Aðalheiður Sigurðardóttir ráðin í starf ráðgjafa/tengiliðar hjá fjölskyldusviði
04.07.2024
Starf ráðgjafa/tengiliðar hjá fjölskyldusviði Skagafjarðar var auglýst laust til umsóknar í júní. Aðalheiður Sigurðardóttir hefur verið ráðin í starfið.
Aðalheiður er tengslaráðgjafi og hefur undanfarin ár rekið eigið fyrirtæki sem kallast Ég er Unik. Í gegnum fyrirtækið hefur hún boðið upp á fyrirlestra fyrir foreldra, skólafólk og á ráðstefnum...