Fara í efni

Aðalskipulag Skagafjarðar 2009-2014 - Deplar í Fljótum - skipulagslýsing

16.10.2014

Á fundi skipulags- og byggingarnefndar 22. ágúst 2014 var samþykkt að heimila landeigendum að Deplum að vinna deiliskipulag af jörðinni og staðfesti sveitarstjórn samþykkt skipulagsnefndar á fundi sínum 3. september s.l. Fyrir liggur niðurstaða Skipulagsstofnunar um að uppbyggingin að Deplum kalli jafnframt á breytingu á aðalskipulagi. Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir að láta vinna breytingu á aðalskipulagi vegna þessa og stendur sú vinna nú yfir. Unnið hefur verið í samræmi við 30. og 40. grein skipulagslaga, skipulagslýsing vegna breytingar á aðalskipulaginu og vegna gerðar deiliskipulagsins.

Skipulagslýsing