Menningarhúsið Miðgarður - Umsagnarbeiðni vegna rekstrarleyfis
Málsnúmer 2501012
Vakta málsnúmerAfgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 55. fundur - 17.01.2025
Lagður fram tölvupóstur , dagsettur 27. desember 2024 frá sýslumannsembættinu á Norðurlandi vestra úr máli 2024-082106. Með vísan til 10. gr. laga nr. 85/2007 og 26. gr. reglugerðar. nr. 1277/2016 þar sem óskað er umsagnar byggingarfulltrúa varðandi umsókn Snorra Snorrasonar f.h. Tenors slf., kt. 650111-0520 um leyfi til að reka veitingaleyfi í flokki III, samkomusalir í Menningarhúsinu Miðgarði, Varmahlíð, fasteignanúmer F2140833. Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við umsóknina.
Byggðarráð Skagafjarðar - 142. fundur - 16.04.2025
Lagður fram tölvupóstur frá sýslumannsembættinu á Norðurlandi vestra, dagsettur 11. apríl 2025 þar sem óskað er umsagnar um umsókn Snorra Snorrasonar, kt. 280470-3179 fyrir hönd fyrirtækisins Tenor slf., kt. 650111-0520 um leyfi til að reka gististað í flokki III - E Fjallaskáli í Menningarhúsinu Miðgarði, 560 Varmahlíð, fasteignanúmer F2140833.
Byggðarráð leggst gegn umræddri leyfisveitingu með hliðsjón af fjölda gesta sem sótt er um leyfi fyrir ásamt flokkun gististaðar.
Byggðarráð leggst gegn umræddri leyfisveitingu með hliðsjón af fjölda gesta sem sótt er um leyfi fyrir ásamt flokkun gististaðar.
Byggðarráð Skagafjarðar - 144. fundur - 30.04.2025
Sólborg Sigurrós Borgarsdóttir vék af fundi við afgreiðslu þessa máls.
Lagður fram tölvupóstur frá sýslumannsembættinu á Norðurlandi vestra, dagsettur 23. apríl 2025 þar sem óskað er umsagnar um umsókn Snorra Snorrasonar, kt. 280470-3179 fyrir hönd fyrirtækisins Tenor slf., kt. 650111-0520 um leyfi til að reka gististað í flokki III - E Gistiskáli í Menningarhúsinu Miðgarði, 560 Varmahlíð, fasteignanúmer F2140833.
Byggðarráð gerir ekki athugasemd við umrædda leyfisveitingu að fenginni jákvæðri umsögn annarra umsagnarskyldra aðila.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 62. fundur - 05.05.2025
Lagður fram tölvupóstur , dagsettur 23. apríl 2025 frá sýslumannsembættinu á Norðurlandi vestra úr máli 2025-031879. Með vísan til 10. gr. laga nr. 85/2007 og 26. gr. reglugerðar. nr. 1277/2016 þar sem óskað er umsagnar byggingarfulltrúa varðandi umsókn Snorra Snorrasonar f.h. Tenors slf., kt. 650111-0520, um leyfi til að reka gististað í flokki III - D Gistiskáli í Menningarhúsinu Miðgarði, Varmahlíð, fasteignanúmer F2140833. Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við umsóknina.
Byggðarráð gerir ekki athugasemd við umsóknina.