar. Bókun fundar Afgreiðsla 142. fundar byggðarráðs staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 142 Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 268. mál - Verndar- og orkunýtingaráætlun (bætt málsmeðferð og aukin skilvirkni).
Frestur til að senda inn umsögn er til og með 23. apríl nk.
Byggðarráð fagnar framkomnu frumvarpi og markmiði þess um að gera ferli rammaáætlunar skilvirkara og með skilgreindum tímafrestum vegna ýmissa þátta við meðferð mála í áætluninni, án þess að dregið sé úr faglegum kröfum. Nauðsynlegt er að ráðast í aukna orkuöflun þar sem það á við til að styðja við orkuöryggi, orkuskipti og verðmætasköpun um land allt. Brýnt er í ljósi óvissu sem uppi er vegna áhrifa jarðhræringa á virkjanir og virkjanakosti og vegna orkuöryggis þjóðarinnar að litið sé til hagkvæmra virkjanakosta utan eldvirkra svæða.
Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir fyrir hönd VG og óháðra óskar bókað:
"VG og óháð telja mikilvægt að lög um verndar- og orkunýtingaráætlun standi vörð um náttúru Íslands og tryggi að ákvarðanir um orkuvinnslu byggi á heildstæðu og faglegu mati á áhrifum á náttúru, menningarminjar og samfélag. Áhersla á skilvirkni í stjórnsýslu má aldrei ganga á kostnað náttúruverndar eða draga úr vönduðum ferlum.
Frumvarpið felur í sér að ráðherra geti veitt undanþágu til matsskyldra orkurannsókna á virkjunarhugmyndum í biðflokki. VG og óháð telja slíka heimild varhugaverða þar sem hún getur grafið undan meginmarkmiðum verndar- og orkunýtingaráætlunar. Slíkar undanþágur opna á framkvæmdaforsendur áður en endanlegt faglegt mat og pólitísk afstaða hafa verið tekin. Það getur leitt til óafturkræfrar röskunar á náttúru áður en ljóst er hvort svæðið hljóti samþykki til nýtingar.
Það er réttmæt krafa að ákvarðanataka sé skilvirk, en frumvarpið leggur ríka áherslu á tímafresti og hraða sem gætu haft áhrif á gæði og vandaða málsmeðferð. VG og óháð minna á að tafir í málsmeðferð rammaáætlunar hafa ítrekað stafað af stjórnmálalegum ákvörðunum eða tregðu Alþingis til að samþykkja tillögur, en ekki af faglegri vinnu verkefnisstjórnar. Það er því misvísandi að lögð sé áhersla á að hraða ferlinu án þess að tryggja að gæði og gagnsæi haldist."
Bókun fundar Vg og óháðir ítreka bókun sína frá fundi byggðarráðs svohljóðandi:
"VG og óháð telja mikilvægt að lög um verndar- og orkunýtingaráætlun standi vörð um náttúru Íslands og tryggi að ákvarðanir um orkuvinnslu byggi á heildstæðu og faglegu mati á áhrifum á náttúru, menningarminjar og samfélag. Áhersla á skilvirkni í stjórnsýslu má aldrei ganga á kostnað náttúruverndar eða draga úr vönduðum ferlum. Frumvarpið felur í sér að ráðherra geti veitt undanþágu til matsskyldra orkurannsókna á virkjunarhugmyndum í biðflokki. VG og óháð telja slíka heimild varhugaverða þar sem hún getur grafið undan meginmarkmiðum verndar- og orkunýtingaráætlunar. Slíkar undanþágur opna á framkvæmdaforsendur áður en endanlegt faglegt mat og pólitísk afstaða hafa verið tekin. Það getur leitt til óafturkræfrar röskunar á náttúru áður en ljóst er hvort svæðið hljóti samþykki til nýtingar. Það er réttmæt krafa að ákvarðanataka sé skilvirk, en frumvarpið leggur ríka áherslu á tímafresti og hraða sem gætu haft áhrif á gæði og vandaða málsmeðferð. VG og óháð minna á að tafir í málsmeðferð rammaáætlunar hafa ítrekað stafað af stjórnmálalegum ákvörðunum eða tregðu Alþingis til að samþykkja tillögur, en ekki af faglegri vinnu verkefnisstjórnar. Það er því misvísandi að lögð sé áhersla á að hraða ferlinu án þess að tryggja að gæði og gagnsæi haldist."
Afgreiðsla 142. fundar byggðarráðs staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 142 Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 271. mál - Stefnur og aðgerðaáætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgöngu og byggðamála (stefnumörkun).
Frestur til að senda inn umsögn er til og með 25. apríl nk.
Byggðarráð Skagafjarðar tekur undir umsögn Byggðastofnunar um að gjalda varhug við að leggja af sérstaka stefnu í byggðamálum sem Alþingi hefur falið ríkisstjórninni að vinna að. Byggðaáætlun er mikilvægt tæki til að vinna að því að innviðir og þjónusta mæti þörfum samfélaga og leitast við að tryggja sjálfbærar byggðir um land allt. Byggðaáætlun byggist á heildstæðri stefnumörkun ráðherra og samhæfingu og samspili við aðrar áætlanir ríkisins. Verklag við gerð byggðaáætlunar hefur reynst vel og því full ástæða til að byggja áframhaldandi þróun á því góða verklagi í stað þess að Alþingi Íslendinga veiki eða leggi sérstaka stefnu í byggðamálum af. Það yrðu dapurleg skilaboð frá þjóðþinginu til samfélaga á landsbyggðinni. Bókun fundar Afgreiðsla 142. fundar byggðarráðs staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 142 Lagt fram til kynningar yfirlit yfir ábendingar sem hafa borist í gegnum ábendingagátt sveitarfélagsins sl. mánuði og viðbrögð við þeim. Bókun fundar Afgreiðsla 142. fundar byggðarráðs staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 142 Lagt fram til kynningar bréf frá Landsneti, dagsett 7. apríl 2025 vegna Blöndulínu 3. Bréfið er sent til allra landeigenda með upplýsingar um hækkun grunnverðs landbóta fyrir hvern hektara. Bókun fundar Afgreiðsla 142. fundar byggðarráðs staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 142 Lagt fram boð á ársfund Náttúruhamfaratryggingar Íslands sem haldinn verður á Grand hótel fimmtudaginn 22. maí nk. Bókun fundar Afgreiðsla 142. fundar byggðarráðs staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkvæðum.
3.Byggðarráð Skagafjarðar - 143
Málsnúmer 2504020FVakta málsnúmer
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 143 Fært í trúnaðarbók Bókun fundar Afgreiðsla 143. fundar byggðarráðs staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 143 Lagt fram bréf dagsett 14. apríl 2025 frá Stapa lífeyrissjóði, þar sem boðað er til ársfundar sjóðsins árið 2025 þann 13. maí 2025 að Hótel Valaskjálf, Egilsstöðum. Byggðarráð samþykkir samhljóða að Sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs sæki fundinn fyrir hönd sveitarfélagsins. Bókun fundar Afgreiðsla 143. fundar byggðarráðs staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 143 Lagður fram tölvupóstur frá sýslumannsembættinu á Norðurlandi vestra, dagsettur 15. apríl 2025, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Reimars Marteinssonar, kt. 180380-5589, fyrir hönd fyrirtækisins Aðalgata 16b ehf., kt. 430522-1750, um leyfi til að reka gististað í flokki II - B Stærra gistiheimili að Suðurbraut 9, 565 Hofsósi, fasteignanúmer: F2143676. Byggðarráð gerir ekki athugasemd við umsóknina. Bókun fundar Afgreiðsla 143. fundar byggðarráðs staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 143 Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 272. mál, Sveitarstjórnarlög (mat á fjárhagslegum áhrifum). Frestur til að senda inn umsögn er til og með 28. apríl nk.
Byggðarráð Skagafjarðar fagnar framlögðu frumvarpi innviðaráðherra um breytingu á sveitarstjórnarlögum, sem hefur í för með sér styrkingu því ákvæði sveitarstjórnarlaga að ef fyrirsjáanlegt er að tillaga að lagafrumvarpi, tillaga að stjórnvaldsfyrirmælum eða aðrar stefnumarkandi ákvarðanir af hálfu stjórnvalda ríkisins hafa fjárhagsleg áhrif á sveitarfélög skuli fara fram sérstakt mat á áhrifum þeirra á fjárhag sveitarfélaga. Er þar m.a. um að ræða eftirfylgni við þingsályktun nr. 2/154 um stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga fyrir árin 2024?2038 og aðgerðaáætlun fyrir árin 2024?2028 sem samþykkt var á Alþingi 5. desember 2023.
Byggðarráð Skagafjarðar hefur ítrekað bent á skort á kostnaðarmati eða að það sé framkvæmt á ófullnægjandi hátt og fagnar því fyrirhuguðum áformum. Eru það ófá skiptin þar sem slík bókun hefur verið gerð. Er það í samræmi við reynslu annarra sveitarfélaga, svo sem sjá má af greinargerð frumvarpsins.
Benda má á nýlegt dæmi um ágreining ríkis og sveitarfélaga varðandi mat á fjárhagslegum áhrifum þingmála á sveitarfélög en þar er um að ræða frumvarp um breytingar á lögum um veiðigjald. Í samræmi við 129. gr. sveitarstjórnarlaga ber ráðuneytum að meta áhrif lagafrumvarpa á sveitarfélög og leita samráðs við þau ef ætla má að áhrif verði á fjárhag eða starfsemi þeirra. Fyrirhugaðar breytingar á veiðigjaldakerfinu geta haft veruleg áhrif á tekjustofna, atvinnulíf og byggðaþróun í sjávarútvegssveitarfélögum. Jafnvel þótt frumvarpinu sé beint að sjávarútvegsfyrirtækjum hefur það bein og óbein áhrif á sveitarfélög þar sem sjávarútvegur er grunnatvinnuvegur. Skortur á mati á fjárhagslegum áhrifum fumvarpsins er í fullkominni andstöðu við framangreindar breytingar á sveitarstjórnarlögum. Í skýrslu starfshóps um feril um kostnaðarmat, sem þær breytingar byggja á, er sérstaklega bent á að horfa skuli til þess við matið hvort ráðstöfun hafi bein eða óbein áhrif á tekjur eða tekjustofna sveitarfélaga. Í sveitarfélagi eins og Skagafirði, þar sem hlutdeild sjávarútvegs í staðgreiðsluskyldum tekjum námu 12,5% árið 2024 og þar sem fjöldi starfsmanna í fiskveiðum og -vinnslu nemur um 200 manns, blasir við að tvöföldun veiðigjalda mun hafa áhrif á tekjur sveitarfélagsins, m.a. í gegnum útsvar.
Það er því afar mikilvægt að samræmt verklag og sameiginlegur skilningur á lagatúlkun og framkvæmd í samræmi við lög komist á. Nauðsynlegt er að framangreint frumvarp eyði út öllum óvissuþáttum og að með bættu lögbundnu áhrifamati fá sveitarfélög skýrari mynd af því hvaða áhrif ný löggjöf og aðrar ákvarðanir stjórnvalda muni hafa á starfsemi þeirra og fjárhag. Mikilvægt er að sveitarfélögum séu veitt úrræði til að knýja á um að fjárhagslegt mat verði unnið án tafar í aðstæðum þar sem slíkt mat hefur ekki verið framkvæmt.
Bókun fundar Afgreiðsla 143. fundar byggðarráðs staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkvæðum.
4.Byggðarráð Skagafjarðar - 144
Málsnúmer 2504025FVakta málsnúmer
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 144 Pacta lögmannsstofa sér um persónuverndarþjónustu sveitarfélagsin og hefur gert um nokkurt skeið. Miklar breytingar hafa orðið á stofunni, meðal annars hefur skrifstofunni á Sauðárkróki verið lokað, fækkað hefur á stofunni á Akureyri. Vegna breyttra aðstæðna núverandi þjónustuaðila var ákveðið að kanna aðra möguleika í stöðunni og vera verðsamanburð hjá öðrum þjónustuveitendum.
Sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs lagði fram samanburð á þremur tilboðum í þjónustuna. Fyrirtækið Sekretum á lægsta tilboðið í þjónustuna en ljóst er að um er að ræða nokkurn kostnaðarauka. Í ljósi þess að sveitarfélagið hefur tekið mikinn kostnaðarauka í viðaukum 1 og 2 við fjárhagsáætlun ársins 2025 þykir ekki skynsamlegt að samþykkja aukinn kostnað verði hjá því komist.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs að ganga til samninga við Sekretum um þjónustuna. Samningar taki gildi 1. janúar 2026. Byggðarráð samþykkir jafnframt samhljóða að vísa málinu til fjárhagsáætlunargerðar fyrir fjárhagsáætlun ársins 2026. Bókun fundar Afgreiðsla 144. fundar byggðarráðs staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 144 Lagt fram bréf dagsett 21. apríl 2025 frá fulltrúum smærri útgerða í Skagafirði þar sem óskað er eftir því að sveitarstjórn Skagafjarðar endurskoði úthlutunarreglur sem birtar hafa verið á vef atvinnuvegaráðuneytisins vegna byggðakvóta til Skagafjarðar.
Byggðarráð Skagafjarðar bendir á að sveitarstjórn Skagafjarðar fær til umsagnar almennar reglur um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa og getur gert tillögur að breytingum, líkt og aðrar sveitarstjórnir. Á slíkt hefur verið látið reyna líkt og bréfriturum er kunnugt um varðandi t.d. vinnsluskyldu og úthlutun kvóta til báta og skipa. Bréfriturum er einnig kunnugt um að á Hvammstanga, Blönduósi og Skagaströnd er ekki fiskvinnsla, ólíkt Sauðárkróki.
Ráðherra getur heimilað á grundvelli rökstuddra tillagna sveitarstjórnar að sett verði sérstök skilyrði fyrir úthlutun aflaheimilda í einstökum byggðarlögum er víkja frá eða eru til viðbótar hinum almennu skilyrðum, enda séu þau byggð á málefnalegum og staðbundnum ástæðum og í samræmi við hagsmuni viðkomandi byggðarlaga.
Þegar tillögur sveitarfélags hafa verið mótteknar í ráðuneytinu eru þær birtar á vef ráðuneytisins í sjö daga og óskað eftir athugasemdum við þær. Á því tímabili geta t.d. aðilar eins og bréfritarar sent inn sínar athugasemdir og röksemdir fyrir öðrum útfærslum. Í kjölfarið tekur ráðuneytið tillögur sveitarstjórnar til efnislegrar meðferðar en það er á endanum ráðherra að taka ákvörðun um hvort hann samþykkir að víkja frá eða samþykkir viðbótar skilyrði við almennar reglur um úthlutun byggðakvóta.
Þessu ferli er öllu lokið hvað varðar úthlutun almenns byggðakvóta vegna fiskveiðiársins 2024-2025 og því ekki á færi sveitarstjórnar Skagafjarðar að endurskoða úthlutunarreglur sem birtar hafa verið á vef atvinnuvegaráðuneytisins.
Bókun fundar Afgreiðsla 144. fundar byggðarráðs staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 144 Lagður fram tölvupóstur frá Markaðsstofu Norðurlands dagsettur 28. apríl sl.
Fulltrúar sveitarfélaga á Norðurlandi vestra annars vegar og Norðurlandi eystra hins vegar áttu nýverið fundi með Markaðsstofu Norðurlands um málefni Flugklasans. Á fundunum kom fram vilji sveitarfélaganna til að þrýsta á stjórnvöld að standa betur að uppbyggingu og markaðssetningu millilandaflugs um Akureyrarflugvöll. Rætt var á fundunum að öll sveitarfélögin myndu setja fram sameiginlega áskorun til stjórnvalda um þessi mál.
Með tölvupóstinum fylgja drög að áskorun á stjórnvöld vegna Flugklasans 66N.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að taka þátt í umræddri áskorun á stjórnvöld vegna Flugklasans 66N. Bókun fundar Afgreiðsla 144. fundar byggðarráðs staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 144 Sólborg Sigurrós Borgarsdóttir vék af fundi við afgreiðslu þessa máls.
Lagður fram tölvupóstur frá sýslumannsembættinu á Norðurlandi vestra, dagsettur 23. apríl 2025 þar sem óskað er umsagnar um umsókn Snorra Snorrasonar, kt. 280470-3179 fyrir hönd fyrirtækisins Tenor slf., kt. 650111-0520 um leyfi til að reka gististað í flokki III - E Gistiskáli í Menningarhúsinu Miðgarði, 560 Varmahlíð, fasteignanúmer F2140833.
Byggðarráð gerir ekki athugasemd við umrædda leyfisveitingu að fenginni jákvæðri umsögn annarra umsagnarskyldra aðila. Bókun fundar Afgreiðsla 144. fundar byggðarráðs staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 144 Lagður fram tölvupóstur frá sýslumannsembættinu á Norðurlandi vestra, dagsettur 23. apríl 2025 þar sem óskað er umsagnar um umsókn Rúnars Más Grétarssonar, kt. 231272-5189 um leyfi til að reka gististað í flokki II - H Frístundahús að Lönguborg, 551 Sauðárkróki, fasteignanúmer F2367151.
Byggðarráð gerir ekki athugasemd við leyfisveitinguna að fenginni jákvæðri umsögn annarra umsagnarskyldra aðila.
Bókun fundar Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir vék af fundi undir afgreiðslu málsins.
Afgreiðsla 144. fundar byggðarráðs staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með átta atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 144 Lagður fram til kynningar ársreikningur 2024 fyrir Náttúrustofu Norðurlands vestra. Bókun fundar Afgreiðsla 144. fundar byggðarráðs staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 144 Lagt fram til kynningar opið bréf til sveitarstjórna dagsett 22. apríl 2025 um vindorkuver. Bókun fundar Afgreiðsla 144. fundar byggðarráðs staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkvæðum.
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 144 Byggðarráð samþykkti á 100. fundi byggðarráðs þann 5. júní 2024 að leggja í vinnu við þróun mælikvarða í rekstri Skagafjarðar og fjárfesta í mælaborði fyrir rekstrartölur. Mælikvarðarnir hafa verið innleiddir og voru samþykktir af sveitarstjórn Skagafjarðar á 32. fundi hennar þann 27. nóvember 2024.
Sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs kynnti stöðuna á mælaborðinu og fór yfir virkni þess. Bókun fundar Afgreiðsla 144. fundar byggðarráðs staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkvæðum.
5.Byggðarráð Skagafjarðar - 145
Málsnúmer 2505001FVakta málsnúmer
-
Byggðarráð Skagafjarðar - 145 Knútur Aadnegard, eigandi Skógargötu 1, ásamt Thelmu Knútsdóttur sátu fundinn undir þessum lið.
Knútur óskaði eftir fundi með byggðarráði vegna Skógargötu 1 og Kaupvangstorgs 1 varðandi frágang á lóðum og bílastæðum samkvæmt nýju skipulagi með tölvupósti dagsettum 30. apríl 2025. Byggðarráð varð við fundarbeiðninni og var málið til umræðu undir þessum dagskrárlið.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að ráðast í hönnun götu á milli Skógargötu og Aðalgötu samkvæmt nýsamþykktu deiliskipulagi fyrir reitinn. Bókun fundar Afgreiðsla 145. fundar byggðarráðs staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 145 Á síðasta ári var rammaáætlun vegna fjárhagsáætlunar 2025 lögð fram snemma sumars. Var það liður í að bæta áætlanagerð sveitarfélagsins og þykir það vinnulag hafa gefist vel. Stefnt er að því að halda áfram uppteknum hætti. Af þessum orsökum voru teknar umræður um forsendur rammaáætlunar 2026.
Umræður teknar um forsendur rammaáætlunar 2026. Tillaga er uppi um að miða við forsendur þjóðhagsspár Hagstofu Íslands frá mars síðastliðnum um 2,7% hækkun verðlags á rekstrarliðum, launaliður tekur mið af kjarasamningsbundnum hækkunum. Grunnur rammaáætlunar verður samþykkt fjárhagsáætlun Skagafjarðar fyrir árið 2025 með þeim tveimur viðaukum sem hafa verið samþykktir. Byggðarráð samþykkir framlagða tillögu samhljóða. Bókun fundar Afgreiðsla 145. fundar byggðarráðs staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 145 Málið var áður á dagskrá 115. fundar byggðarráðs þann 2. október 2024. Þá hafði byggðarráði borist erindi þar sem rannsóknarsetrið hafði farið þess á leit við byggðarráð að gerður yrði samstarfssamningur. Byggðarráð tók jákvætt í erindið og vísaði til fjárhagsáætlunargerðar.
Rannsóknarsetur HÍ á Norðurlandi vestra hefur ítrekað erindið og óskað eftir að það verði tekið fyrir að nýju.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að gera samstarfssamning til eins árs við Rannsóknarsetur HÍ á Norðurlandi vestra sem felur í sér framlag að upphæð 200.000 krónur. Styrkurinn verður tekinn af lið 21890. Bókun fundar Afgreiðsla 145. fundar byggðarráðs staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 145 Lagt fram til umsagnar frumvarp til laga um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, 270. mál, frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis. Umsagnarfrestur er til 13. maí nk.
Byggðarráð Skagafjarðar fagnar tillögum að breytingum á regluverki Jöfnunarsjóðs sem miða að því að bæta gæði jöfnunar og einfalda útreikninga og skipulag sjóðsins. Mikilvægt er að Jöfnunarsjóður sinni með raunverulegum hætti því mikilvæga hlutverki að jafna mismunandi útgjaldaþörf og skattekjur sveitarfélaga með framlögum úr sjóðnum en aðstæður sveitarfélaga landsins eru afar ólíkar, t.d. hvað varðar landstærð, fjölda þéttbýliskjarna, tekjugrundvöll o.fl. Þannig er mikilvægt að jöfnunarkerfið styðji við bakið á meðalstórum sveitarfélögum og þeim sveitarfélögum sem hafa fleiri en einn þéttbýliskjarna og flóknar útgjaldaþarfir. Líklegt er að með auknum sameiningum sveitarfélaga fjölgi fjölkjarna sveitarfélögum sem kljást við sambærilegar áskoranir varðandi þróun þjónustu til íbúa. Byggðarráð leggur ríka áherslu á nauðsyn þess að hafa skýrt og skilvirkt regluverk í kringum jafn mikilvægt verkfæri og Jöfnunarsjóð sveitarfélaga.
Með hliðsjón af nýju framlagi vegna höfuðstaðaálags til sveitarfélaga með borgarvægi, vill byggðarráð Skagafjarðar minna á að nokkur sveitarfélög á landsbyggðinni eru í dag að veita mikla og fjölþætta félagslega þjónustu sem einnig mætti taka tillit til. Rökstyðja þarf betur hverjar þær sérstöku aðstæður eru hjá Reykjavíkurborg og Akureyrarbæ sem kalla á sérstakt framlag umfram það sem ætti að veita til annarra sveitarfélaga vítt og breytt um landið. Einnig kallar álagsprósentan á sérstakan rökstuðning. Bókun fundar Afgreiðsla 145. fundar byggðarráðs staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkvæðum. -
Byggðarráð Skagafjarðar - 145 Lagður fram til kynningar ársreikningur Norðurár bs. fyrir árið 2024. Bókun fundar Afgreiðsla 145. fundar byggðarráðs staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkvæðum.
6.Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 33
Málsnúmer 2504021FVakta málsnúmer
-
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 33 Tekin fyrir styrkbeiðni frá stjórn Byggjum upp Hofsós og nágrennis, dagsett 10.04.2025 vegna bæjarhátíðarinnar Hofsós heim sem haldin verður 20. - 22. júní 2025.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd þakkar erindið og samþykkir samhljóða að styrkja hátíðina um 300.000 kr. Tekið af lið 05710. Bókun fundar Afgreiðsla 33. fundar atvinnu- menningar- og kynningarnefndar staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkvæðum. -
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 33 Tekin umræða um fundarplan atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar næstu misseri. Ákveðið að nefndin hittist þriðja fimmtudag í hverjum mánuði fram að áramótum, að júlímánuði undanskildum, þar sem nefndin gerir ráð fyrir að halda sumarfrí.Samþykkt samhljóða.
Áhugasömum er bent á að fundarplan fastanefnda liggur fyrir á heimasíðu Skagafjarðar.
https://www.skagafjordur.is/is/stjornsysla/stjornskipulag/sveitarstjorn/fundaplan-fastanefnda Bókun fundar Afgreiðsla 33. fundar atvinnu- menningar- og kynningarnefndar staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkvæðum. -
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 33 Róbert Smári Gunnarsson vék af fundinum við afgreiðslu þessa máls.
Á setningu Sæluviku Skagfirðinga 2025 verða Samfélagsverðlaun Skagafjarðar veitt í tíunda sinn. Verðlaunin eru veitt árlega þeim einstaklingi, fyrirtæki, stofnun eða félagasamtökum í sveitarfélaginu Skagafirði sem þykja standa sig afburða vel í að efla skagfirskt samfélag.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd bárust fjölmargar og afar góðar tilnefningar til Samfélagsverðlauna Skagafjarðar. Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir einum rómi að hjónin Sigurður Hansen og María Guðmundsdóttir hljóti Samfélagsverðlaun Skagafjarðar 2025. Sigurður Hansen hlaut riddarakross hinnar íslensku Fálkaorðu árið 2015 fyrir framlag til kynningar og sögu arfleifðar Sturlungaaldar, auk þess hefur hann auðgað menningarlíf í Skagafirði með ljóðum sínum um áratugaskeið. María Guðmundsdóttir er einstaklega listfengin og rekur handverks- og antíkverslun. Þau hjónin eru búin að byggja upp einstaklega flotta aðstöðu og sýningu í Kakalaskála og vinna ötullega að alls konar verkefnum svo sem að setja upp grjóther á Hauganesi, sýningu fjórtán alþjóðlegra listamanna sem sköpuðu margbrotin verk um sögu Sturlunga svo fátt eitt sé nefnt. Enn standa þau hjónin fyrir menningarviðburðum og eru óhrædd við að prófa nýjungar í viðburðahaldi sínu.
Það er því vel við hæfi að hjónin Sigurður Hansen og María Guðmundsdóttir hljóti Samfélagsverðlaun Skagafjarðar og er þeim þakkað opinberlega fyrir þeirra óeigingjarna framlag til samfélagsins í Skagafirði. Bókun fundar Afgreiðsla 33. fundar atvinnu- menningar- og kynningarnefndar staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkvæðum. -
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 33 Síðasta sumar fékk Skagafjörður að gjöf listaverk eftir úkraínska listamenn í tengslum við verkefnið um Norðurstrandaleið. Listaverkinu var komið fyrir á túninu fyrir framan Kjarnan á Sauðárkróki. Listaverkið var tekið inn í vor og hefur verið steyptur undir verkið stöpull svo það sómi sér betur. Skort hefur upplýsingar um verkið og telur nefndin að setja mætti saman upplýsingar um verkið og koma fyrir á stöplinum.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir samhljóða að koma verkinu fyrir við endann á sjóvörninni við Strandveginn á Sauðárkróki.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir einnig samhljóða að fela starfsmönnum atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar að koma með tillögu að texta á skilti á stöpulinn. Bókun fundar Afgreiðsla 33. fundar atvinnu- menningar- og kynningarnefndar staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkvæðum. -
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 33 Farið var betur yfir innkomnar tillögur sem bárust með þjónustukönnun bókasafnsins. Umræður teknar á fundinum. Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir samhljóða að fela starfsmönnum nefndarinnar að vinna áfram úr tillögunum og bera upp fyrir næsta fund. Bókun fundar Afgreiðsla 33. fundar atvinnu- menningar- og kynningarnefndar staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkvæðum.
-
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 33 Lögð fram til kynningar dagskrá Sæluviku 2025. Bókun fundar Afgreiðsla 33. fundar atvinnu- menningar- og kynningarnefndar staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkvæðum.
7.Félagsmála- og tómstundanefnd - 34
Málsnúmer 2504010FVakta málsnúmer
-
Félagsmála- og tómstundanefnd - 34 Lagður fram tölvupóstur dags. 9. apríl 2025, frá Ragnhildi Friðriksdóttur f.h. hlaupahópsins 550 Rammvilltar, þar sem óskað er eftir því að þátttakendur í styrktarhlaupi Einstakra barna sem verður haldið þann 1. maí nk. fái gjaldfrjálsan aðgang að hlaupi loknu. Auk þess er óskað eftir því að opnunartími sundlaugarinnar verði lengdur um eina klukkustund þennan dag, eða til kl. 17:00. Nefndin samþykkir samhljóða að hafa gjaldfrjálsan aðgang fyrir þátttakendur hlaupsins og lengir opnunartíma sundlaugarinnar til kl 17:00 þennan sama dag. Bókun fundar Afgreiðsla 34. fundar félagsmála- og tómstundanefndar staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkvæðum.
-
Félagsmála- og tómstundanefnd - 34 Körfuknattleiksdeild Tindastóls óskar eftir endurgjaldslausum aðgangi að íþróttahúsinu á Sauðárkróki vegna páskaballs félagsins þann 19. apríl nk. Nefndin bendir á að umsókn barst of seint miðað við það sem kemur fram í 2. gr. reglna um útleigu íþróttahúsa Skagafjarðar til skemmtanahalds en þar sem þetta raskar ekki hefðbundinni starfsemi íþróttahússins samþykkir nefndin samhljóða að fella niður leigu á íþróttahúsinu vegna þessa og vísar til 4. gr. áðurnefndra reglna í ákvörðun sinni.
Nefndin áréttar upplýsingar sem eiga að fylgja umsókn skv. 4. gr. reglnanna en þar kemur fram að í erindinu skulu koma fram ástæður umsóknar, hvers vegna annað húsnæði í Skagafirði henti ekki og hvert ágóði af viðburðinum fari, verði einhver. Bókun fundar Afgreiðsla 34. fundar félagsmála- og tómstundanefndar staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkvæðum. -
Félagsmála- og tómstundanefnd - 34 Íþróttafélagið Molduxar óskar eftir endurgjaldslausum aðgangi að íþróttahúsinu á Sauðárkróki vegna páskamóts félagsins þann 19. apríl nk. Nefndin bendir á að umsókn barst of seint miðað við það sem kemur fram í 2. gr. reglna um útleigu íþróttahúsa Skagafjarðar til skemmtanahalds en þar sem þetta raskar ekki hefðbundinni starfsemi íþróttahússins samþykkir nefndin samhljóða að fella niður leigu á íþróttahúsinu vegna þessa og vísar til 4. gr. áðurnefndra reglna í ákvörðun sinni. Bókun fundar Afgreiðsla 34. fundar félagsmála- og tómstundanefndar staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkvæðum.
8.Fræðslunefnd - 37
Málsnúmer 2503013FVakta málsnúmer
-
Fræðslunefnd - 37 Á 116. fundi byggðarráðs þann 8. október 2024 samþykkti byggðarráð samhljóða að skipa starfshóp til að fara yfir rekstur og móta framtíðarstefnu fyrir Tónlistarskóla Skagafjarðar.
Starfshópurinn hefur lokið störfum sínum og skýrsla starfshópsins lögð fyrir fræðslunefnd til kynningar.
Fræðslunefnd vill þakka starfshópnum fyrir sitt framlag við yfirferð á rekstri Tónlistarskóla Skagafjarðar og mótun á framtíðarsýn.
Bókun fundar Afgreiðsla 37. fundar fræðslunefndar staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkæðum. -
Fræðslunefnd - 37 Fundargerðir skólaráðs Varmahlíðarskóla frá 4. febrúar og 4. mars 2025 lagðar fram til kynningar. Bókun fundar Afgreiðsla 37. fundar fræðslunefndar staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkæðum.
-
Fræðslunefnd - 37 Lagt fram bréf frá mennta- og barnamálaráðuneyti, dagsett 13. mars 2025 þar sem þakkað er fyrir góða samvinnu við grunnskóla og tengiliði við undirbúning fyrirlagnar PISA 2025 og óskað eftir áframhaldandi góðu samstarfi við nemendur, starfsfólk grunnskóla, sveitarfélög og skólaþjónustu sveitarfélaga um þátttöku í PISA rannsókninni nú við upphaf fyrirlagnartímabilsins.
PISA 2025 hefur nú verið lögð fyrir í öllum grunnskólum Skagafjarðar.
Bókun fundar Afgreiðsla 37. fundar fræðslunefndar staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkæðum. -
Fræðslunefnd - 37 Tillaga að skóladagatölum grunnskólanna í Skagafirði fyrir skólaárið 2025-2026 var lögð fram. Tillagan hefur fengið staðfestingu skólaráðanna skv. grunnskólalögum. Fræðslunefnd staðfestir skóladagatöl grunnskólanna fyrir skólaárið 2025-2026.
Bókun fundar Afgreiðsla 37. fundar fræðslunefndar staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkæðum. -
Fræðslunefnd - 37 Tillaga að skóladagatölum leikskólanna í Skagafirði fyrir skólaárið 2025-2026 var lögð fram. Tillagan hefur fengið staðfestingu foreldraráða skv. lögum um leikskóla. Fræðslunefnd staðfestir skóladagatöl leikskóla fyrir skólaárið 2025-2026. Bókun fundar Afgreiðsla 37. fundar fræðslunefndar staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkæðum.
-
Fræðslunefnd - 37 Upplýsingar um nýtingu skráningadaga í leikskólum frá 1. október 2024 lagðar fram til kynningar. Í Birkilundi hafa að meðaltali 34% barna verið skráð í leikskólann á skráningardögum. Í Tröllaborg hafa að meðaltali 48% barna verið skráð í leikskólann á skráningardögum. Í Ársölum hafa að meðaltali 51% barna verið skráð í leikskólann á skráningardögum. Skráningardagar hafa létt mikið á skipulagningu starfa í leikskólanum og hefur starfsfólk nýtt vinnustyttingu sína á skráningardögum þegar færri börn eru í leikskólanum. Fræðslunefnd gleðst yfir því hve skráningardagar hafa gefið góða raun og vonar að svo verði áfram.
Bókun fundar Afgreiðsla 37. fundar fræðslunefndar staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkæðum. -
Fræðslunefnd - 37 Sjálfsmatsskýrsla Ársala lögð fram til kynningar.
Bókun fundar Afgreiðsla 37. fundar fræðslunefndar staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkæðum.
9.Landbúnaðar- og innviðanefnd - 24
Málsnúmer 2504017FVakta málsnúmer
-
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 24 Á fundinn kom Svavar Sigurðsson starfsmaður HNV og ræddi við nefndina um tilvonandi umhverfisdaga sveitarfélagsins. HNV mun í tilefni þeirra senda brýningu til íbúa í staðarmiðla um bætta umgengni. Jafnframt var rætt um mikilvægi þess að gerð verði sameiginleg samþykkt sveitarfélaga í umdæmi HNV um umgengni og þrifnað í sveitarfélögunum. Sviðstjóra Veitu- og framkvæmdasviðs falið að vinna málið áfram í samvinnu við HNV. Bókun fundar Afgreiðsla 24. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkvæðum.
-
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 24 Umhverfisdagar Skagafjarðar 2025 fara fram 5-17 maí nk. Íbúar eru hvattir til að taka þátt og snyrta og fegra umhverfi sitt með því að taka til og etv. mála sé þörf á því. Öllum íbúum gefst kostur á að skila af sér úrgangi gjaldfrjálst á móttökustöðum sorps í sveitarfélaginu meðan á umhverfisdögum stendur. Fyrirtæki eru hvött til að gefa afslætti af vörum sem stutt gætu þetta verkefni. Hreinn Skagafjörður er fallegri Skagafjörður. Bókun fundar Afgreiðsla 24. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkvæðum.
-
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 24 Lögð fram áætlun um refa og minkaveiði í Skagafirði árið 2025 ásamt yfirliti um veiðar síðustu ára. Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir áætlunina samhljóða en jafnframt að gera breytingar á fyrikomulagi sem taki gildi um næstu áramót og verði kynnt sérstaklega í haust. Bókun fundar Afgreiðsla 24. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkvæðum.
-
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 24 Ársreikningur Fjallskilasjóðs Hofsafréttar 2024 lagður fram til kynningar.
Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða að óska eftir nánari upplýsingum varðandi reikninginn en á honum eru ýmsir ágallar. Bókun fundar Afgreiðsla 24. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkvæðum. -
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 24 Fjallskilasjóður Staðardeildar ársreikningar 2024 vegna Staðarhrepps og Staðarafréttar lagðir fram til kynningar.
Bókun fundar Afgreiðsla 24. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkvæðum. -
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 24 Lögð fram til kynningar samantekt á úrgangi til urðunar í Stekkjarvík. Bókun fundar Afgreiðsla 24. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkvæðum.
-
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 24 Fundagerðir Hafnasambands Íslands 2025 lagðar fram til kynningar. Bókun fundar Afgreiðsla 24. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkvæðum.
-
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 24 Umhverfis- og orkustofnun kynnir breytt verklag í eftirliti með leyfisskyldri starfssemi. Bókun fundar Afgreiðsla 24. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkvæðum.
-
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 24 Kynntur nýr vefur Veðurstofunnar, Loftlagsatlas Íslands https://gottvedur.is/loftslagsbreytingar/ Bókun fundar Afgreiðsla 24. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkvæðum.
-
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 24 Lögð fram til kynningar skýrsla Samtaka iðnaðarins og Félags ráðgjafarverkfræðinga: Innviðir á Íslandi 2025. Skýrsluna má finna á heimasíðu Samtaka iðnaðarins. Bókun fundar Afgreiðsla 24. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkvæðum.
10.Landbúnaðar- og innviðanefnd - 25
Málsnúmer 2504024FVakta málsnúmer
-
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 25 Lögð fram endurskoðuð áætlun um refa og minkaveiði í Skagafirði fyrir árið 2025 ásamt yfirliti um veiðar síðustu ára. Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir endurskoðaða áætlunina með tveimur atkvæðum. Niðurstaðan verður kynnt með veiðimönnum á fundi 30.4.2025. Bókun fundar Afgreiðsla 25. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkvæðum.
-
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 25 Landbúnaðar og innviðanefnd samþykkir samhljóða að auglýsa eftir nýjum aðilum meðal ráðinna veiðimanna til að bera ábyrgð á refa- og minkaveiði í Hegranesi frá og með 1. júní 2025. Umsóknarfrestur er til og með 12. maí 2025.
Fráfarandi veiðimanni í Hegranesi, Þorsteini Ólafssyni, eru þökkuð vel unnin störf. Bókun fundar Afgreiðsla 25. fundar landbúnaðar- og innviðanefndar staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkvæðum.
11.Skipulagsnefnd - 71
Málsnúmer 2504016FVakta málsnúmer
-
Skipulagsnefnd - 71 Fyrirspurnir hafa borist um hvort haldinn verði annar íbúafundur um vinnslutillögu Aðalskipulags Skagafjarðar 2025-2040.
Umsagnafrestur rennur út við vinnslutillöguna þann 25. apríl næstkomandi og er því ákveðið að bjóða frekar upp á að fólk geti sent inn spurningar sem það vill fá frekari skýringar á í gegnum netfangið skipulagsfulltrui@skagafjordur.is en jafnframt vill nefndin benda á að allir geta skilað inn umsögnum við vinnslutillöguna í gegnum skipulagsgáttina sjá nánar hér : https://skipulagsgatt.is/issues/2024/613 .
Bókun fundar Afgreiðsla 71. fundar skipulagnefndar staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkvæðum. -
Skipulagsnefnd - 71 Á 70. fundi skipulagsnefndar Skagafjarðar þann 21.03.2025 var eftirfarandi bókað:
"Farið yfir innsendar umsagnir við vinnslutillögu fyrir "Sauðárkrókur athafnarsvæði AT-403" sem var í kynningu dagana 19.02.2025- 05.03.2025 í Skipulagsgáttinni mál nr. 808/2024, sjá tengil hér: https://skipulagsgatt.is/issues/2024/808 . Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fela skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram í samræmi við umræður fundarins."
Þann 03.04.2025 barst umsögn Veðurstofu Íslands um athafnarsvæði AT-403 á Sauðárkróki.
Umsögn Veðurstofu Íslands er sem hér segir:
"Líkt og Veðurstofan bendir á í umsögn sinni 14. ágúst 2024, um aðalskipulag á sama svæði, er umtalsverð flóðahætta á svæðinu. Sjá einnig meðfylgjandi kort af útbreiðslu flóða í Héraðsvötnum. Í umsögninni segir:
Veðurstofan bendir á að til viðbótar við hættu vegna sjávarflóða, sem minnst er á í skipulagstillögunni, má búast við að árflóð í Héraðsvötnum geti einnig haft áhrif á svæðinu (Tinna Þórarinsdóttir og fleiri, 2021a). Jafnvel má búast við að flóð með 4% árlegar líkur (oft vísað til sem 25 ára flóðs) geti haft áhrif á hluta svæðisins (Tinna Þórarinsdóttir og fleiri, 2021b). Á slíkum svæðum er æskilegt að taka tillit til flóðahættu,jafnvel fyrir byggingar með litla viðveru svo sem bílskúra og vöruskemmur (Tinna Þórarinsdóttir og fleiri, 2022). Það er því æskilegt að vinnsla skipulags á svæðinu taki bæði tillit til árflóða í Héraðsvötnum sem og sjávarflóða.
Veðurstofan áréttar að nauðsynlegt sé að taka tillit til mögulegrar flóðahættu á svæðinu svo sem með vali á staðsetningu byggingareita, ákvæðum um lágmarks gólfhæð húsa eða örðum sambærilegum aðferðum. Sé slíkt ekki gert eykst tjónnæmi samfélagsins gagnvart flóðum að óþörfu".
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fela skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram í samræmi við umræður fundarins. Bókun fundar Afgreiðsla 71. fundar skipulagnefndar staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkvæðum. -
Skipulagsnefnd - 71 Málið áður á dagskrá 61. fundar skipulagsnefndar þann 16.10.2024 þá bókað:
"Farið yfir innsendar umsagnir við deiliskipulagstillögu fyrir "Neðri-Ás 2 í Hjaltadal, land 3 og 4" sem var í kynningu dagana 10.07.2024- 30.08.2024 í Skipulagsgáttinni mál nr. 880/2024, sjá tengil hér: https://skipulagsgatt.is/issues/2024/880/. Alls bárust 10 umsagnir og gefa nokkar þeirra tilefni til breytinga. Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fela skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram."
Lögð fram uppfærð gögn dags. 09.04.2025, greinargerð og uppdráttur frá Kollgátu arkitektastofu þar sem tekið hefur verið tillit til innsendra umsagna við auglýsta deiliskipulagstillögu.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn Skagafjarðar að samþykkja tillöguna að deiliskipulagi "Neðri-Ás 2, land 3 og 4" og senda hana Skipulagsstofnun til yfirferðar í samræmi við 1. mgr. 42. gr skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt þau viðbrögð sem lögð eru fram við umsögnum og felur skipulagsfulltrúa að senda svör til þeirra aðila sem sendu inn umsagnir á kynningartíma. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Neðri-Ás 2, land 3 og 4 - Umsókn um deiliskipulag, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Skipulagsnefnd - 71 Málið áður á dagskrá sveitarstjórnar 12.03.2025, eftirfarandi bókað:
"Vísað frá 69. fundi skipulagsnefndar frá 5. mars sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað: "Sigrún Vilhelmsdóttir hjá Verkfræðistofu Suðurnesja sækir fyrir hönd lóðarhafa Lækjarbakka 6 á Steinsstöðum um óverulega breytingu á gildandi deiliskipulagi. Breytingin felst í því að byggingarreitur á lóðinni Lækjarbakka 6 er stækkaður til norðurs um 2 metrar úr 20 m í 22 m. Þar sem þessi stækkun snýr að gögnustíg á milli lóðanna Lækjarbakka 4 og 6 þá hefur breytingin ekki áhrif á nærliggjandi lóðir. Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að grenndarkynna óverulega breytingu á gildandi deiliskipulagi fyrir lóðarhöfum Lækjarbakka nr. 5 og 7, skv. 43. og 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010." Sólborg Sigurrós Borgarsdóttir vék af fundi sveitarstjórnar við afgreiðslu þessa máls. Sveitarstjórn samþykkir, með átta atkvæðum að fela skipulagsfulltrúa að grenndarkynna óverulega breytingu á gildandi deiliskipulagi fyrir lóðarhöfum Lækjarbakka nr. 5 og 7, skv. 43. og 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010."
Fyrirliggja yfirlýsingar mótteknar af skipulagsfulltrúa 02.04.2025 þar sem fram kemur að lóðarhafar Lækjarbakka 5 og 7 geri ekki athugasemdir við óverulegar breytingar á deiliskipulagi Íbúðabyggðar Steinsstaða skv. grenndarkynningargögnum.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja óverulega breytingu á deiliskipulagi “Steinsstaðir, Skagafirði, Lækjarbakki og Lækjarbrekka. Íbúðarbyggð - ÍB-801, óveruleg breyting á deiliskipulagi" og senda hana til Skipulagsstofnunar og birta samþykkt hennar í B-deild Stjórnartíðinda. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Lækjarbakki 6 Steinsstöðum - Beiðni um óverulega breytingu á deiliskipulagi, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Skipulagsnefnd - 71 Helga G. Vilmundardóttir arkitekt sækir fyrir hönd Össurar Willard þinglýsts eiganda jarðarinnar Neskot L146872 að stofna byggingarreit á jörðinni fyrir kalda geymslu.
Byggingarreiturinn er 26 x36 m eða 936 m2.
Byggingarreiturinn er staðsettur 17,6 m frá norðaustur horni núverandi húss.
Landnotkunarflokkur er í samræmi við gildandi aðalskipulag fyrir svæðið.
Byggingarreiturinn hefur engin áhrif á búrekstrarskilyrði og skerða ekki landbúnaðarsvæði í I. flokki.
Engin verndarsvæði skv. gildandi aðalskipulagi eru innan byggingarreitsins. Fyrir liggur jákvæð umsögn Minjastofnunar, dags. 02.03. 2025.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðinn byggingarreit. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Neskot L146872 - Umsókn um stofnun byggingarreits, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Skipulagsnefnd - 71 Berglind Svava Arngrímsdóttir og Jóhann Ari Böðvarsson þinglýstir eigendur lóðarinnar Hjaltastaðir land, landnr. 180161, óska eftir heimild til að stofna 59,5 m² byggingarreit á lóðinni, skv. meðfylgjandi, hnitsettum afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki 76620000 útg. 27. mars 2025. Afstöðuppdráttur var unnin á Stoð verkfræðistofu ehf.
Um er að ræða byggingarreit fyrir bílskúr sem verður byggður við núverandi íbúðarhús. Áformað er að bílskúr verði jafn breiður núverandi húsi. Hámarks byggingarhæð verður 5 m og þakgerð verður flatt eða einhalla með halla til norðurs. Hámarksbyggingarmagn verður 59,5 m². Meðfylgjandi afstöðuuppdráttur gerir grein fyrir staðsetningu og áætluðu útliti fyrirhugaðrar viðbyggingar. Þó er áréttað að hönnun er á frumstigi og gæti tekið breytingum frá því sem sýnt er á meðfylgjandi afstöðumynd, innan þeirra skilmála sem sótt er um varðandi stærð byggingarreits, hámarks byggingarmagns og byggingarhæð.
Byggingarreitur, sem sótt er um, er á skilgreindu landbúnaðarsvæði í aðalskipulagi Akrahrepps 2010-2022 og stendur ekki í vegi fyrir að markmiðum aðalskipulags um uppbyggingu á landbúnaðarsvæðum, sem fjallað er um í kafla 4.14.2, verði framfylgt. Reiturinn gengur ekki á ræktað land eða votlendissvæði, stendur ekki í vegi fyrir frekari uppbyggingu landbúnaðarbygginga, skerðir ekki möguleika á skógrækt eða gengur inn á hentug skilyrði fyrir hinar ýmsu greinar landbúnaðar. Þá er hann á þegar byggðu svæði sem styður hagkvæma landnotkun. Byggingarreitur gengur að einhverju leyti inn á túnslóða sem liggur niður að túnum neðan við bæjarhlaðið. Svigrúm er til staðar til að hliðra slóðanum, á þessum kafla, svo aðgengi að túnum skerðist ekki. Lögð verður áhersla á að áformuð bygging samrýmist einnig yfirbragði og ásýnd svæðisins og hafi ekki neikvæð umhverfisáhrif.
Byggingaráform kunna að varða hagsmuni eigenda nærliggjandi landeigna; Hjaltastaða, L146301, Hjaltastaða 2, L225439, Hjalla lands, L221439, og Hjalla lands, L146300. Uppbyggingaráform hafa ekki áhrif á aðgengi eða landnotkun á Hjalla, landnr. 146299. Meðfylgjandi afstöðuuppdráttur sýnir áætlaða staðsetningu fyrirhugðrar byggingar innan byggingarreits, snið og ásýndarmyndir, fyrir og eftir framkvæmdir. Hönnunargögn eru ekki fullunnin, sbr. ákvæði 5.9.7. gr. skipulagsreglugerðar nr. 90/2013.
Óskað hefur verið eftir umsögn minjavarðar.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að grenndarkynna umbeðinn byggingarreit fyrir eigendum Hjaltastaða L146301, Hjaltastaða L225439, Hjalla L146299, Hjalla land L221439 og Hjalla 2 L146300.
Sæunn Kolbrún Þórólfsdóttir skipulagsfulltrúi vék af fundi við umfjöllun og afgreiðslu erindisins. Sigurður H. Ingvarsson kom inn sem staðgengill skipulagsfulltrúa.
Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Hjaltastaðir land L180161 - Umsókn um stofnun byggingarreits, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Skipulagsnefnd - 71 Fyrir liggur umsókn frá BR Teiknistofu slf., Bjarna Reykjalín fh. Sýls ehf. um frávik á deiliskipulagsskilmálum vegna fyrirhugaðra byggingar raðhús við Freyjugötu 31, 33 og 35 ásamt skýringaruppdrætti. Einnig ligur fyriryfirlýsing eigenda íbúða í raðhúsi nr. 3 og 5 við Ránarstíg dags. 4.4.2025 þar sem fram kemur að ekki sé gerð athugasemd við umbeðin frávik. Eigandi raðhúsaíbúðar nr. 7 við Ránarstíg er lóðarhafi nefndrar Freyjugötulóðar.
Í umsókn segir m.a.:
"Í ljós hefur komið að vegghæðir upphækkaðs stofuhluta í fyrirhuguðum íbúðum í Freyjugötu 31-35 fer u.þ.b. 39 cm upp fyrir viðmiðunarhæð skv. gildandi deiliskipulagsskilmálum. Á meðfylgjandi skýringaruppdrætti er nánar gerð grein fyrir hæðum húsa á lóðum nr. 25-29 og 31-33 með tilliti til þakhalla og hámarks vegg- og mænishæðar í umræddum skilmálum. Sambærilegar hæðir á húsi 25-29 eru innan viðmiðunarmarka eins og sjá má á uppdrætti. Í tilfelli húss nr. 31-33 er um að ræða mistök sem stafa m.a. af því að áður var sveitarfélagið búið að samþykkja eins teikningar af Ránarstíg 1-5 án athugasemda þótt þar giltu sömu skilmálar og því láðist að taka tillit til gildandi deiliskipulagsskilmála í fyrrgreindu tilfelli.
Það var alltaf ætlunin að öll húsin þrjú við Freyjugötu og Ránarstíg yrðu eins að öðru leyti en því að upphækkaðir stofuhlutar húsanna yrðu í mismunandi litum. Það er vilji framkvæmdaaðilans að halda sig við upphaflegar hugmyndir án breytinga og þar sem aðeins stofuútveggur fer ekki nema að mjög óverulegu leyti upp fyrir hæðamörk skipulagsins er hér með óskað eftir því við skipulagsnefnd að hún samþykki fyrrgreind frávik og leggist ekki gegn því að veitt verði byggingarleyfi án breytinga á deiliskipulagi með vísan í til 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.123/2010 og/eða 3. mgr. 44. gr. sömu laga þar sem um mjög óveruleg frávik frá samþykktum skilmálum er að ræða."
Skipulagsnefnd fellst á rökstuðning umsækjanda þess efnis að um svo óveruleg frávik er að ræða að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn. Skipulagsnefnd er heimilt að falla frá grenndarkynningu ef sýnt er fram á að breyting á deiliskipulagi eða leyfisskyld framkvæmd varði ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og/eða umsækjanda.
Framlögð gögn umsækjanda varðandi fyrirhugaða byggingu raðhús við Freyjugötu 31, 33 og 35 eru, uppdrættir númer 100, 101, 102, 103 og 104, dagsettir 18.03.2025, skýringaruppdráttur "Snið í byggingarreit" dags. 18.03.2025 gerðir af Bjarna Reykjalín.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að gera ekki athugasemd við fyrirhugaða byggingu raðhús við Freyjugötu 31, 33 og 35 skv. framlögðum gögnum. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Freyjugata 31, 33 og 35 - Umsagnarbeiðni byggingarfulltrúa, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Skipulagsnefnd - 71 Fyrir liggur umsagnarbeiðni byggingarfulltrúa dags. 28. mars síðastliðinn með vísan til 10. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010 um umsókn Bjarna Reykjalíns arkitekt og byggingartæknifræðingi, f.h. Sýls ehf. um leyfi til að byggja raðhús á lóðunum númer 25, 27 og 29 við Freyjugötu á Sauðárkróki.
Meðfylgjandi aðaluppdrættir gerðir á BR Teiknistofu slf. af Bjarna Reykjalín arkitekt og byggingartæknifræðingi.
Uppdrættir númer 100, 101, 102, 103 og 104, dagsettir 18.03.2025.
Þar sem fyrirhuguð framkvæmd fellur undir lög um mannvirki nr. 160/2010 er hér með leitað umsagnar skipulagsfulltrúa með vísan til 10. gr. framangreindra laganna.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fela skipulagsfulltrúa að óska eftir frekari rökstuðningi varðandi nýtingarhlutfall. Bókun fundar Afgreiðsla 71. fundar skipulagnefndar staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkvæðum. - 11.9 2503291 Skagfirðingabraut íþróttasvæði (L143716) og sundlaug (L143721) - Lóðarmál, frumheimild vantar.Skipulagsnefnd - 71 Ekki liggja fyrir frumheimildir varðandi tilurð lóðanna Skagfirðingabraut L143716, Skagfirðingabraut L143721 og Skagfirðingabraut L143716 (íþróttasvæði). Innan lóðar sbr. fasteignaskrá HMS er tækjahús MHL 01 byggt árið 2003 og aðstöðuhús MHL 02 byggt árið 2004.
Lóðin er í fasteignaskrá HMS skráð 2600m², Skagfirðingabraut L143721, (sundlaug Sauðárkróks) innan lóðar sbr. fasteignaskrá HMS er sundhöll MHL 01 byggð árið 1953, snyrtingar MHL 02 byggðar árið 2009.
Lóðin er í fasteignaskrá HMS skráð 5000 m².
Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að láta vinna merkjalýsingu fyrir þessar lóðir auk merkjalýsinga fyrir lóðir sem verið er að stofna á þessu svæði skv. deiliskipulagstillögu sem er í vinnslu. Bókun fundar Afgreiðsla 71. fundar skipulagnefndar staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkvæðum. -
Skipulagsnefnd - 71 Mál áður á dagskrá skipulagsnefndar þann 05.03.2025.
Á 36. fundi sveitarstjórnar Skagafjarðar 12. mars sl. gerir forseti tillögu um að vísa málinu aftur til afgreiðslu skipulagsnefndar. Tillagan samþykkt samhljóða.
Swanhild Ylfa K R Leifsdóttir og Þorsteinn Ragnar Leifsson þinglýstir eigendur jarðarinnar Bakkakots í Skagafirði, landnúmer 146146 óska eftir staðfestingu landamerkja og stofnunar landspildu úr landi jarðarinnar, sem "Bakkakot I", skv. meðfylgjandi undirritaðri merkjalýsingu dags. áritana 03.02.2025, uppdráttur númer 71930105. Merkjalýsingin var unnin á Stoð ehf. verkfræðistofu af Ínu Björk Ársælsdóttir. Óskað er eftir að Bakkakot I, verði skráð sem "jörð". Lögbýlarétturinn mun fylgja Bakkakoti, landnr. 146146. Landskipti og landnotkun eru í samræmi við ákvæði 12. kafla greinagerðar Aðalskipulags Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2020-2035 og fyrirhuguð landnotkun er í samræmi við skilmála aðalskipulags fyrir landnotkun á landbúnaðarsvæði nr. L-1 og L-3. Ekki er verið að sækja um lausn úr landbúnaðarnotkun. Engin verndarsvæði skv. gildandi aðalskipulagi eru innan útskiptrar spildu. Merkjalýsingin hefur verið skráð í landeignarskráningarkerfi HMS, málsnr. M001365.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðin landskipti. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Bakkakot L146146 - Staðfesting landamerkja og umsókn um stofnun landspildu, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Skipulagsnefnd - 71 Logi Snær Knútsson óskar eftir leyfi til að breikka innkeyrslu að lóðinni Víðigrund 7 á Sauðárkróki, u.þ.b. 6 m, skv. meðfylgjandi gögnum.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að óska eftir frekari gögnum frá umsækjanda.
Bókun fundar Afgreiðsla 71. fundar skipulagnefndar staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkvæðum. -
Skipulagsnefnd - 71 Harpa Rós Sigurjónsdóttir lóðarhafi Skagfirðingabrautar 39 óskar eftir breikkun á innkeyrslu.
Meðfylgjandi eru myndir sýna núverandi stöðu ásamt útskýringu í tölvupósti.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að óska eftir frekari gögnum frá umsækjanda.
Bókun fundar Afgreiðsla 71. fundar skipulagnefndar staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkvæðum. -
Skipulagsnefnd - 71 Síðustu misseri hefur Skipulagsstofnun unnið að útgáfu gildandi landsskipulagsstefnu sem nú er komin út.
Útgáfunni er ætlað að gera efni stefnunnar aðgengilegra þeim sem vinna að framfylgd hennar, sveitarfélögum, ráðgjöfum og öðrum þeim sem hafa áhuga á eða koma að skipulagsgerð.
Í útgefinni stefnu eru áherslur og tilmæli þingsályktunar um landsskipulagsstefnu sett fram undir fjórum köflum eftir því hvar þau eiga við samkvæmt landfræðilegri skiptingu, þ.e. á miðhálendi, í dreifbýli, í þéttbýli og á haf- og standsvæðum. Öllum þeim áherslum og tilmælum sem eiga við fyrir skipulagsgerð á tilteknu svæði eru þannig gerð skil í viðkomandi kafla. Skýringum hugtaka hefur jafnframt verið bætt við auk þess sem valið efni úr greinargerð þingsályktunartillögu hefur verið nýtt þar sem talin var þörf á frekari skýringum við stefnuna.
Á landsskipulag.is má nálgast útgefna stefnu ásamt frekari upplýsingum um stefnuna, framfylgd hennar og einstakra verkefna aðgerðaáætlunar.
Bókun fundar Afgreiðsla 71. fundar skipulagnefndar staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkvæðum. -
Skipulagsnefnd - 71 Lögð fram til kynningar fundargerð byggingarfulltrúa frá fundi nr. 60 þann 28.03.2025. Bókun fundar Afgreiðsla 71. fundar skipulagnefndar staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkvæðum.
12.Skipulagsnefnd - 72
Málsnúmer 2504026FVakta málsnúmer
-
Skipulagsnefnd - 72 Farið yfir samantekt á ábendingum sem fram komu á kynningarfundi og í umræðum á þemaskiptu stöðvunum í kjölfarið vegna vinnslutillögu Aðalskipulags Skagafjarðar 2025-2040 þann 2. apríl síðastliðinn.
Ábendingar verða nýttar í áframhaldandi vinnu við tillögu að Aðalskipulags Skagafjarðar 2025-2040.
Álfhildur Leifsdóttir fulltrúi VG og óháðra leggur fram bókun:
VG og óháð benda á að áður en lagt er í meiri kostnað vegna undirbúnings og framkvæmda við nýtt tjaldsvæði á Sauðárkróki, sé brýnt að meirihluti sveitarstjórnar taki formlega afstöðu til framtíðarreksturs tjaldsvæða í eigu sveitarfélagins í heild en fram hefur komið tillaga um að skoða sölu þeirra.
Því er ljóst að nokkur óvissa ríkir um framtíð núverandi tjaldsvæða í sveitarfélaginu og því eðlilegt að liggi fyrir heildarstefna um framtíð tjaldsvæðanna í eigu sveitarfélagsins áður en fjármunum og tíma er varið í frekari vinnu við áætlanagerð nýs tjaldsvæðis á Sauðárkróki.
Bókun fundar Álfhildur Leifsdóttir fulltrúi VG og óháðra ítrekar bókun frá fundi nefndarinnar: VG og óháð benda á að áður en lagt er í meiri kostnað vegna undirbúnings og framkvæmda við nýtt tjaldsvæði á Sauðárkróki, sé brýnt að meirihluti sveitarstjórnar taki formlega afstöðu til framtíðarreksturs tjaldsvæða í eigu sveitarfélagins í heild en fram hefur komið tillaga um að skoða sölu þeirra. Því er ljóst að nokkur óvissa ríkir um framtíð núverandi tjaldsvæða í sveitarfélaginu og því eðlilegt að liggi fyrir heildarstefna um framtíð tjaldsvæðanna í eigu sveitarfélagsins áður en fjármunum og tíma er varið í frekari vinnu við áætlanagerð nýs tjaldsvæðis á Sauðárkróki.
Gísli Sigurðsson kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi bókun:
Markmiðið með því að hafa inni í núverandi vinnslutillögu að Aðalskipulagsbreytingu þessa tvo kosti um tjaldsvæði á Sauðárkróki er að fá umræðu og skoðanir íbúa á framtíðar fyrirkomulagi og staðsetningu tjaldsvæðis fyrir almennu umferðina en einnig vegna álagspunkta sem verða þegar stórir íþróttaviðburðir eru á Sauðárkróki. Að lokinni þeirri vinnu sem nú er í gangi og samþykktar á uppfærðu Aðalskipulagi verður megin stefna sveitarfélagsins um framtíðar staðsetningu og fyrirkomulag ljós. Í framhaldi af því þarf svo að taka ákvörðun um uppbyggingu og uppbyggingarhraða svæðisins eða svæðanna ásamt því að útfæra þau nánar með gerð deiliskipulags. Það er ekkert í þessu ferli sem þarf að hafa neikvæð áhrif á möguleika þess að selja rekstur tjaldsvæðanna því það er útfærsluatriði hvernig rekstur tjaldsvæðis í uppbygginu er boðinn til sölu og þá með hvaða kröfum.
Afgreiðsla 72. fundar skipulagnefndar staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkvæðum. -
Skipulagsnefnd - 72 Lagt fram erindi frá Fjáreigendafélagi Sauðárkróks dags. 15.04.2025 þar sem óskað er eftir við vinnslu Aðalskipulags Skagafjarðar 2025-2040 að félaginu verði fundið nýtt landsvæði/athafnarsvæði fyrir skipulagða fjárhúsabyggð, fjárborg sem tæki við af núverandi svæði félagsins á Nöfunum þar sem núverandi svæði á að skipuleggja sem framtíðar íbúðarsvæði Sauðárkróks.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að þakka fyrir erindið en bendir jafnframt á að um framtíðarstefnu sé að ræða og ekki verið að taka landsvæðið undir önnur not á næstu árum. Bókun fundar Afgreiðsla 72. fundar skipulagnefndar staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkvæðum. -
Skipulagsnefnd - 72 Björn Magnús Árnason frá Stoð ehf. verkfræðistofu fór yfir drög af deiliskipulagstillögu fyrir Athafnarsvæði - Sauðárkrókur - AT-403.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fela skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram í samræmi við umræður fundarins. Bókun fundar Afgreiðsla 72. fundar skipulagnefndar staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkvæðum. -
Skipulagsnefnd - 72 Lögð fram umsókn Regínu Sigurðardóttur fyrir hönd forsætisráðuneytisins dags. 26.02.2025 um stofnun þjóðlendu, Silfrastaðaafrétt í Skagafirði.
Umsókn um stofnun fasteignar (þjóðlendu), sbr. 14. gr. laga um skráningu, merki og mat fasteigna, nr. 6/2001, með síðari breytingum.
Landsvæði það sem óskast stofnað er þjóðlenda skv. úrskurðum óbyggðanefndar í máli nr. 2/2009, dags. 11. október 2011 og í máli nr. 4/2008, dags. 19. júní 2009 og dómi Héraðsdóms Norðurlands vestra í máli nr. 24/2010, dags. 13. maí 2013. Um hana fer eftir ákvæðum laga um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta, nr. 58/1998, með síðari breytingum.
Landeigandi: íslenska ríkið, skv. 2. gr. laga nr. 58/1998.
Fyrirsvarsmaður: Forsætisráðherra skv. d-lið, 7. tölul. 1. gr. forsetaúrskurðar nr. 6/2022 um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Land innan eftirfarandi marka, þ.e. Silfrastaðaafrétt er þjóðlenda.
Afmörkun svæðisins sbr. úrskurði óbyggðanefndar, dómsorðum Héraðsdóms Norðurlands vestra:
Texti sem er feitletraður hefur verið bætt við þar sem mörk þjóðlendunnar eru úrskurðuð í tveimur málum hjá óbyggðanefnd (málum 2/2009 og 4/2008) og þar sem sveitarfélagamörk ráða mörkum.
Úr úrskurði óbyggðanefndar í máli nr. 2/2009:
Upphafspunktur þar sem Grjótá fellur í Heiðará á sýslumörkum í Norðurárdal (si1).
Þaðan er haldið með Grjótá og síðan eystri Grjótárdal, yfir Grjótárdalsdrög að fyrrum hornmarki milli Akrahrepps, Skriðuhrepps og Öxnadalshrepps (si2). Síðan er fyrrum hreppamörkum Akrahrepps og Skriðuhrepps fylgt samkvæmt leiðréttum sveitarfélagamörkum eftir Lúpá (si2a) og 1179m hæðarpunkt (si2b) í Ólafarhnjúkum og áfram allt að fyrrum hornmarki milli Akrahrepps, Skriðuhrepps og Hólahrepps við Hjaltadalsjökul (si3). Þaðan með fyrrum hreppamörkum Akrahrepps og Hólahrepps um Suðurárdalshnjúk í Reykjanibbu (1302 m) (si4). Þaðan er háfjallinu fylgt til suðvesturs í 1298 m hæðarpunkt (si5) og síðan til suðausturs í 1247 m hæðarpunkt (si6) vestan við botn Seljadals. Þaðan er línan áfram dregin eftir háfjöllum í 1224 m hæðarpunkt (si7) norðvestan við botn Smaladals. Þaðan er háfjallinu enn fylgt til vesturs og síðan suðvesturs í 1209 m hæðarpunkt (si8) fyrir botni á Fýlsmýrum og Kleifum og síðan í 1210 m hæðarpunkt (si9) fyrir botni Fletjárdals. Þaðan er Fletjá fylgt suður í Valagilsá (si10).
Úr dómsorðum Héraðsdóms Norðurlands vestra í máli nr. E24/2010 (tölustafir innan sviga án si á undan eru teknir beint úr dómsorðum Héraðsdóms):
Þaðan er Valagilsá fylgt að þeim stað sem Smalalækur fellur í hana (si11) (2). Þaðan er línan dregin beina stefnu í Landshnjúk (si12) (3). Frá Landshnjúki er línan dregin beina stefnu í Landsendagjá við Horná (si13) (4). Frá Landsendagjá er línan dregin í Horná og ánni fylgt þar til hún fellur í Norðurá (si14). Norðurá síðan fylgt niður að ármótum við Króká (si15).
Úr úrskurði óbyggðanefndar í máli nr. 4/2008 (línan fer ranglætis):
Upphafspunktur er við sýslumörk Skagafjarðar- og Eyjafjarðarsýslna á Öxnadalsheiði (þar sem Grjótá fellur í Heiðará) (si1). Þar sem Króká fellur í Heiðará er punktur (si16).
Síðan er Króká fylgt til suðurs í botn Ernisdals og þaðan beina stefnu á punkt nr. 16 á kröfulínu gagnaðila ríkisins (si17). Þaðan er fylgt kröfulínu gagnaðila ríkisins þar til komið er að punkti nr. 14 á henni (si18). Þaðan er línan dregin í drög Kaldbaksdals (si19) og eftir daldrögunum í Kaldbaksá (si20). Síðan er Kaldbaksá fylgt þar til komið er að skurðpunkti við línu sem dregin er beina stefnu frá Vatnsgötu á Öxnadalsheiði (þar sem vötnum fyrst hallar
vestur af heiðinni) um Tjaldhól í Kaldbaksá (si21). Frá skurðpunktinum er nefndri línu fylgt í Vatnsgötu (si22) á Öxnadalsheiði. Þaðan er línan dregin eftir sveitarfélagamörkum í upptök Heiðarár (si23) og Heiðará síðan fylgt að þeim stað þar sem Grjótá fellur í hana (si1).
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðna stofnun þjóðlendu, Silfrastaðaafrétt í Skagafirði. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Umsókn um stofnun þjóðlendu - Silfrastaðaafrétt í Skagafirði, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Skipulagsnefnd - 72 Grétar Ómarsson sækir fyrir hönd Mílu ehf. um framkvæmdaleyfi vegna lagningu ljósleiðara á Sauðárkróki sumarið 2025.
Áætlaður verktími jarðvinnu er 20-25 dagar og vonumst við til að hefja framkvæmdir í lok maí eða byrjun júní.
Skurðgröftur verður að mestu innanlóða en opna þarf holur til að tengja saman heimtaugarör við stofnrör í gangstéttum þar sem innviðir eru til staðar.
Allar áætlaðar tengiholur eru merktar með rauðum hring og skurðir merktir með punktalínum, sjá verkblað.
Míla mun ljúka ljósleiðaravæðingu á Sauðárkróki í sumar, þá eiga öll heimili sem samþykktu ljósleiðaraframkvæmd að vera tengd.
Staðfangalisti í framkvæmd 2025 er eftirtalin:
Aðalgata 12, 14, 20 og 22
Freyjugata 1, 1 B, 10 og 10 B
Sæmundargata 13 og 15
Bárustígur 13 og 17
Hólavegur 7, 9 og 11
Sæmundargata 8
Ægisstígur 2, 4, 6, 8 og 10
Bárustígur 7, 8, 9 a, 9, 10, 11, 12, 14 og 16
Hólavegur 13, 15 og 17
Öldustígur 9, 11, 13, 15 og 17
Bárustígur 2, 4 og 6
Hólavegur 16 A, 16 B, 16, 18 og 20
Smáragrund 1
Öldustígur 1, 3, 5 og 7
Borgarflöt 5
Sauðármýri 1
Borgartún 6
Ártorg 6
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að veita umbeðið framkvæmdarleyfi. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Framkvæmdaleyfisumsókn vegna ljósvæðingar á Sauðárkróki, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Skipulagsnefnd - 72 Þann 12.02.2025 samþykkti sveitarstjórn Skagafjarðar breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2020-2035 varðandi efnistöku- og efnislosunarsvæði E-48 í landi Litlu-Grafar 2, L232798, á Langholti Skagafirði. Málsnúmer í skipulagsgátt er 877/2024 og hefur Skipulagsstofnun lokið yfirferð.
Rúnar Skarphéðinn Símonarson, f.h. Vinnuvéla Símonar ehf., þinglýsts eiganda landeignarinnar Litla-Gröf 2, landnúmer 232798, óskar eftir framkvæmdaleyfi í samræmi við umrædda breytingu á aðalskipulagi, á grundvelli ákvæða 7. gr. reglugerðar nr. 772/2012 um framkvæmdaleyfi þar sem kveðið er á um að heimilt sé að veita framkvæmdaleyfi á grundvelli aðalskipulags ef gerð er grein fyrir framkvæmdinni í aðalskipulagi og fjallað um umfang, frágang og áhrif á umhverfi. Fyrir liggja uppdrættir, dags. 27. júní 2023 og greinargerð vegna efnisnámu í Litlu-Gröf 2, útg 1.1, dags. 24.07.2023 sem voru fylgigögn með beiðni um breytingu á aðalskipulagi. Í ofannefndri aðalskipulagsbreytingu og fyrirliggjandi gögnum er gerð frekari grein fyrir framkvæmdinni.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að veita umbeðið framkvæmdarleyfi. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Litla-Gröf 2 L232798 - Umsókn um framkvæmdaleyfi, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Skipulagsnefnd - 72 Hrefna Skjóldal Óttarsdóttir og Auður R. Þorbjarnardóttir Skjóldal þinglýstir eigendur jarðarinnar Ennis, landnúmer 146518 óska eftir staðfestingu á hnitsettum ytri merkjum jarðarinnar og heimild til að stofna 117,24 ha spildu úr landi jarðarinnar, sem "Enni II" skv. merkjalýsingu í verki nr. 74201000 útg. dags. 22.10.2024 unnin af Ínu Björk Ársælsdóttur á Stoð verkfræðistofu ehf.
Einnig er óskað eftir breytingu á heiti á upprunajörðinni Enni lnr. 146518 sem fái heitið "Enni I" og haldi landnúmerinu 146518 að landskiptum loknum.
Skýring á landheitum vísar til fyrri heita jarðanna en árið 1997 voru jarðirnar Enni I og Enni II sameinaðar í Enni lnr. 146518.
Allar fasteignir á jörðinni munu fylgja Enni I að landskiptum loknum.
Lögbýlarétturinn mun áfram fylgja Enni (Enni I), landnr. 146518.
Landnotkun á Enni II verði áfram "jörð".
Ræktað land innan útskiptrar spildu (Ennis II) er 15 ha. að stærð.
Enginn hlunnindi fylgja landsskiptunum.
Stofnað land verður í eigu sömu eigenda og Enni.
Landskipti og landnotkun eru í samræmi við ákvæði 12. kafla greinagerðar aðalskipulags Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2020-2035 og fyrirhuguð landnotkun er í samræmi við skilmála aðalskipulags fyrir landnotkun á landbúnaðarsvæði nr. L-1, L-2 og L-3. Ekki er verið að sækja um lausn úr landbúnaðarnotkun.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða staðfestingu á hnitsettum ytri merkjum jarðarinnar og leggur til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðin landskipti og nafn fyrir útskipt land. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Enni L146518 - Staðfesting á ytri merkjum jarðarinnar, landskipti og nafnabreyting, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Skipulagsnefnd - 72 Ágúst Andrésson fyrir hönd lóðarhafa, lóðanna Borgarsíðu 5 og 7 óska eftir heimild til að hafa skipti á þessum lóðum.
Þannig að Norðar fái Borgarsíðu 5 og Skúli Bragason fái Borgarsíðu 7.
Í framhaldinu munu Ágúst Andrésson og Óli Viðar Andrésson leggja til hugmyndir þeirra um uppbyggingu á lóðum Borgarsíðu 5 og Borgarteigs 6
hvort heldur það verði á sitthvorri lóð eða óskað verði eftir sameiningu þessara tveggja lóða., þ.e.a.s. Borgarsíðu 5 og Borgarteigs 6.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að leyfa umbeðin lóðarskipti.
Alex Már Sigurbjörnsson áheyrnarfulltrúi vék af fundi við afgreiðslu málsins. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Borgarsíða 5 - Borgarsíða 7 - Borgarteigur 6 - Beiðni um skipti á lóðum, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Skipulagsnefnd - 72 Sigurður Ingi Ragnarsson óskar eftir leyfi til að stækka bílastæði við Barmahlíð 4.
Óskað er eftir að taka gras af lagnasvæði fyrir framan lóð við Barmahlíð 4 að lóðarmörkum Barmahlíðar 4 og 6 og setja niður svo kallaðar rastir (plastmottur sem gras vex í gegnum) til að geta lagt bílum á grasfletinum án þess að skemma grasið. Fyrirhugað er að taka núverandi gróður, setja möl og leggja rastir, setja mold í rastinar og sá grasfræi, þannig að gras komi upp á milli rasta.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að óska eftir frekari gögnum frá umsækjanda. Bókun fundar Afgreiðsla 72. fundar skipulagnefndar staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkvæðum. -
Skipulagsnefnd - 72 Hjalti Sigurðarson og Helga Sjöfn Pétursdóttir óska eftir öðrum fresti til að hefja framkvæmdir við Birkimel 25 í Varmahlíð.
Þau reikna með að klára húsbyggingu ekki seinna en sumar 2026.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að framlengja frest til framkvæmda til og með 31.10.2025 en leggur til við sveitarstjórn að gatnagerðargjöld verði innheimt skv. gildandi samþykkt um gatnagerðargjald, stofngjald fráveitu og byggingarleyfis og þjónustugjöld í sveitarfélaginu Skagafirði nr. 90 https://www.skagafjordur.is/static/files/Gjaldskra/2024/b_nr_90_2024.pdf . Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Birkimelur 25 - Lóðarmál, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Skipulagsnefnd - 72 Karen Lind Skúladóttir lóðarhafi Nestúns 16 óskar eftir að skila lóðinni inn til sveitarfélagsins.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða skil á lóðinni Nestún 16 og felur skipulagsfulltrúa að auglýsa hana að nýju skv. úthlutunarreglum sveitarfélagsins.
Bókun fundar Afgreiðsla 72. fundar skipulagnefndar staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkvæðum. -
Skipulagsnefnd - 72 Málið áður á dagskrá á 71. fundi skipulagsnefndar og þá bókað:
"Fyrir liggur umsagnarbeiðni byggingarfulltrúa dags. 28. mars síðastliðinn með vísan til 10. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010 um umsókn Bjarna Reykjalíns arkitekt og byggingartæknifræðingi, f.h. Sýls ehf. um leyfi til að byggja raðhús á lóðunum númer 25, 27 og 29 við Freyjugötu á Sauðárkróki. Meðfylgjandi aðaluppdrættir gerðir á BR Teiknistofu slf. af Bjarna Reykjalín arkitekt og byggingartæknifræðingi. Uppdrættir númer 100, 101, 102, 103 og 104, dagsettir 18.03.2025. Þar sem fyrirhuguð framkvæmd fellur undir lög um mannvirki nr. 160/2010 er hér með leitað umsagnar skipulagsfulltrúa með vísan til 10. gr. framangreindra laganna. Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fela skipulagsfulltrúa að óska eftir frekari rökstuðningi varðandi nýtingarhlutfall."
Fyrir liggur rökstuðningur sem barst dags. 28.04.2025.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að gera ekki athugasemd við fyrirhugaðra byggingar raðhús við Freyjugötu 25, 27 og 29 skv. framlögðum gögnum, uppdrættir númer 100, 101, 102, 103 og 104, dagsettir 18.03.2025 gerðir af Bjarna Reykjalín auk rökstuðnings sem barst í tölvupósti 28.04.2025.
Skipulagsnefnd fellst á rökstuðning umsækjanda þess efnis að um svo óveruleg frávik er að ræða að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn. Skipulagsnefnd er heimilt að falla frá grenndarkynningu ef sýnt er fram á að breyting á deiliskipulagi eða leyfisskyld framkvæmd varði ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og/eða umsækjanda. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Freyjugata 25, 27 og 29 - Umsagnarbeiðni frá byggingarfulltrúa, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. - 12.13 2504112 Kerfisáætlun Landsnets 2025-2034 - Kynning umhverfismatsskýrslu (Umhverfismat áætlana)Skipulagsnefnd - 72 Skipulagsstofnun hefur óskað eftir umsögn Skagafjarðar við eftirfarandi mál í Skipulagsgátt:
- Kerfisáætlun 2025-2034, nr. 0509/2025:
Kynning umhverfismatsskýrslu (Umhverfismat áætlana) https://skipulagsgatt.is/issues/2025/509 .
Kynningartími er frá 9.4.2025 til 31.5.2025.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að gera ekki athugasemd við Kerfisáætlun Landsnets 2025-2040. Bókun fundar Afgreiðsla 72. fundar skipulagnefndar staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkvæðum. -
Skipulagsnefnd - 72 Starfshópur á vegum innviðaráðuneytisins vinnur tillögu að stefnu fyrir virka ferðamáta (ganga og hjólreiðar) og smáfarartæki. Starfshópnum var falið að meta stöðu virkra ferðamáta og smáfarartækja á Íslandi ásamt valkostum sem til staðar eru til að efla ferðamátana.
Starfshópurinn óskar hér með eftir ábendingum frá viðeigandi sérfræðingum sveitarfélaga um hvernig hægt er að bæta stöðu ferðamátanna, þar með talið aðgengi og öryggi.
Vakin er athygli á skömmum fyrirvara en einnig er stefnt á að birta tillögu að stefnunni í Samráðsgátt í vor svo þá mun gefast frekara tækifæri til athugasemda. Starfshópurinn telur þó mikilvægt að fá athugasemdir frá sveitarfélögunum á þessu stigi vinnunnar.
Til upplýsingar, þá er starfshópurinn skipaður fulltrúum frá Háskóla Íslands, innviðaráðuneytinu, Samgöngustofu, Sambandi Íslenskra sveitarfélaga, Landssamtökum hjólreiðamanna og Vegagerðinni.
Er þess óskað að svör berist í hrefna.hallgrimsdottir@irn.is eigi síðar en 28. apríl nk. Bókun fundar Afgreiðsla 72. fundar skipulagnefndar staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkvæðum. -
Skipulagsnefnd - 72 Lögð fram til kynningar fundargerð byggingarfulltrúa frá fundi nr. 61 þann 16.04.2025. Bókun fundar Afgreiðsla 72. fundar skipulagnefndar staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkvæðum.
13.Skipulagsnefnd - 73
Málsnúmer 2505011FVakta málsnúmer
-
Skipulagsnefnd - 73 Lögð fram deiliskipulagstillaga "Sauðárkrókur Athafnarsvæði AT-403" dags. 06.05.2025, útgáfa 1.0, uppdráttur DS01, greinargerð og jarðvegskönnun.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að auglýsa deiliskipulagstillöguna fyrir "Sauðárkrókur Athafnarsvæði AT-403" í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Athafnarsvæði - Sauðárkrókur - AT-403 - Deiliskipulag, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða. -
Skipulagsnefnd - 73 Farið yfir innsendar umsagnir við deiliskipulagsbreytingu fyrir "Mjólkursamlagsreitur Sauðárkróki" sem var í kynningu dagana 05.03.2025- 18.04.2025 í Skipulagsgáttinni mál nr. 280/2025, sjá tengil hér: https://skipulagsgatt.is/issues/2025/271 .
Innsendar umsagnir gefa ekki tilefni til breytinga.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða deiliskipulagsbreytinguna "Mjólkursamlagsreitur Sauðárkróki" og felur skipulagsfulltrúa að senda Skipulagsstofnun deiliskipulagsbreytingartillöguna til yfirferðar í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Afgreiðsla 73. fundar skipulagnefndar staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkvæðum. -
Skipulagsnefnd - 73 Farið yfir innsendar umsagnir við deiliskipulagstillögu fyrir "Borgarteigur 15 Sauðárkróki" sem var í kynningu dagana 05.03.2025- 18.04.2025 í Skipulagsgáttinni mál nr. 280/2025, sjá tengil hér: https://skipulagsgatt.is/issues/2025/280 .
Innsendar umsagnir gefa ekki tilefni til breytinga.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða tillögu að deiliskipulagi "Borgarteigur 15 Sauðárkróki" og felur skipulagsfulltrúa að senda Skipulagsstofnun deiliskipulagstillöguna til yfirferðar í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Afgreiðsla 73. fundar skipulagnefndar staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkvæðum. -
Skipulagsnefnd - 73 Guðmundur Sverrisson f.h. Makíta ehf. óskar eftir nýjum byggingarreitum á Brúarlandi Deildardal L146511.
Reitur A fyrirhugað að reisa ca. 40 m² gróðurhús og reitur B fyrirhugað að reisa ca. 30 m² aðstöðuhús fyrir skórækt.
Reitur A er rétt ofan við gamlar tóftir sem ekki stendur til að hreyfa við.
Sbr. leyfi Minjavarðar Skagafjarðar stendur til að hylja þær með jarðvegi vegna mikillar slysahættu.
Sbr. umsögn Minjastofunar Íslands þar sem m.a. kemur fram að í ljósi þess að byggingareitir eru innan gamla heimatúnsins og heimildir eru um bænhús og beinafundi nærri bænum þá er farið fram á framkvæmdaeftirlit fornleifafræðings þegar grafið verður fyrir lögnum og undirstöðum húsa.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðna byggingarreiti. Bókun fundar Forseti gerir tillögu um að vísa afgreiðslu málsins til liðarins, Brúarland Deildardal - Umsókn um byggingarreit, síðar á dagskrá fundarins. Samþykkt samhljóða.
14.Byggingarnefnd Sundlaugar Sauðárkróks - 36
Málsnúmer 2504007FVakta málsnúmer
-
Byggingarnefnd Sundlaugar Sauðárkróks - 36 Farið var yfir stöðu framkvæmda við sundlaug Sauðárkróks á árinu 2025 og næstu skref. Stefnt er að opnun nýja laugarsvæðisins í maí. Unnið er að yfirferð útboðsgagna fyrir stóru rennibrautirnar og turninn í samvinnu við Fjársýslu ríkisins og miðað við að útboð verði auglýst í vor.
Einnig var lögð fram tillaga að breyttri útfærslu á öryggisgirðingu sem miðar að uppsetningu öryggisgirðingar með öryggisgleri á sundlaugarbakka í stað þess að hafa girðingu utan manarsvæðis. Með því næst auðveldari yfirsýn yfir svæðið fyrir bæði starfsmenn sundlaugarinnar og foreldra barna. Einnig verður umhirða lóðar mun auðveldari og ásýnd betri. Sú tillaga var samþykkt samhljóða. Bókun fundar Afgreiðsla 36. fundar byggingarnefndar Sundlaugar Sauðárkróks staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkvæðum.
15.Skógargata 1 - Umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2104058Vakta málsnúmer
Fyrirhugaðar framkvæmdir samræmast skipulagsáætlunum á svæðinu og framlagðir uppdrættir uppfylla ákvæði laga og reglugerða.
Þar sem umrætt hús er innan verndarsvæðis í byggð óskar byggingarfulltrúi eftir því við sveitastjórn Skagafjarðar að tekin sé afstaða til umsóknarinnar sbr. 6. gr. laga nr. 87/2015 um verndarsvæði í byggð.
Meðfylgjandi aðaluppdrættir gerðir af Þóri Guðmundssyni byggingarfræðingi, númer A-100 til og með A-105, dagsettir 06.04.2021, breytt í apríl 2025 gera grein fyrir fyrirhuguðum breytingum.
Forseti gerir það að tillögu sinni að fela byggingarfulltrúa að auglýsa hina fyrirhuguðu framkvæmd og skal auglýsingatími vera tvær vikur. Hafi ábendingar/athugasemdir varðandi fyrirhugaða framkvæmd ekki borist á auglýsingatíma er byggingarfulltrúa falin afgreiðsla málsins.
Tillagan borin upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykkt með níu atkvæðum.
16.Beiðni um lausn frá störfum
Málsnúmer 2505005Vakta málsnúmer
Sveitarstjórn samþykkir með níu atkvæðum, að veita Sigurði lausn úr embætti.
17.Endurtilnefning formanns í atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd
Málsnúmer 2505091Vakta málsnúmer
Forseti gerir tillögu um Ragnar Helgason í embætti formanns atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar.
Aðrar tilnefningar bárust ekki og skoðast hann því rétt kjörinn.
18.Endurtilnefning varamanns í sveitarstjórn
Málsnúmer 2505113Vakta málsnúmer
Forseti gerir tillögu um Jón Daníel Jónsson sem varamann í sveitarstjórn.
Aðrar tilnefningar bárust ekki og skoðast hann því rétt kjörinn.
19.Kjör varamanns í fulltrúaráð Eignarhaldsfélags Brunabótafélags Íslands 2025
Málsnúmer 2505092Vakta málsnúmer
Aðrar tilnefningar bárust ekki og skoðast hann því rétt kjörinn.
20.Ósk um tímabundið leyfi frá störfum félagsmála- og tómstundanefndar
Málsnúmer 2505104Vakta málsnúmer
Sveitarstjórn samþykkir með níu atkvæðum að veita Önnu Lilju umbeðið tímabundið leyfi frá störfum félagsmála- og tómstundanefndar.
21.Endurtilnefning í félagsmála- og tómstundanefnd
Málsnúmer 2505105Vakta málsnúmer
Forseti gerir tillögu um Jóhönnu Ey Harðardóttur sem áheyrnarfulltrúa í félagsmála- og tómstundanefnd.
Aðrar tilnefningar bárust ekki og skoðast hún því rétt kjörin.
22.Ósk um tímabundið leyfi frá nefndarstörfum í fræðslunefnd
Málsnúmer 2502117Vakta málsnúmer
Lagt fram erindi frá Kristóferi Má Maronssyni dagsett 12. maí sl. þar sem hann óskar eftir að framlengja áður veitt tímabundið leyfi frá störfum sem formaður fræðslunefndar Skagafjarðar til 18. júní 2025.
Sveitarstjórn samþykkir með níu atkvæðum, að veita Kristóferi umbeðið leyfi.
23.Endurtilnefning í fræðslunefnd
Málsnúmer 2502121Vakta málsnúmer
Forseti ber upp tillögu um Hrund Pétursdóttur sem formann fræðslunefndar, Sigrúnu Evu Helgadóttur sem aðalmann og Sólborgu Sigurrós Borgarsdóttur sem varamann Sigrúnar Evu.
Aðrar tilnefningar bárust ekki og skoðast þau því rétt kjörin.
24.Neðri-Ás 2, land 3 og 4 - Umsókn um deiliskipulag
Málsnúmer 1505046Vakta málsnúmer
„Málið áður á dagskrá 61. fundar skipulagsnefndar þann 16.10.2024 þá bókað:
"Farið yfir innsendar umsagnir við deiliskipulagstillögu fyrir "Neðri-Ás 2 í Hjaltadal, land 3 og 4" sem var í kynningu dagana 10.07.2024- 30.08.2024 í Skipulagsgáttinni mál nr. 880/2024, sjá tengil hér: https://skipulagsgatt.is/issues/2024/880/. Alls bárust 10 umsagnir og gefa nokkar þeirra tilefni til breytinga. Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fela skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram."
Lögð fram uppfærð gögn dags. 09.04.2025, greinargerð og uppdráttur frá Kollgátu arkitektastofu þar sem tekið hefur verið tillit til innsendra umsagna við auglýsta deiliskipulagstillögu.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn Skagafjarðar að samþykkja tillöguna að deiliskipulagi "Neðri-Ás 2, land 3 og 4" og senda hana Skipulagsstofnun til yfirferðar í samræmi við 1. mgr. 42. gr skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt þau viðbrögð sem lögð eru fram við umsögnum og felur skipulagsfulltrúa að senda svör til þeirra aðila sem sendu inn umsagnir á kynningartíma.“
Sveitarstjórn samþykkir, með níu atkvæðum, tillöguna að deiliskipulagi "Neðri-Ás 2, land 3 og 4" og felur skipulagsfulltrúa senda hana Skipulagsstofnun til yfirferðar í samræmi við 1. mgr. 42. gr skipulagslaga nr. 123/2010.
25.Lækjarbakki 6 Steinsstöðum - Beiðni um óverulega breytingu á deiliskipulagi
Málsnúmer 2502226Vakta málsnúmer
„Málið áður á dagskrá sveitarstjórnar 12.03.2025, eftirfarandi bókað:
"Vísað frá 69. fundi skipulagsnefndar frá 5. mars sl. til afgreiðslu sveitarstjórnar, þannig bókað: "Sigrún Vilhelmsdóttir hjá Verkfræðistofu Suðurnesja sækir fyrir hönd lóðarhafa Lækjarbakka 6 á Steinsstöðum um óverulega breytingu á gildandi deiliskipulagi. Breytingin felst í því að byggingarreitur á lóðinni Lækjarbakka 6 er stækkaður til norðurs um 2 metrar úr 20 m í 22 m. Þar sem þessi stækkun snýr að gögnustíg á milli lóðanna Lækjarbakka 4 og 6 þá hefur breytingin ekki áhrif á nærliggjandi lóðir. Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að grenndarkynna óverulega breytingu á gildandi deiliskipulagi fyrir lóðarhöfum Lækjarbakka nr. 5 og 7, skv. 43. og 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010." Sólborg Sigurrós Borgarsdóttir vék af fundi sveitarstjórnar við afgreiðslu þessa máls. Sveitarstjórn samþykkir, með átta atkvæðum að fela skipulagsfulltrúa að grenndarkynna óverulega breytingu á gildandi deiliskipulagi fyrir lóðarhöfum Lækjarbakka nr. 5 og 7, skv. 43. og 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010."
Fyrirliggja yfirlýsingar mótteknar af skipulagsfulltrúa 02.04.2025 þar sem fram kemur að lóðarhafar Lækjarbakka 5 og 7 geri ekki athugasemdir við óverulegar breytingar á deiliskipulagi Íbúðabyggðar Steinsstaða skv. grenndarkynningargögnum.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja óverulega breytingu á deiliskipulagi "Steinsstaðir, Skagafirði, Lækjarbakki og Lækjarbrekka. Íbúðarbyggð - ÍB-801, óveruleg breyting á deiliskipulagi" og senda hana til Skipulagsstofnunar og birta samþykkt hennar í B-deild Stjórnartíðinda.“
Sveitarstjórn samþykkir, með átta atkvæðum óverulega breytingu á deiliskipulagi "Steinsstaðir, Skagafirði, Lækjarbakki og Lækjarbrekka. Íbúðarbyggð - ÍB-801, óveruleg breyting á deiliskipulagi" og felur skipulagsfulltrúa að senda hana til Skipulagsstofnunar og birta samþykkt hennar í B-deild Stjórnartíðinda. Sólborg S Borgarsdóttir vék af fundi undir afgreiðslu málsins.
26.Neskot L146872 - Umsókn um stofnun byggingarreits
Málsnúmer 2504113Vakta málsnúmer
„Helga G. Vilmundardóttir arkitekt sækir fyrir hönd Össurar Willard þinglýsts eiganda jarðarinnar Neskot L146872 að stofna byggingarreit á jörðinni fyrir kalda geymslu.
Byggingarreiturinn er 26 x36 m eða 936 m2.
Byggingarreiturinn er staðsettur 17,6 m frá norðaustur horni núverandi húss.
Landnotkunarflokkur er í samræmi við gildandi aðalskipulag fyrir svæðið.
Byggingarreiturinn hefur engin áhrif á búrekstrarskilyrði og skerða ekki landbúnaðarsvæði í I. flokki.
Engin verndarsvæði skv. gildandi aðalskipulagi eru innan byggingarreitsins. Fyrir liggur jákvæð umsögn Minjastofnunar, dags. 02.03. 2025.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðinn byggingarreit.“
Sveitarstjórn samþykkir, með níu atkvæðum umbeðinn byggingarreit.
27.Hjaltastaðir land L180161 - Umsókn um stofnun byggingarreits
Málsnúmer 2504033Vakta málsnúmer
„Berglind Svava Arngrímsdóttir og Jóhann Ari Böðvarsson þinglýstir eigendur lóðarinnar Hjaltastaðir land, landnr. 180161, óska eftir heimild til að stofna 59,5 m² byggingarreit á lóðinni, skv. meðfylgjandi, hnitsettum afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki 76620000 útg. 27. mars 2025. Afstöðuppdráttur var unnin á Stoð verkfræðistofu ehf.
Um er að ræða byggingarreit fyrir bílskúr sem verður byggður við núverandi íbúðarhús. Áformað er að bílskúr verði jafn breiður núverandi húsi. Hámarks byggingarhæð verður 5 m og þakgerð verður flatt eða einhalla með halla til norðurs. Hámarksbyggingarmagn verður 59,5 m². Meðfylgjandi afstöðuuppdráttur gerir grein fyrir staðsetningu og áætluðu útliti fyrirhugaðrar viðbyggingar. Þó er áréttað að hönnun er á frumstigi og gæti tekið breytingum frá því sem sýnt er á meðfylgjandi afstöðumynd, innan þeirra skilmála sem sótt er um varðandi stærð byggingarreits, hámarks byggingarmagns og byggingarhæð.
Byggingarreitur, sem sótt er um, er á skilgreindu landbúnaðarsvæði í aðalskipulagi Akrahrepps 2010-2022 og stendur ekki í vegi fyrir að markmiðum aðalskipulags um uppbyggingu á landbúnaðarsvæðum, sem fjallað er um í kafla 4.14.2, verði framfylgt. Reiturinn gengur ekki á ræktað land eða votlendissvæði, stendur ekki í vegi fyrir frekari uppbyggingu landbúnaðarbygginga, skerðir ekki möguleika á skógrækt eða gengur inn á hentug skilyrði fyrir hinar ýmsu greinar landbúnaðar. Þá er hann á þegar byggðu svæði sem styður hagkvæma landnotkun. Byggingarreitur gengur að einhverju leyti inn á túnslóða sem liggur niður að túnum neðan við bæjarhlaðið. Svigrúm er til staðar til að hliðra slóðanum, á þessum kafla, svo aðgengi að túnum skerðist ekki. Lögð verður áhersla á að áformuð bygging samrýmist einnig yfirbragði og ásýnd svæðisins og hafi ekki neikvæð umhverfisáhrif.
Byggingaráform kunna að varða hagsmuni eigenda nærliggjandi landeigna; Hjaltastaða, L146301, Hjaltastaða 2, L225439, Hjalla lands, L221439, og Hjalla lands, L146300. Uppbyggingaráform hafa ekki áhrif á aðgengi eða landnotkun á Hjalla, landnr. 146299. Meðfylgjandi afstöðuuppdráttur sýnir áætlaða staðsetningu fyrirhugðrar byggingar innan byggingarreits, snið og ásýndarmyndir, fyrir og eftir framkvæmdir. Hönnunargögn eru ekki fullunnin, sbr. ákvæði 5.9.7. gr. skipulagsreglugerðar nr. 90/2013.
Óskað hefur verið eftir umsögn minjavarðar.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að grenndarkynna umbeðinn byggingarreit fyrir eigendum Hjaltastaða L146301, Hjaltastaða L225439, Hjalla L146299, Hjalla land L221439 og Hjalla 2 L146300.
Sæunn Kolbrún Þórólfsdóttir skipulagsfulltrúi vék af fundi við umfjöllun og afgreiðslu erindisins. Sigurður H. Ingvarsson kom inn sem staðgengill skipulagsfulltrúa.“
Sveitarstjórn samþykkir, með níu atkvæðum að grenndarkynna umbeðinn byggingarreit fyrir eigendum Hjaltastaða L146301, Hjaltastaða L225439, Hjalla L146299, Hjalla land L221439 og Hjalla 2 L146300.
28.Freyjugata 31, 33 og 35 - Umsagnarbeiðni byggingarfulltrúa
Málsnúmer 2503337Vakta málsnúmer
„Fyrir liggur umsókn frá BR Teiknistofu slf., Bjarna Reykjalín fh. Sýls ehf. um frávik á deiliskipulagsskilmálum vegna fyrirhugaðra byggingar raðhús við Freyjugötu 31, 33 og 35 ásamt skýringaruppdrætti. Einnig ligur fyriryfirlýsing eigenda íbúða í raðhúsi nr. 3 og 5 við Ránarstíg dags. 4.4.2025 þar sem fram kemur að ekki sé gerð athugasemd við umbeðin frávik. Eigandi raðhúsaíbúðar nr. 7 við Ránarstíg er lóðarhafi nefndrar Freyjugötulóðar.
Í umsókn segir m.a.:
"Í ljós hefur komið að vegghæðir upphækkaðs stofuhluta í fyrirhuguðum íbúðum í Freyjugötu 31-35 fer u.þ.b. 39 cm upp fyrir viðmiðunarhæð skv. gildandi deiliskipulagsskilmálum. Á meðfylgjandi skýringaruppdrætti er nánar gerð grein fyrir hæðum húsa á lóðum nr. 25-29 og 31-33 með tilliti til þakhalla og hámarks vegg- og mænishæðar í umræddum skilmálum. Sambærilegar hæðir á húsi 25-29 eru innan viðmiðunarmarka eins og sjá má á uppdrætti. Í tilfelli húss nr. 31-33 er um að ræða mistök sem stafa m.a. af því að áður var sveitarfélagið búið að samþykkja eins teikningar af Ránarstíg 1-5 án athugasemda þótt þar giltu sömu skilmálar og því láðist að taka tillit til gildandi deiliskipulagsskilmála í fyrrgreindu tilfelli.
Það var alltaf ætlunin að öll húsin þrjú við Freyjugötu og Ránarstíg yrðu eins að öðru leyti en því að upphækkaðir stofuhlutar húsanna yrðu í mismunandi litum. Það er vilji framkvæmdaaðilans að halda sig við upphaflegar hugmyndir án breytinga og þar sem aðeins stofuútveggur fer ekki nema að mjög óverulegu leyti upp fyrir hæðamörk skipulagsins er hér með óskað eftir því við skipulagsnefnd að hún samþykki fyrrgreind frávik og leggist ekki gegn því að veitt verði byggingarleyfi án breytinga á deiliskipulagi með vísan í til 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.123/2010 og/eða 3. mgr. 44. gr. sömu laga þar sem um mjög óveruleg frávik frá samþykktum skilmálum er að ræða."
Skipulagsnefnd fellst á rökstuðning umsækjanda þess efnis að um svo óveruleg frávik er að ræða að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn. Skipulagsnefnd er heimilt að falla frá grenndarkynningu ef sýnt er fram á að breyting á deiliskipulagi eða leyfisskyld framkvæmd varði ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og/eða umsækjanda.
Framlögð gögn umsækjanda varðandi fyrirhugaða byggingu raðhús við Freyjugötu 31, 33 og 35 eru, uppdrættir númer 100, 101, 102, 103 og 104, dagsettir 18.03.2025, skýringaruppdráttur "Snið í byggingarreit" dags. 18.03.2025 gerðir af Bjarna Reykjalín.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að gera ekki athugasemd við fyrirhugaða byggingu raðhús við Freyjugötu 31, 33 og 35 skv. framlögðum gögnum.“
Sveitarstjórn samþykkir, með níu atkvæðum að gera ekki athugasemd við fyrirhugaða byggingu raðhús við Freyjugötu 31, 33 og 35 skv. framlögðum gögnum.
29.Bakkakot L146146 - Staðfesting landamerkja og umsókn um stofnun landspildu
Málsnúmer 2502035Vakta málsnúmer
„Mál áður á dagskrá skipulagsnefndar þann 05.03.2025.
Á 36. fundi sveitarstjórnar Skagafjarðar 12. mars sl. gerir forseti tillögu um að vísa málinu aftur til afgreiðslu skipulagsnefndar. Tillagan samþykkt samhljóða.
Swanhild Ylfa K R Leifsdóttir og Þorsteinn Ragnar Leifsson þinglýstir eigendur jarðarinnar Bakkakots í Skagafirði, landnúmer 146146 óska eftir staðfestingu landamerkja og stofnunar landspildu úr landi jarðarinnar, sem "Bakkakot I", skv. meðfylgjandi undirritaðri merkjalýsingu dags. áritana 03.02.2025, uppdráttur númer 71930105. Merkjalýsingin var unnin á Stoð ehf. verkfræðistofu af Ínu Björk Ársælsdóttir. Óskað er eftir að Bakkakot I, verði skráð sem "jörð". Lögbýlarétturinn mun fylgja Bakkakoti, landnr. 146146. Landskipti og landnotkun eru í samræmi við ákvæði 12. kafla greinagerðar Aðalskipulags Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2020-2035 og fyrirhuguð landnotkun er í samræmi við skilmála aðalskipulags fyrir landnotkun á landbúnaðarsvæði nr. L-1 og L-3. Ekki er verið að sækja um lausn úr landbúnaðarnotkun. Engin verndarsvæði skv. gildandi aðalskipulagi eru innan útskiptrar spildu. Merkjalýsingin hefur verið skráð í landeignarskráningarkerfi HMS, málsnr. M001365.
Skipulagsnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðin landskipti.“
Sveitarstjórn samþykkir, með níu atkvæðum umbeðin landskipti.
30.Umsókn um stofnun þjóðlendu - Silfrastaðaafrétt í Skagafirði
Málsnúmer 2503229Vakta málsnúmer
„Lögð fram umsókn Regínu Sigurðardóttur fyrir hönd forsætisráðuneytisins dags. 26.02.2025 um stofnun þjóðlendu, Silfrastaðaafrétt í Skagafirði.
Umsókn um stofnun fasteignar (þjóðlendu), sbr. 14. gr. laga um skráningu, merki og mat fasteigna, nr. 6/2001, með síðari breytingum.
Landsvæði það sem óskast stofnað er þjóðlenda skv. úrskurðum óbyggðanefndar í máli nr. 2/2009, dags. 11. október 2011 og í máli nr. 4/2008, dags. 19. júní 2009 og dómi Héraðsdóms Norðurlands vestra í máli nr. 24/2010, dags. 13. maí 2013. Um hana fer eftir ákvæðum laga um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta, nr. 58/1998, með síðari breytingum.
Landeigandi: íslenska ríkið, skv. 2. gr. laga nr. 58/1998.
Fyrirsvarsmaður: Forsætisráðherra skv. d-lið, 7. tölul. 1. gr. forsetaúrskurðar nr. 6/2022 um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Land innan eftirfarandi marka, þ.e. Silfrastaðaafrétt er þjóðlenda.
Afmörkun svæðisins sbr. úrskurði óbyggðanefndar, dómsorðum Héraðsdóms Norðurlands vestra:
Texti sem er feitletraður hefur verið bætt við þar sem mörk þjóðlendunnar eru úrskurðuð í tveimur málum hjá óbyggðanefnd (málum 2/2009 og 4/2008) og þar sem sveitarfélagamörk ráða mörkum.
Úr úrskurði óbyggðanefndar í máli nr. 2/2009:
Upphafspunktur þar sem Grjótá fellur í Heiðará á sýslumörkum í Norðurárdal (si1).
Þaðan er haldið með Grjótá og síðan eystri Grjótárdal, yfir Grjótárdalsdrög að fyrrum hornmarki milli Akrahrepps, Skriðuhrepps og Öxnadalshrepps (si2). Síðan er fyrrum hreppamörkum Akrahrepps og Skriðuhrepps fylgt samkvæmt leiðréttum sveitarfélagamörkum eftir Lúpá (si2a) og 1179m hæðarpunkt (si2b) í Ólafarhnjúkum og áfram allt að fyrrum hornmarki milli Akrahrepps, Skriðuhrepps og Hólahrepps við Hjaltadalsjökul (si3). Þaðan með fyrrum hreppamörkum Akrahrepps og Hólahrepps um Suðurárdalshnjúk í Reykjanibbu (1302 m) (si4). Þaðan er háfjallinu fylgt til suðvesturs í 1298 m hæðarpunkt (si5) og síðan til suðausturs í 1247 m hæðarpunkt (si6) vestan við botn Seljadals. Þaðan er línan áfram dregin eftir háfjöllum í 1224 m hæðarpunkt (si7) norðvestan við botn Smaladals. Þaðan er háfjallinu enn fylgt til vesturs og síðan suðvesturs í 1209 m hæðarpunkt (si8) fyrir botni á Fýlsmýrum og Kleifum og síðan í 1210 m hæðarpunkt (si9) fyrir botni Fletjárdals. Þaðan er Fletjá fylgt suður í Valagilsá (si10).
Úr dómsorðum Héraðsdóms Norðurlands vestra í máli nr. E24/2010 (tölustafir innan sviga án si á undan eru teknir beint úr dómsorðum Héraðsdóms):
Þaðan er Valagilsá fylgt að þeim stað sem Smalalækur fellur í hana (si11) (2). Þaðan er línan dregin beina stefnu í Landshnjúk (si12) (3). Frá Landshnjúki er línan dregin beina stefnu í Landsendagjá við Horná (si13) (4). Frá Landsendagjá er línan dregin í Horná og ánni fylgt þar til hún fellur í Norðurá (si14). Norðurá síðan fylgt niður að ármótum við Króká (si15).
Úr úrskurði óbyggðanefndar í máli nr. 4/2008 (línan fer ranglætis):
Upphafspunktur er við sýslumörk Skagafjarðar- og Eyjafjarðarsýslna á Öxnadalsheiði (þar sem Grjótá fellur í Heiðará) (si1). Þar sem Króká fellur í Heiðará er punktur (si16).
Síðan er Króká fylgt til suðurs í botn Ernisdals og þaðan beina stefnu á punkt nr. 16 á kröfulínu gagnaðila ríkisins (si17). Þaðan er fylgt kröfulínu gagnaðila ríkisins þar til komið er að punkti nr. 14 á henni (si18). Þaðan er línan dregin í drög Kaldbaksdals (si19) og eftir daldrögunum í Kaldbaksá (si20). Síðan er Kaldbaksá fylgt þar til komið er að skurðpunkti við línu sem dregin er beina stefnu frá Vatnsgötu á Öxnadalsheiði (þar sem vötnum fyrst hallar
vestur af heiðinni) um Tjaldhól í Kaldbaksá (si21). Frá skurðpunktinum er nefndri línu fylgt í Vatnsgötu (si22) á Öxnadalsheiði. Þaðan er línan dregin eftir sveitarfélagamörkum í upptök Heiðarár (si23) og Heiðará síðan fylgt að þeim stað þar sem Grjótá fellur í hana (si1).
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðna stofnun þjóðlendu, Silfrastaðaafrétt í Skagafirði.“
Sveitarstjórn samþykkir, með níu atkvæðum umbeðna stofnun þjóðlendu, Silfrastaðaafrétt í Skagafirði.
31.Framkvæmdaleyfisumsókn vegna ljósvæðingar á Sauðárkróki
Málsnúmer 2504198Vakta málsnúmer
„Grétar Ómarsson sækir fyrir hönd Mílu ehf. um framkvæmdaleyfi vegna lagningu ljósleiðara á Sauðárkróki sumarið 2025.
Áætlaður verktími jarðvinnu er 20-25 dagar og vonumst við til að hefja framkvæmdir í lok maí eða byrjun júní.
Skurðgröftur verður að mestu innanlóða en opna þarf holur til að tengja saman heimtaugarör við stofnrör í gangstéttum þar sem innviðir eru til staðar.
Allar áætlaðar tengiholur eru merktar með rauðum hring og skurðir merktir með punktalínum, sjá verkblað.
Míla mun ljúka ljósleiðaravæðingu á Sauðárkróki í sumar, þá eiga öll heimili sem samþykktu ljósleiðaraframkvæmd að vera tengd.
Staðfangalisti í framkvæmd 2025 er eftirtalin:
Aðalgata 12, 14, 20 og 22
Freyjugata 1, 1 B, 10 og 10 B
Sæmundargata 13 og 15
Bárustígur 13 og 17
Hólavegur 7, 9 og 11
Sæmundargata 8
Ægisstígur 2, 4, 6, 8 og 10
Bárustígur 7, 8, 9 a, 9, 10, 11, 12, 14 og 16
Hólavegur 13, 15 og 17
Öldustígur 9, 11, 13, 15 og 17
Bárustígur 2, 4 og 6
Hólavegur 16 A, 16 B, 16, 18 og 20
Smáragrund 1
Öldustígur 1, 3, 5 og 7
Borgarflöt 5
Sauðármýri 1
Borgartún 6
Ártorg 6
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að veita umbeðið framkvæmdarleyfi.“
Sveitarstjórn samþykkir, með níu atkvæðum að veita umbeðið framkvæmdarleyfi.
32.Litla-Gröf 2 L232798 - Umsókn um framkvæmdaleyfi
Málsnúmer 2504200Vakta málsnúmer
„Þann 12.02.2025 samþykkti sveitarstjórn Skagafjarðar breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2020-2035 varðandi efnistöku- og efnislosunarsvæði E-48 í landi Litlu-Grafar 2, L232798, á Langholti Skagafirði. Málsnúmer í skipulagsgátt er 877/2024 og hefur Skipulagsstofnun lokið yfirferð.
Rúnar Skarphéðinn Símonarson, f.h. Vinnuvéla Símonar ehf., þinglýsts eiganda landeignarinnar Litla-Gröf 2, landnúmer 232798, óskar eftir framkvæmdaleyfi í samræmi við umrædda breytingu á aðalskipulagi, á grundvelli ákvæða 7. gr. reglugerðar nr. 772/2012 um framkvæmdaleyfi þar sem kveðið er á um að heimilt sé að veita framkvæmdaleyfi á grundvelli aðalskipulags ef gerð er grein fyrir framkvæmdinni í aðalskipulagi og fjallað um umfang, frágang og áhrif á umhverfi. Fyrir liggja uppdrættir, dags. 27. júní 2023 og greinargerð vegna efnisnámu í Litlu-Gröf 2, útg 1.1, dags. 24.07.2023 sem voru fylgigögn með beiðni um breytingu á aðalskipulagi. Í ofannefndri aðalskipulagsbreytingu og fyrirliggjandi gögnum er gerð frekari grein fyrir framkvæmdinni.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að veita umbeðið framkvæmdarleyfi.“
Sveitarstjórn samþykkir, með níu atkvæðum að veita umbeðið framkvæmdarleyfi.
33.Enni L146518 - Staðfesting á ytri merkjum jarðarinnar, landskipti og nafnabreyting
Málsnúmer 2504190Vakta málsnúmer
„Hrefna Skjóldal Óttarsdóttir og Auður R. Þorbjarnardóttir Skjóldal þinglýstir eigendur jarðarinnar Ennis, landnúmer 146518 óska eftir staðfestingu á hnitsettum ytri merkjum jarðarinnar og heimild til að stofna 117,24 ha spildu úr landi jarðarinnar, sem "Enni II" skv. merkjalýsingu í verki nr. 74201000 útg. dags. 22.10.2024 unnin af Ínu Björk Ársælsdóttur á Stoð verkfræðistofu ehf.
Einnig er óskað eftir breytingu á heiti á upprunajörðinni Enni lnr. 146518 sem fái heitið "Enni I" og haldi landnúmerinu 146518 að landskiptum loknum.
Skýring á landheitum vísar til fyrri heita jarðanna en árið 1997 voru jarðirnar Enni I og Enni II sameinaðar í Enni lnr. 146518.
Allar fasteignir á jörðinni munu fylgja Enni I að landskiptum loknum.
Lögbýlarétturinn mun áfram fylgja Enni (Enni I), landnr. 146518.
Landnotkun á Enni II verði áfram "jörð".
Ræktað land innan útskiptrar spildu (Ennis II) er 15 ha. að stærð.
Enginn hlunnindi fylgja landsskiptunum.
Stofnað land verður í eigu sömu eigenda og Enni.
Landskipti og landnotkun eru í samræmi við ákvæði 12. kafla greinagerðar aðalskipulags Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2020-2035 og fyrirhuguð landnotkun er í samræmi við skilmála aðalskipulags fyrir landnotkun á landbúnaðarsvæði nr. L-1, L-2 og L-3. Ekki er verið að sækja um lausn úr landbúnaðarnotkun.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða staðfestingu á hnitsettum ytri merkjum jarðarinnar og leggur til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðin landskipti og nafn fyrir útskipt land.“
Sveitarstjórn samþykkir, með níu atkvæðum umbeðin landskipti og nafn fyrir útskipt land.
34.Borgarsíða 5 - Borgarsíða 7 - Borgarteigur 6 - Beiðni um skipti á lóðum
Málsnúmer 2504115Vakta málsnúmer
„Ágúst Andrésson fyrir hönd lóðarhafa, lóðanna Borgarsíðu 5 og 7 óska eftir heimild til að hafa skipti á þessum lóðum.
Þannig að Norðar fái Borgarsíðu 5 og Skúli Bragason fái Borgarsíðu 7.
Í framhaldinu munu Ágúst Andrésson og Óli Viðar Andrésson leggja til hugmyndir þeirra um uppbyggingu á lóðum Borgarsíðu 5 og Borgarteigs 6
hvort heldur það verði á sitthvorri lóð eða óskað verði eftir sameiningu þessara tveggja lóða., þ.e.a.s. Borgarsíðu 5 og Borgarteigs 6.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að leyfa umbeðin lóðarskipti.
Alex Már Sigurbjörnsson áheyrnarfulltrúi vék af fundi við afgreiðslu málsins.“
Sveitarstjórn samþykkir, með níu atkvæðum að leyfa umbeðin lóðarskipti.
35.Birkimelur 25 - Lóðarmál
Málsnúmer 2312182Vakta málsnúmer
„Hjalti Sigurðarson og Helga Sjöfn Pétursdóttir óska eftir öðrum fresti til að hefja framkvæmdir við Birkimel 25 í Varmahlíð.
Þau reikna með að klára húsbyggingu ekki seinna en sumar 2026.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að framlengja frest til framkvæmda til og með 31.10.2025 en leggur til við sveitarstjórn að gatnagerðargjöld verði innheimt skv. gildandi samþykkt um gatnagerðargjald, stofngjald fráveitu og byggingarleyfis og þjónustugjöld í sveitarfélaginu Skagafirði nr. 90 https://www.skagafjordur.is/static/files/Gjaldskra/2024/b_nr_90_2024.pdf .“
Sveitarstjórn samþykkir, með níu atkvæðum að gatnagerðargjöld verði innheimt fyrir Birkimel 25 skv. gildandi samþykkt um gatnagerðargjald, stofngjald fráveitu og byggingarleyfis og þjónustugjöld í sveitarfélaginu Skagafirði nr. 90.
36.Freyjugata 25, 27 og 29 - Umsagnarbeiðni frá byggingarfulltrúa
Málsnúmer 2503336Vakta málsnúmer
„Málið áður á dagskrá á 71. fundi skipulagsnefndar og þá bókað:
"Fyrir liggur umsagnarbeiðni byggingarfulltrúa dags. 28. mars síðastliðinn með vísan til 10. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010 um umsókn Bjarna Reykjalíns arkitekt og byggingartæknifræðingi, f.h. Sýls ehf. um leyfi til að byggja raðhús á lóðunum númer 25, 27 og 29 við Freyjugötu á Sauðárkróki. Meðfylgjandi aðaluppdrættir gerðir á BR Teiknistofu slf. af Bjarna Reykjalín arkitekt og byggingartæknifræðingi. Uppdrættir númer 100, 101, 102, 103 og 104, dagsettir 18.03.2025. Þar sem fyrirhuguð framkvæmd fellur undir lög um mannvirki nr. 160/2010 er hér með leitað umsagnar skipulagsfulltrúa með vísan til 10. gr. framangreindra laganna. Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að fela skipulagsfulltrúa að óska eftir frekari rökstuðningi varðandi nýtingarhlutfall."
Fyrir liggur rökstuðningur sem barst dags. 28.04.2025.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að gera ekki athugasemd við fyrirhugaðra byggingar raðhús við Freyjugötu 25, 27 og 29 skv. framlögðum gögnum, uppdrættir númer 100, 101, 102, 103 og 104, dagsettir 18.03.2025 gerðir af Bjarna Reykjalín auk rökstuðnings sem barst í tölvupósti 28.04.2025.
Skipulagsnefnd fellst á rökstuðning umsækjanda þess efnis að um svo óveruleg frávik er að ræða að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn. Skipulagsnefnd er heimilt að falla frá grenndarkynningu ef sýnt er fram á að breyting á deiliskipulagi eða leyfisskyld framkvæmd varði ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og/eða umsækjanda.“
Sveitarstjórn samþykkir, með níu atkvæðum, að gera ekki athugasemd við fyrirhugaðra byggingar raðhús við Freyjugötu 25, 27 og 29 skv. framlögðum gögnum, uppdrættir númer 100, 101, 102, 103 og 104, dagsettir 18.03.2025 gerðir af Bjarna Reykjalín auk rökstuðnings sem barst í tölvupósti 28.04.2025.
37.Athafnarsvæði - Sauðárkrókur - AT-403 - Deiliskipulag
Málsnúmer 2403135Vakta málsnúmer
„Lögð fram deiliskipulagstillaga "Sauðárkrókur Athafnarsvæði AT-403" dags. 06.05.2025, útgáfa 1.0, uppdráttur DS01, greinargerð og jarðvegskönnun.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að auglýsa deiliskipulagstillöguna fyrir "Sauðárkrókur Athafnarsvæði AT-403" í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.“
Sveitarstjórn samþykkir, með níu atkvæðum að auglýsa deiliskipulagstillöguna fyrir "Sauðárkrókur Athafnarsvæði AT-403" í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
38.Brúarland Deildardal - Umsókn um byggingarreit
Málsnúmer 2503333Vakta málsnúmer
„Guðmundur Sverrisson f.h. Makíta ehf. óskar eftir nýjum byggingarreitum á Brúarlandi Deildardal L146511.
Reitur A fyrirhugað að reisa ca. 40 m² gróðurhús og reitur B fyrirhugað að reisa ca. 30 m² aðstöðuhús fyrir skórækt.
Reitur A er rétt ofan við gamlar tóftir sem ekki stendur til að hreyfa við.
Sbr. leyfi Minjavarðar Skagafjarðar stendur til að hylja þær með jarðvegi vegna mikillar slysahættu.
Sbr. umsögn Minjastofunar Íslands þar sem m.a. kemur fram að í ljósi þess að byggingareitir eru innan gamla heimatúnsins og heimildir eru um bænhús og beinafundi nærri bænum þá er farið fram á framkvæmdaeftirlit fornleifafræðings þegar grafið verður fyrir lögnum og undirstöðum húsa.
Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðna byggingarreiti.“
Sveitarstjórn samþykkir, með níu atkvæðum umbeðna byggingarreiti.
39.Auglýsing atvinnulóða
Málsnúmer 2505096Vakta málsnúmer
Byggðarráð samþykkir samhljóða að auglýsa lóðirnar lausar til umsóknar með fyrirvara um staðfestingu sveitarstjórnar á endanlegu deiliskipulagi svæðisins. Dregið verður úr umsóknum verði fleiri en einn umsækjandi um lóð í samræmi við úthlutunarreglur sveitarfélagsins. Skipulagsfulltrúa er falið auglýsa lóðirnar í samræmi við úthlutunarreglur sveitarfélagsins að fenginni staðfestingu sveitarstjórnar.
Borið upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykkt með níu atkvæðum.
40.Ársreikningur Skagafjarðar 2024
Málsnúmer 2501114Vakta málsnúmer
Ársreikningur Sveitarfélagsins Skagafjarðar fyrir árið 2024 er hér lagður fram til seinni umræðu. Ársreikningurinn samanstendur af upplýsingum um A-hluta sveitarsjóðs og A- og B-hluta samantekinn. Í A-hluta er aðalsjóður auk eignasjóðs og þjónustustöðvar. Í B-hluta eru veitustofnanir, hafnarsjóður, félagslegar íbúðir, Tímatákn ehf., Flokka ehf. og Eyvindarstaðaheiði ehf., auk hlutdeildarfélaga sem koma inn í reikningsskil sveitarfélagsins eftir hlutfallslegri ábyrgð sveitarfélagsins, þ.e. Norðurá bs. og Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra.
Rekstrartekjur Skagafjarðar námu á árinu 9.493 m.kr. af samstæðunni í heild, A- og B-hluta. Þar af voru rekstrartekjur A-hluta 8.077 m.kr. Rekstrargjöld samstæðunnar að frátöldum afskriftum og fjármagnsliðum voru 8.130 m.kr., þ.a. A-hluta 7.251 m.kr. Rekstrarniðurstaða A- og B-hluta fyrir afskriftir og fjármagnsliði er jákvæð um 1.364 m.kr., þar af er rekstrarniðurstaða A-hluta fyrir afskriftir og fjármagnsliði jákvæð um 826 m.kr. Afskriftir eru samtals 350 m.kr., þar af 193 m.kr. hjá A-hluta. Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur voru hjá samstæðunni í heild samtals 516 m.kr., þ.a. eru 418 m.kr. fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur í A-hluta sveitarsjóðs. Rekstrarniðurstaða A- og B-hluta á árinu 2024 er jákvæð um 480 m.kr. en rekstrarniðurstaða A-hluta er jákvæð um 215 m.kr.
Eignir Skagafjarðar A- og B-hluta voru í árslok samtals 15.417 m.kr., þ.a. voru eignir A hluta 11.789 m.kr. Skuldir og skuldbindingar voru í árslok 2024 samtals 10.290 m.kr., þ.a. hjá A-hluta 9.007 m.kr. Langtímaskuldir námu alls 6.418 m.kr. hjá A- og B-hluta auk 604 m.kr. næsta árs afborgana. Eigið fé nam 5.127 m.kr. hjá samstæðunni í árslok og er eiginfjárhlutfall 33,3%. Af þessari tölu nam eigið fé A-hluta 2.781 m.kr. og eiginfjárhlutfall 23,6%. Lífeyrisskuldbindingar nema 1.986 m.kr. í árslok.
Veltufé frá rekstri A- og B-hluta nam 1.266 m.kr., þar af er veltufé frá rekstri A-hluta 753 m.kr. Handbært fé frá rekstri A- og B-hluta er 1.350 m.kr. Fjárfestingahreyfingar námu á árinu 2024, 1.139 m.kr., þar af námu fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum 1.268 m.kr. Afborganir og skuldbreytingar langtímalána á árinu 2024 eru 664 m.kr., handbært fé nam 320 m.kr. í árslok. Tekin voru ný langtímalán að fjárhæð 328 m.kr.
Í 64. gr. sveitarstjórnarlaga er kveðið á um að heildarskuldir og skuldbindingar A- og B-hluta í reikningsskilum skv. 60. gr. megi ekki vera hærri en nemur 150% af reglulegum tekjum. Frá heildarskuldum og skuldbindingum er heimilt að draga frá hluta lífeyrisskuldbindinga sem og tekjur og skuldir veitna og langtímakröfu vegna Brúar lífeyrissjóðs. Hjá Skagafirði er skuldahlutfall í ársreikningi fyrir árið 2024, 108% án þess að dreginn sé frá sá hluti af heildarskuldum sem heimilað er í lögum og reglugerð. Skuldaviðmið er 86% þegar búið er að draga frá það sem heimilt er.
Að lokum þakkaði sveitarstjóri öllum þeim sem lögðu á sig ómælda vinnu við gerð þessa ársreiknings.
Álfhildur Leifsdóttir kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi bókun:
VG og óháð samþykkir ársreikning Skagafjarðar fyrir árið 2024 en við viljum koma eftirfarandi sjónarmiðum á framfæri.
Við fögnum því að rekstrarniðurstaða A og B hluta er jákvæð um 480 milljónir króna og að eigið fé sveitarfélagsins heldur áfram að styrkjast. Einnig teljum við það til bóta að rekstur hafi í meginatriðum farið fram í samræmi við fjárhagsáætlun og að óháður endurskoðandi hafi gefið fyrirvaralausa áritun.
Við teljum þó nauðsynlegt að vekja athygli á nokkrum þáttum sem betur mega fara:
Í endurskoðunarskýrslu KPMG kemur fram að verulegir veikleikar séu til staðar í innra eftirliti sveitarfélagsins hvað varðar bókunaraðgang í fjárhagsbókhaldi og aðgang að bankareikningi í eigu sveitarfélagsins. Það er talið auka hættu á villum og misferlum og veldur aukinni vinnu við afstemmingar og utanumhald bankareikninga. Slíkt dregur úr rekstraröryggi og getur haft áhrif á traust íbúa á fjármálastjórn. Þessa veikleika höfum við í VG og óháðum orðið vör við þar sem rúmt ár er liðið frá fyrirspurn okkar um hvaða verktakar hafa fengið verk frá sveitarfélaginu án útboðs en engin svör höfum við fengið núna ári síðar. Strandi það á bókunum í kerfinu er greinilegt að það þarfnast úrbóta svo úrvinnsla upplýsinga og gagnsæi sé ásættanlegt. Við teljum því eins og KPMG að nauðsynlegt að gripið verði tafarlaust til úrbóta og farið í markvissa greiningu á verkferlum, ábyrgð og gæðakerfum.
Heildarfjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum námu rúmlega 1,2 milljörðum króna, sem er umtalsverð fjárhæð. Mikilvægt er að fjárfestingar séu byggðar á raunverulegum samfélagslegum þörfum og framtíðarsýn og má þar nefna að klára Árskóla eins og lengi hefur staðið til sem og að reisa íþróttahús á Hofsósi svo eitthvað gamalt en þarft sé nefnt.
Skuldir og skuldbindingar sveitarfélagsins nema samtals yfir 10 milljörðum króna, þar af eru langtímaskuldir um 6,4 milljarðar. Þó staðan sé stöðug eins og er þarf að gæta varúðar í framtíðarákvörðunum, sér í lagi með hliðsjón af mögulegum vaxtahækkunum og ytri efnahagsáföllum.
Við teljum að alltaf þurfi forgangsröðun innan rekstrar vera með tilliti til velferðar barna, aldraðra og tekjulágra. Mikilvægt er að byggja upp félagslega innviði með markvissum hætti og tryggja að lögbundin þjónusta sé uppfyllt og má þar nefna matarþjónustu við eldri borgara, sem er fagnaðarefni að sé farin af stað en betur má ef duga skal. Í lögum um Félagsþjónustu, 40.grein kemur skýrt fram að að Sveitarstjórn eigi að sjá um að félagsþjónusta aldraðra sé fyrir hendi í sveitarfélaginu eftir þörfum, t.d. heimsending matar. Sem og er nauðsynlegt að halda áfram að sækja réttlæti í kostnaði sem ætti ekki að tilheyra sveitarfélaginu heldur Ríkinu eins og sveitarstjóri fór yfir en um það höfum við sveitarstjórnarfulltrúar verið sameinuð um að gera hingað til og erum það örugglega áfram.
Við þökkum fulltrúum, sveitarstjóra og starfsfólki fyrir góða vinnu.
Álfhildur Leifsdóttir, Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir VG og óháð
Sveinn Þ Finster Úlfarsson tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun:
Ársreikningur fyrir árið 2024 skilar A hluti 215 milljóna króna hagnaði, því ber að fagna og er það mikill viðsnúningar milli ára.
Það kemur skýrt fram í ársreikningnum að verðbólga er á niðurleið. Verðbætur vegna lána við lánastofnanir fóru úr 492 milljónum króna Í 302 milljónir króna. Eins fóru fjármagnsgjöld úr 669 milljónum í 516 milljónir í A og B hluta.Teljum við því nauðsynlegt að missa ekki sjónar af uppbyggingu og viðhaldi grunnstoða samfélagsins og bíða með aðrar fjárfestingar. Enn og aftur sést það skýrt að það borgar sig að halda skuldum eins lágum hægt er.
Mikilvægt er að passa að fjárfestingar fari ekki fram úr hófi, forgangsröðun fjárfestinga sé skynsöm og snúist um uppbyggingu grunnstoða samfélagsins og þar að leiðandi ýti undir fjölgun íbúa sveitarfélagsins. Þar sem útsvar sveitarfélagsins er um 42 % af tekjum A-hluta og skiptir hver einstaklingur sem hér býr máli. Það er mikilvægt að grunnstoðir samfélagsins, leikskóla, grunnskólar og íþróttaaðstaða séu til staðar og geti tekið á móti þeim sem vilja setjast hér að og sinnt vinnu í öflugu atvinnulífi sem Skagafjörður hefur uppá að bjóða.
Að lokum viljum við þakka starfsfólki sveitarfélagsins fyrir sitt vinnuframlag.
Fulltrúar Byggðalistans Jóhanna Ey Harðardóttir og Sveinn Þ. Finster Úlfarsson.
Einar E Einarsson, með leyfi varaforseta, kvaddi sér hljóðs, þá Gísli Sigurðsson og lagði fram eftirfarandi bókun:
Ársreikningur Skagafjarðar fyrir árið 2024 hefur nú verið kynntur og liggur fyrir sveitarstjórn til samþykktar.
Afar ánægjulegt er að leggja fram ársreikning sem sýnir jákvæða rekstrarniðurstöðu fyrir A- og B-hluta sveitarsjóðs upp á 480 milljónir króna og að rekstrarniðurstaða A-hluta sveitarsjóðs er sömuleiðis jákvæð upp á 215 milljónir króna. Rekstrarafgangur fyrir A- og B-hluta sveitarfélagsins fyrir afskriftir og fjármagnsliði er 1.364 milljónir króna.
Handbært fé A- og B-hluta var í árslok 320 milljónir króna. Veltufé frá rekstri A- og B-hluta nam 1.266 milljónum króna en nam 1.226 milljónum króna árið 2023, þar af er veltufé frá rekstri A- hluta 753 milljónir króna en nam 948 milljón króna árið 2023. Veltufé frá rekstri samstæðunnar er nú 13,3 % í hlutfalli við rekstrartekjur og hefur ósjaldan verið betra.
Skuldahlutfall samstæðu A- og B-hluta er 108% en var árið 2023 114%, án þess að dregið sé frá hluti af lífeyrisskuldbindingum sem og tekjur og skuldir veitna líkt og heimilt er. Í 64. gr. sveitarstjórnarlaga er kveðið á um að skuldahlutfall megi ekki vera yfir 150% af reglulegum tekjum, en ef dregið er frá það sem heimilt er samkvæmt reglugerðum, er skuldaviðmið samstæðunnar nú 86% sem er langt undir þeim mörkum sem lögin setja sveitarfélögum, og fer ört lækkandi. Skuldaviðmið sveitarfélagsins fyrir árið 2022 var þannig 91% og árið 2023 93%.
Miðað hefur verið við í fjárhagsáætlunum síðustu ára að ný lántaka sé ekki umfram það sem greitt er niður af lánum. Ný lántaka langtímalána árið 2024 nam um 328 milljónum króna en afborganir langtímalána voru 664 milljónir króna.
Fjárfestingar voru miklar hjá sveitarfélaginu á síðasta ári og námu fjárfestingarhreyfingar samstæðunnar 1.139 milljónum króna nettó og fjárfestingar í varanlegum rekstarfjármunum námu 1.268 milljónum króna. Til að setja skuldastöðu sveitarfélagsins í betra ljós og samhengi má benda á að það tæki sveitarfélagið 5 ár að greiða niður allar skuldir sveitarfélagsins ef ekki yrði framkvæmt á sama tíma. Á árunum eftir hrun hafði það tekið um eða yfir 30 ár að gera sveitarfélagið skuldlaust. Ljóst er að mikill árangur hefur náðst.
Eignir samstæðu Sveitarfélagsins Skagafjarðar námu um síðast liðin áramót tæpum 15,5 milljörðum króna en voru í árslok 2023 rúmir 14,5 milljarðar króna.
Mikilvægt er að halda áfram uppbyggingu innviða í samfélaginu í þeirri vegferð að gera samfélagið okkar í Skagafirði enn sterkara sem og að auka samkeppnishæfni þess. Rekstur sveitarsjóðs er í góðu jafnvægi og batnar frá síðasta ári sem er jákvætt og má sama segja um einstaka málaflokka hjá sveitarfélaginu en rekstur þeirra var heilt yfir á áætlun sem er gleðilegt og ber vott um ábyrga fjármálastjórn og stöðugleika í rekstri.
Fyrir það ber að þakka þeim fjölmörgu starfsmönnum sveitarfélagsins sem þar lögðu hönd á plóg til að svo mætti verða. Útkoma ársins er ánægjuleg og henni ber að fagna og er ein sú besta sem hefur verið frá stofnun sveitarfélagsins.
Sveitastjóra og fjármálastjóra þökkum við sérstaklega þeirra vinnu sem og fulltrúum minnihlutans. Samstarfið hefur verið gott og öll erum við að róa í sömu átt að gera Skagafjörð að enn þá betra samfélagi.
Mikill árangur hefur náðst á undanförnum árum í rekstri sveitarfélagsins sem og stöðugleiki í rekstri. Þó er öllum ljóst að rekstur ársins 2025 verður krefjandi verkefni fyrir kjörna fulltrúa sem og starfsmenn sveitarfélagsins.
Stöðugleiki í rekstri er undirstaðan fyrir áframhaldandi uppbyggingu samfélagsins. Það er verkefni okkar, kjörinna fulltrúa og starfsmanna sveitarfélagsins að viðhalda þeim stöðugleika og sækja fram fyrir Skagafjörð.
Gísli Sigurðsson
Sólborg Borgarsdóttir
Einar E Einarsson
Hrund Pétursdóttir
Hrefna Jóhannesdóttir
Ársreikningur 2024 borinn upp til afgreiðslu og samþykktur með níu atkvæðum.
41.Fundagerðir Samband íslenskra sveitarfélaga 2025
Málsnúmer 2501003Vakta málsnúmer
42.Fundagerðir Heilbrigðiseftirlit Nl. vestra 2025
Málsnúmer 2504043Vakta málsnúmer
43.Fundagerðir SSNV 2025
Málsnúmer 2501006Vakta málsnúmer
Fundi slitið - kl. 18:00.