Fara í efni

Skipulagsnefnd

73. fundur 09. maí 2025 kl. 13:00 - 14:00 með fjarfundabúnaði
Nefndarmenn
  • Sigríður Magnúsdóttir formaður
  • Jón Daníel Jónsson varaform.
  • Álfhildur Leifsdóttir aðalm.
  • Eyþór Fannar Sveinsson áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Sæunn Kolbrún Þórólfsdóttir skipulagsfulltrúi
  • Sigurður H Ingvarsson starfsmaður skipulagsfulltrúa
Fundargerð ritaði: Sæunn Kolbrún Þórólfsdóttir skipulagsfulltrúi
Dagskrá

1.Athafnarsvæði - Sauðárkrókur - AT-403 - Deiliskipulag

Málsnúmer 2403135Vakta málsnúmer

Lögð fram deiliskipulagstillaga "Sauðárkrókur Athafnarsvæði AT-403" dags. 06.05.2025, útgáfa 1.0, uppdráttur DS01, greinargerð og jarðvegskönnun.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að auglýsa deiliskipulagstillöguna fyrir "Sauðárkrókur Athafnarsvæði AT-403" í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Gestir

  • Björn Magnús Árnason

2.Mjólkursamlagsreitur breyting á deiliskipulagi - Skagfirðingabraut 51 - Deiliskipulag

Málsnúmer 2404003Vakta málsnúmer

Farið yfir innsendar umsagnir við deiliskipulagsbreytingu fyrir "Mjólkursamlagsreitur Sauðárkróki" sem var í kynningu dagana 05.03.2025- 18.04.2025 í Skipulagsgáttinni mál nr. 280/2025, sjá tengil hér: https://skipulagsgatt.is/issues/2025/271 .
Innsendar umsagnir gefa ekki tilefni til breytinga.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða deiliskipulagsbreytinguna "Mjólkursamlagsreitur Sauðárkróki" og felur skipulagsfulltrúa að senda Skipulagsstofnun deiliskipulagsbreytingartillöguna til yfirferðar í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Gestir

  • Björn Magnús Árnason

3.Borgarteigur 15, L143237 - Deiliskipulag

Málsnúmer 2501198Vakta málsnúmer

Farið yfir innsendar umsagnir við deiliskipulagstillögu fyrir "Borgarteigur 15 Sauðárkróki" sem var í kynningu dagana 05.03.2025- 18.04.2025 í Skipulagsgáttinni mál nr. 280/2025, sjá tengil hér: https://skipulagsgatt.is/issues/2025/280 .

Innsendar umsagnir gefa ekki tilefni til breytinga.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða tillögu að deiliskipulagi "Borgarteigur 15 Sauðárkróki" og felur skipulagsfulltrúa að senda Skipulagsstofnun deiliskipulagstillöguna til yfirferðar í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Gestir

  • Björn Magnús Árnason

4.Brúarland Deildardal - Umsókn um byggingarreit

Málsnúmer 2503333Vakta málsnúmer

Guðmundur Sverrisson f.h. Makíta ehf. óskar eftir nýjum byggingarreitum á Brúarlandi Deildardal L146511.
Reitur A fyrirhugað að reisa ca. 40 m² gróðurhús og reitur B fyrirhugað að reisa ca. 30 m² aðstöðuhús fyrir skórækt.
Reitur A er rétt ofan við gamlar tóftir sem ekki stendur til að hreyfa við.
Sbr. leyfi Minjavarðar Skagafjarðar stendur til að hylja þær með jarðvegi vegna mikillar slysahættu.
Sbr. umsögn Minjastofunar Íslands þar sem m.a. kemur fram að í ljósi þess að byggingareitir eru innan gamla heimatúnsins og heimildir eru um bænhús og beinafundi nærri bænum þá er farið fram á framkvæmdaeftirlit fornleifafræðings þegar grafið verður fyrir lögnum og undirstöðum húsa.

Skipulagsnefnd samþykkir samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að samþykkja umbeðna byggingarreiti.

Fundi slitið - kl. 14:00.