Fara í efni

Félagsmála- og tómstundanefnd - 34

Málsnúmer 2504010F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Skagafjarðar - 38. fundur - 14.05.2025

Fundargerð 34. fundar félagsmála- og tómstundanefndar frá 11. apríl 2025 lögð fram til afgreiðslu á 38. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Einar E. Einarsson forseti kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Félagsmála- og tómstundanefnd - 34 Lagður fram tölvupóstur dags. 9. apríl 2025, frá Ragnhildi Friðriksdóttur f.h. hlaupahópsins 550 Rammvilltar, þar sem óskað er eftir því að þátttakendur í styrktarhlaupi Einstakra barna sem verður haldið þann 1. maí nk. fái gjaldfrjálsan aðgang að hlaupi loknu. Auk þess er óskað eftir því að opnunartími sundlaugarinnar verði lengdur um eina klukkustund þennan dag, eða til kl. 17:00. Nefndin samþykkir samhljóða að hafa gjaldfrjálsan aðgang fyrir þátttakendur hlaupsins og lengir opnunartíma sundlaugarinnar til kl 17:00 þennan sama dag. Bókun fundar Afgreiðsla 34. fundar félagsmála- og tómstundanefndar staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkvæðum.
  • Félagsmála- og tómstundanefnd - 34 Körfuknattleiksdeild Tindastóls óskar eftir endurgjaldslausum aðgangi að íþróttahúsinu á Sauðárkróki vegna páskaballs félagsins þann 19. apríl nk. Nefndin bendir á að umsókn barst of seint miðað við það sem kemur fram í 2. gr. reglna um útleigu íþróttahúsa Skagafjarðar til skemmtanahalds en þar sem þetta raskar ekki hefðbundinni starfsemi íþróttahússins samþykkir nefndin samhljóða að fella niður leigu á íþróttahúsinu vegna þessa og vísar til 4. gr. áðurnefndra reglna í ákvörðun sinni.

    Nefndin áréttar upplýsingar sem eiga að fylgja umsókn skv. 4. gr. reglnanna en þar kemur fram að í erindinu skulu koma fram ástæður umsóknar, hvers vegna annað húsnæði í Skagafirði henti ekki og hvert ágóði af viðburðinum fari, verði einhver.
    Bókun fundar Afgreiðsla 34. fundar félagsmála- og tómstundanefndar staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkvæðum.
  • .3 2504074 Páskamót Molduxa
    Félagsmála- og tómstundanefnd - 34 Íþróttafélagið Molduxar óskar eftir endurgjaldslausum aðgangi að íþróttahúsinu á Sauðárkróki vegna páskamóts félagsins þann 19. apríl nk. Nefndin bendir á að umsókn barst of seint miðað við það sem kemur fram í 2. gr. reglna um útleigu íþróttahúsa Skagafjarðar til skemmtanahalds en þar sem þetta raskar ekki hefðbundinni starfsemi íþróttahússins samþykkir nefndin samhljóða að fella niður leigu á íþróttahúsinu vegna þessa og vísar til 4. gr. áðurnefndra reglna í ákvörðun sinni. Bókun fundar Afgreiðsla 34. fundar félagsmála- og tómstundanefndar staðfest á 38. fundi sveitarstjórnar 14. maí 2025 með níu atkvæðum.