Skagafjörður - Rammaáætlun 2026
Málsnúmer 2505014
Vakta málsnúmerByggðarráð Skagafjarðar - 148. fundur - 27.05.2025
Lögð fram tillaga að rammaáætlun ársins 2026 ásamt forsendum. Rammaáætlun ársins 2026 byggir á samþykktri fjárhagsáætlun 2025 með viðaukum. Gert er ráð fyrir 2,7% hækkun verðlags í takti við þjóðhagsspá Hagstofunnar.
Byggðarráð samþykkir samhljóða rammaáætlun ársins 2026 og vísar henni til umfjöllunar og úrvinnslu í nefndum.
Byggðarráð samþykkir samhljóða rammaáætlun ársins 2026 og vísar henni til umfjöllunar og úrvinnslu í nefndum.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd - 34. fundur - 05.06.2025
Umræður um rammaáætlun fyrir árið 2026.
Nefndin samþykkir samhljóða að halda umræðu áfram á næsta fundi.
Nefndin samþykkir samhljóða að halda umræðu áfram á næsta fundi.
Landbúnaðar- og innviðanefnd - 28. fundur - 12.06.2025
Fjárhagsrammi fyrir rekstrarárið 2026 ásamt forsendum lagður fram til kynningar.
Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir samhljóða að fela Sviðsstjóra Veitu- og framkvæmdasviðs að boða forstöðumenn deilda sem heyra undir nefndina á fund nefndarinnar til að fara yfir rekstur sinnar deildar. Áætlað er að þeirri vinnu ljúki í lok ágúst.

Umræður teknar um forsendur rammaáætlunar 2026. Tillaga er uppi um að miða við forsendur þjóðhagsspár Hagstofu Íslands frá mars síðastliðnum um 2,7% hækkun verðlags á rekstrarliðum, launaliður tekur mið af kjarasamningsbundnum hækkunum. Grunnur rammaáætlunar verður samþykkt fjárhagsáætlun Skagafjarðar fyrir árið 2025 með þeim tveimur viðaukum sem hafa verið samþykktir. Byggðarráð samþykkir framlagða tillögu samhljóða.