Fara í efni

Landbúnaðar- og innviðanefnd

25. fundur 29. apríl 2025 kl. 09:00 - 10:00 að Borgarteigi 15, Sauðárkróki
Nefndarmenn
  • Einar Eðvald Einarsson formaður
  • Sólborg Sigurrós Borgarsdóttir varaform.
  • Hildur Þóra Magnúsdóttir ritari
  • Sveinn Þ. Finster Úlfarsson áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Kári Gunnarsson umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi
  • Hjörvar Halldórsson sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs
Fundargerð ritaði: Hjörvar Halldórsson sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs
Dagskrá

1.Áætlun refa- og minkaveiði 2025

Málsnúmer 2503346Vakta málsnúmer

Lögð fram endurskoðuð áætlun um refa og minkaveiði í Skagafirði fyrir árið 2025 ásamt yfirliti um veiðar síðustu ára. Landbúnaðar- og innviðanefnd samþykkir endurskoðaða áætlunina með tveimur atkvæðum. Niðurstaðan verður kynnt með veiðimönnum á fundi 30.4.2025.

2.Ráðning refa- og minkaveiðimanns í Hegranesi

Málsnúmer 2502293Vakta málsnúmer

Landbúnaðar og innviðanefnd samþykkir samhljóða að auglýsa eftir nýjum aðilum meðal ráðinna veiðimanna til að bera ábyrgð á refa- og minkaveiði í Hegranesi frá og með 1. júní 2025. Umsóknarfrestur er til og með 12. maí 2025.
Fráfarandi veiðimanni í Hegranesi, Þorsteini Ólafssyni, eru þökkuð vel unnin störf.

Fundi slitið - kl. 10:00.