Byggðarráð Skagafjarðar
Dagskrá
1.Skógargata 1 og Kaupvangstorg 1
Málsnúmer 2505002Vakta málsnúmer
2.Skagafjörður - Rammaáætlun 2026
Málsnúmer 2505014Vakta málsnúmer
Á síðasta ári var rammaáætlun vegna fjárhagsáætlunar 2025 lögð fram snemma sumars. Var það liður í að bæta áætlanagerð sveitarfélagsins og þykir það vinnulag hafa gefist vel. Stefnt er að því að halda áfram uppteknum hætti. Af þessum orsökum voru teknar umræður um forsendur rammaáætlunar 2026.
Umræður teknar um forsendur rammaáætlunar 2026. Tillaga er uppi um að miða við forsendur þjóðhagsspár Hagstofu Íslands frá mars síðastliðnum um 2,7% hækkun verðlags á rekstrarliðum, launaliður tekur mið af kjarasamningsbundnum hækkunum. Grunnur rammaáætlunar verður samþykkt fjárhagsáætlun Skagafjarðar fyrir árið 2025 með þeim tveimur viðaukum sem hafa verið samþykktir. Byggðarráð samþykkir framlagða tillögu samhljóða.

3.Erindi frá Rannsóknasetri HÍ á Norðurlandi vestra
Málsnúmer 2409300Vakta málsnúmer
Málið var áður á dagskrá 115. fundar byggðarráðs þann 2. október 2024. Þá hafði byggðarráði borist erindi þar sem rannsóknarsetrið hafði farið þess á leit við byggðarráð að gerður yrði samstarfssamningur. Byggðarráð tók jákvætt í erindið og vísaði til fjárhagsáætlunargerðar.
Rannsóknarsetur HÍ á Norðurlandi vestra hefur ítrekað erindið og óskað eftir að það verði tekið fyrir að nýju.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að gera samstarfssamning til eins árs við Rannsóknarsetur HÍ á Norðurlandi vestra sem felur í sér framlag að upphæð 200.000 krónur. Styrkurinn verður tekinn af lið 21890.

4.Umsagnarbeiðni 270. mál - Jöfnunarsjóður sveitarfélaga
Málsnúmer 2504206Vakta málsnúmer
Lagt fram til umsagnar frumvarp til laga um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, 270. mál, frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis. Umsagnarfrestur er til 13. maí nk.
Byggðarráð Skagafjarðar fagnar tillögum að breytingum á regluverki Jöfnunarsjóðs sem miða að því að bæta gæði jöfnunar og einfalda útreikninga og skipulag sjóðsins. Mikilvægt er að Jöfnunarsjóður sinni með raunverulegum hætti því mikilvæga hlutverki að jafna mismunandi útgjaldaþörf og skattekjur sveitarfélaga með framlögum úr sjóðnum en aðstæður sveitarfélaga landsins eru afar ólíkar, t.d. hvað varðar landstærð, fjölda þéttbýliskjarna, tekjugrundvöll o.fl. Þannig er mikilvægt að jöfnunarkerfið styðji við bakið á meðalstórum sveitarfélögum og þeim sveitarfélögum sem hafa fleiri en einn þéttbýliskjarna og flóknar útgjaldaþarfir. Líklegt er að með auknum sameiningum sveitarfélaga fjölgi fjölkjarna sveitarfélögum sem kljást við sambærilegar áskoranir varðandi þróun þjónustu til íbúa. Byggðarráð leggur ríka áherslu á nauðsyn þess að hafa skýrt og skilvirkt regluverk í kringum jafn mikilvægt verkfæri og Jöfnunarsjóð sveitarfélaga.
Með hliðsjón af nýju framlagi vegna höfuðstaðaálags til sveitarfélaga með borgarvægi, vill byggðarráð Skagafjarðar minna á að nokkur sveitarfélög á landsbyggðinni eru í dag að veita mikla og fjölþætta félagslega þjónustu sem einnig mætti taka tillit til. Rökstyðja þarf betur hverjar þær sérstöku aðstæður eru hjá Reykjavíkurborg og Akureyrarbæ sem kalla á sérstakt framlag umfram það sem ætti að veita til annarra sveitarfélaga vítt og breytt um landið. Einnig kallar álagsprósentan á sérstakan rökstuðning.

5.Norðurá bs. - ársreikningur 2024
Málsnúmer 2504163Vakta málsnúmer
Lagður fram til kynningar ársreikningur Norðurár bs. fyrir árið 2024.
Fundi slitið - kl. 13:30.
Knútur óskaði eftir fundi með byggðarráði vegna Skógargötu 1 og Kaupvangstorgs 1 varðandi frágang á lóðum og bílastæðum samkvæmt nýju skipulagi með tölvupósti dagsettum 30. apríl 2025. Byggðarráð varð við fundarbeiðninni og var málið til umræðu undir þessum dagskrárlið.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að ráðast í hönnun götu á milli Skógargötu og Aðalgötu samkvæmt nýsamþykktu deiliskipulagi fyrir reitinn.