Byggðarráð Skagafjarðar
Dagskrá
1.Háholt
Málsnúmer 2502052Vakta málsnúmer
2.Afskriftabeiðnir 2025
Málsnúmer 2504059Vakta málsnúmer
Lögð fram afskriftarbeiðni frá sýslumannsembættinu á Norðurlandi vestra dagsett 7. apríl 2025. Í beiðninni er óskað eftir afskrift á þing- og sveitarsjóðsgjöldum að upphæð 19.831 krónu auk 12.155 króna í dráttarvexti. Samtals er það afskrift að upphæð 31.986 krónum með dráttarvöxtum.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að afskrifa framangreind gjöld.

3.Menningarhúsið Miðgarður - Umsagnarbeiðni vegna rekstrarleyfis
Málsnúmer 2501012Vakta málsnúmer
Lagður fram tölvupóstur frá sýslumannsembættinu á Norðurlandi vestra, dagsettur 11. apríl 2025 þar sem óskað er umsagnar um umsókn Snorra Snorrasonar, kt. 280470-3179 fyrir hönd fyrirtækisins Tenor slf., kt. 650111-0520 um leyfi til að reka gististað í flokki III - E Fjallaskáli í Menningarhúsinu Miðgarði, 560 Varmahlíð, fasteignanúmer F2140833.
Byggðarráð leggst gegn umræddri leyfisveitingu með hliðsjón af fjölda gesta sem sótt er um leyfi fyrir ásamt flokkun gististaðar.

4.Umsagnarbeiðni; Verndar- og orkunýtingaráætlun (bætt málsmeðferð og aukin skilvirkni)
Málsnúmer 2504061Vakta málsnúmer
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 268. mál - Verndar- og orkunýtingaráætlun (bætt málsmeðferð og aukin skilvirkni).
Frestur til að senda inn umsögn er til og með 23. apríl nk.
Byggðarráð fagnar framkomnu frumvarpi og markmiði þess um að gera ferli rammaáætlunar skilvirkara og með skilgreindum tímafrestum vegna ýmissa þátta við meðferð mála í áætluninni, án þess að dregið sé úr faglegum kröfum. Nauðsynlegt er að ráðast í aukna orkuöflun þar sem það á við til að styðja við orkuöryggi, orkuskipti og verðmætasköpun um land allt. Brýnt er í ljósi óvissu sem uppi er vegna áhrifa jarðhræringa á virkjanir og virkjanakosti og vegna orkuöryggis þjóðarinnar að litið sé til hagkvæmra virkjanakosta utan eldvirkra svæða.
Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir fyrir hönd VG og óháðra óskar bókað:
"VG og óháð telja mikilvægt að lög um verndar- og orkunýtingaráætlun standi vörð um náttúru Íslands og tryggi að ákvarðanir um orkuvinnslu byggi á heildstæðu og faglegu mati á áhrifum á náttúru, menningarminjar og samfélag. Áhersla á skilvirkni í stjórnsýslu má aldrei ganga á kostnað náttúruverndar eða draga úr vönduðum ferlum.
Frumvarpið felur í sér að ráðherra geti veitt undanþágu til matsskyldra orkurannsókna á virkjunarhugmyndum í biðflokki. VG og óháð telja slíka heimild varhugaverða þar sem hún getur grafið undan meginmarkmiðum verndar- og orkunýtingaráætlunar. Slíkar undanþágur opna á framkvæmdaforsendur áður en endanlegt faglegt mat og pólitísk afstaða hafa verið tekin. Það getur leitt til óafturkræfrar röskunar á náttúru áður en ljóst er hvort svæðið hljóti samþykki til nýtingar.
Það er réttmæt krafa að ákvarðanataka sé skilvirk, en frumvarpið leggur ríka áherslu á tímafresti og hraða sem gætu haft áhrif á gæði og vandaða málsmeðferð. VG og óháð minna á að tafir í málsmeðferð rammaáætlunar hafa ítrekað stafað af stjórnmálalegum ákvörðunum eða tregðu Alþingis til að samþykkja tillögur, en ekki af faglegri vinnu verkefnisstjórnar. Það er því misvísandi að lögð sé áhersla á að hraða ferlinu án þess að tryggja að gæði og gagnsæi haldist."

5.Umsagnarbeiðni; Stefnur- og aðgerðaáætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgöngu og byggðamála (stefnumörkun)
Málsnúmer 2504106Vakta málsnúmer
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 271. mál - Stefnur og aðgerðaáætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgöngu og byggðamála (stefnumörkun).
Frestur til að senda inn umsögn er til og með 25. apríl nk.
Byggðarráð Skagafjarðar tekur undir umsögn Byggðastofnunar um að gjalda varhug við að leggja af sérstaka stefnu í byggðamálum sem Alþingi hefur falið ríkisstjórninni að vinna að. Byggðaáætlun er mikilvægt tæki til að vinna að því að innviðir og þjónusta mæti þörfum samfélaga og leitast við að tryggja sjálfbærar byggðir um land allt. Byggðaáætlun byggist á heildstæðri stefnumörkun ráðherra og samhæfingu og samspili við aðrar áætlanir ríkisins. Verklag við gerð byggðaáætlunar hefur reynst vel og því full ástæða til að byggja áframhaldandi þróun á því góða verklagi í stað þess að Alþingi Íslendinga veiki eða leggi sérstaka stefnu í byggðamálum af. Það yrðu dapurleg skilaboð frá þjóðþinginu til samfélaga á landsbyggðinni.

6.Ábendingar 2025
Málsnúmer 2501002Vakta málsnúmer
Lagt fram til kynningar yfirlit yfir ábendingar sem hafa borist í gegnum ábendingagátt sveitarfélagsins sl. mánuði og viðbrögð við þeim.
7.Blöndulína 3 - Samkomulag um endurgjald fyrir landnot
Málsnúmer 2504057Vakta málsnúmer
Lagt fram til kynningar bréf frá Landsneti, dagsett 7. apríl 2025 vegna Blöndulínu 3. Bréfið er sent til allra landeigenda með upplýsingar um hækkun grunnverðs landbóta fyrir hvern hektara.
8.Ársfundur - Náttúruhamfaratrygging Íslands
Málsnúmer 2504093Vakta málsnúmer
Lagt fram boð á ársfund Náttúruhamfaratryggingar Íslands sem haldinn verður á Grand hótel fimmtudaginn 22. maí nk.
Fundi slitið - kl. 12:52.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að auglýsa Háholt til sölu á ný.