Fara í efni

Skógargata 1 og Kaupvangstorg 1

Málsnúmer 2505002

Vakta málsnúmer

Byggðarráð Skagafjarðar - 145. fundur - 07.05.2025

Knútur Aadnegard, eigandi Skógargötu 1, ásamt Thelmu Knútsdóttur sátu fundinn undir þessum lið.

Knútur óskaði eftir fundi með byggðarráði vegna Skógargötu 1 og Kaupvangstorgs 1 varðandi frágang á lóðum og bílastæðum samkvæmt nýju skipulagi með tölvupósti dagsettum 30. apríl 2025. Byggðarráð varð við fundarbeiðninni og var málið til umræðu undir þessum dagskrárlið.

Byggðarráð samþykkir samhljóða að ráðast í hönnun götu á milli Skógargötu og Aðalgötu samkvæmt nýsamþykktu deiliskipulagi fyrir reitinn.