Fara í efni

Byggðarráð Skagafjarðar

128. fundur 08. janúar 2025 kl. 12:00 - 13:45 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Gísli Sigurðsson formaður
  • Einar Eðvald Einarsson varaform.
  • Jóhanna Ey Harðardóttir aðalm.
  • Álfhildur Leifsdóttir áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri
  • Baldur Hrafn Björnsson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Fundargerð ritaði: Baldur Hrafn Björnsson Sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá
Í upphafi fundar fór formaður þess á leit að mál 2501053 - Forkaupsréttur sveitarfélags verði tekið á dagskrá fundarins með afbrigðum. Samþykkt samhljóða.

Álfhildur Leifsdóttir og Baldur Hrafn Björnsson sátu fundin í gegnum fjarfundarbúnað.

1.Lóðarleigusamningar á Nöfum

Málsnúmer 2308167Vakta málsnúmer

Undir þessum lið sat Arnór Hafstað lögfræðingur með fjarfundarbúnaði.

Arnór lagði fram drög að endurskoðuðum lóðarleigusamningum við leigutaka á ræktunarlóðum á Nöfunum. Fjöldi lóðaleigusamninga rann út núna síðastliðin áramót og vilji sveitarfélagsins er að kanna möguleika til þess að gera nýja samninga.

Byggðarráð samykkir samhljóða að senda bréf með áorðnum breytingum til lóðarhafa á Nöfum til að upplýsa þá um stöðu málsins.

2.Lántaka langtímalána 2025

Málsnúmer 2501022Vakta málsnúmer

Byggðarráð Skagafjarðar samþykkir samhljóða að beina því til sveitarstjórnar að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga ohf. allt að fjárhæð 550 milljónir króna. Til tryggingar láninu standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Er lánið tekið til framkvæmda eignasjóðs og B-hluta stofnana og vegna endurfjármögnunar afborgana eldri lána hjá Lánasjóðinum, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga ohf. nr. 150/2006. Jafnframt er Sigfúsi Inga Sigfússyni, kt. 031175-5349, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. sveitarfélagsins Skagafjarðar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga ohf. sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.

3.Viðauki 1 við fjárhagsáætlun 2025

Málsnúmer 2501023Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni um viðauka 1 við fjárhagsáætlun ársins 2025.

Í viðaukanum er óskað eftir auknu fjármagni vegna:
-fjölgunar barna í frístund í Varmahlíðarskóla 0,4 stöðugildi til ársloka 2025, 3,6 m.kr
-eins stöðugildis stuðningsfulltrúa í leikskólanum Ársölum út árið 2025 10 m.kr.
-eins stöðugildis stuðningsfulltrúa í Árskóla til loka skólaársins, 3,8 m.kr.
-fjölgunar ferða frístundastrætó, 1,5 m.kr.

Samtals útgjaldaaukning um 18,8 m.kr. Útgjaldaaukningu verði mætt með lækkun handbærs fjár.

Byggðarráð samþykkir samhljóða framlagðan viðauka og vísar til afgreiðslu sveitarstjórnar.

4.Forkaupsréttur sveitarfélags

Málsnúmer 2501053Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 6. janúar 2024 frá Kristni Kristóferssyni fjármálastjóra FISK Seafood þar sem óskað er upplýsinga um hvort sveitarfélagið hyggist nýta sér forkaupsrétt að Hafdísi SK-4 sknr 2323.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að nýta ekki forkaupsrétt sveitarfélagsins.

5.Ársfundur Brákar íbúðafélags hses 2025

Málsnúmer 2412171Vakta málsnúmer

Lagt fram fundarboð þar sem stjórn Brákar íbúðafélags hses. boðar til ársfundar sem haldinn verður miðvikudaginn 15. janúar 2025 kl. 13:00. Fundurinn verður rafrænn á Teams.

Í samræmi við 11. gr. samþykkta Brákar íbúðafélags hses. eru stofnaðilar og fulltrúaráð sérstaklega boðaðir til fundarins en skal hann opinn öllum. Stofnaðilar hafa einir atkvæðisrétt á fundinum en stjórnarmenn, stofnaðilar og fulltrúar í fulltrúaráði eru einir bærir til að leggja til breytingar á samþykktum.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að fara með atkvæðisrétt sveitarfélagsins á fundinum.

6.Frístundaakstur

Málsnúmer 2412001Vakta málsnúmer

Máli vísað frá 29. fundi félagsmála- og tómstundanefndar þann 17. desember 2024, þannig bókað:
"Lagt fram minnisblað um nýtingu viðbótar frístundaaksturs á þriðjudögum, sem samþykktur var til prufu fram að áramótum á 27. fundi nefndarinnar þann 14. október síðastliðinn. Nefndin fagnar frumkvæði íþróttafélaganna að koma að máli við nefndina og samþykkir samhljóða framlengingu á núverandi fyrirkomulagi, þ.e. akstur aðra leið að loknum skóladegi á þriðjudögum frá Hofsósi og Varmahlíð, á æfingar á Sauðárkróki, til loka skólaársins 2024-2025. Nýting og fyrirkomulag verður skoðað með skólum, íþróttafélögum og forráðamönnum að nýju þegar líða fer að vori. Nefndin vísar málinu til byggðarráðs og óskar eftir því að verkefnið fái fjármögnun með viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2025."

Byggðarráð skorar á félagsmála- og tómstundanefnd að flýta skoðun á nýtingu og fyrirkomulagi þannig að þeirri vinnu verði lokið fyrir miðjan febrúar.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að veita verkefninu fjármögnun með framlagðri beiðni um viðauka 1 við fjárhagsáætlun ársins 2025.

7.Menningarhúsið Miðgarður - Umsagnarbeiðni vegna rekstrarleyfis

Málsnúmer 2501012Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur frá sýslumannsembættinu á Norðurlandi vestra, dagsettur 27. desember 2024, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Snorra Snorrasonar, kt. 280470-3179 fyrir hönd fyrirtækisins Tenor slf., kt. 650111-0520 um leyfi til að reka veitingaleyfi í flokki III, samkomusalir, í Menningarhúsinu Miðgarði 560 Varmahlíð, fstnr. 214-0833.

Byggðarráð gerir ekki athugasemd við umsóknina.

8.Samráð; Skýrsla starfshóps um endurskoðun á lögum um rammaáætlun

Málsnúmer 2412117Vakta málsnúmer

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 235/2024, "Skýrsla starfshóps um endurskoðun á lögum um rammaáætlun".

Umsagnarfrestur er til og með 01.02.2025.

9.Samráð; Verum hagsýn í rekstri ríkisins

Málsnúmer 2501025Vakta málsnúmer

Forsætisráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 1/2025, "Verum hagsýn í rekstri ríkisins".

Umsagnarfrestur er til og með 23.01.2025.

Fundi slitið - kl. 13:45.