Keppni í Útsvarinu er hafin í Ríkissjónvarpinu þennan veturinn en þar keppa 24 sveitarfélög sín á milli í skemmtilegum spurningaleik. Næstkomandi föstudagskvöld er komið að því að Skagfirðingar hefji þátttöku en að þessu sinni mæta þeir vösku liði Árborgar.
Maður er manns gaman - ráðstefna Landssamtaka Þroskahjálpar um félagslega þátttöku fatlaðs fólks.
Miðgarður í Varmahlíð laugardaginn 18. okt kl 9 - 15
Allir velkomnir - ekkert þátttökugjald
Sunnudaginn 23. nóv verður lesið saman úr Sturlungu í Áskaffi í Glaumbæ kl 10:30
Lesin verður Þorgils saga og Hafliða en næsti lestur er 30. nóv.
Allir eru velkomnir og engin þörf er á að hafa lesið Sturlungu.