Fara í efni

Fréttir

Rekstraraðili fyrir félagsheimilið Ljósheimar

26.06.2026
Skagafjörður auglýsir eftir umsóknum frá aðilum sem vilja taka að sér rekstu félagsheimilisins Ljósheimar F2139958 allt að 10 ára, með gagnkvæmum uppsagnarákvæðum. Félagsheimilið Ljósheimar er byggt árið 1985 og er 343,4 m². Í húsinu er rúmgóður salur, vel útbúið eldhús, góð salernisaðstaða og herbergi á efri hæð. Félagsheimilið...

Hitaveitutilkynning: Truflanir á vatnsveitu við Víðigrund á Sauðárkróki

25.06.2026
Vakin er athygli á því að truflanir verða á rennsli á heitu- og köldu vatni í dag, fimmtudaginn 25. júní. Unnið er að nauðsynlegum tengingum og ljóst er að skerðingar geta orðið á meðan á framkvæmdum stendur. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

Opnun heitra potta, saunu og eimbaðs í Sundlaug Sauðárkróks

24.06.2026
Sundlaugin verður nú opin samkvæmt hefðbundum opnunartíma, þ.e. frá 7:00-21:00 virka daga og frá kl. 10:00-18:00 um helgar. Sundlaugagestir geta nýtt heitu pottana, sánuna og eimbaðið. Aðrar laugar eru enn lokaðar vegna framkvæmdanna. Framkvæmdum við Sundlaug Sauðárkróks miðar ágætlega, en áfram verður talsverð röskun á sundlaugarsvæðinu...

Sumarhátíð fatlaðs fólks heppnaðist vel á Löngumýri

22.06.2026
Um 50 manns sóttu sumarhátíð fatlaðs fólks 18 ára og eldra á Norðurlandi vestra sem haldin var á Löngumýri í Skagafirði nýverið. Hátíðin var haldin í annað sinn en hún fór fyrst fram 11. júní í fyrra að frumkvæði Ástu Ólafar Jónsdóttur á Sauðárkróki. Markmið hátíðarinnar er að efla samveru og þátttöku fatlaðs fólks á svæðinu og skapa vettvang...

Helgaropnun í Sundlaug Sauðárkróks

19.06.2026
Stefnt er að helgaropnun frá kl. 10:00-18:00. Sundlaugagestir geta nýtt heitu pottana, sánuna og eimbaðið. Framkvæmdum við Sundlaug Sauðárkróks miðar ágætlega, en áfram verður talsverð röskun á opnunartíma þar til verkinu er lokið. Á mánudaginn þarf að loka sundlauginni aftur, en verið er að leggja snjóbræðslu í suður- og vesturbakka eldra...

Elín Dögg ráðin fjármálastjóri Skagafjarðar

19.06.2026
Elín Dögg Väljaots Gunnarsdóttir hefur verið ráðin í stöðu fjármálastjóra Skagafjarðar. Elín Dögg er með BS- og MS-gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum á Akureyri með áherslu á stjórnun og alþjóðlegt rekstrarumhverfi. Hún hefur víðtæka reynslu á sviði rekstrar, fjármála og stjórnunar og hefur meðal annars gegnt stöðu rekstrar- og fjármálastjóra...

Leikhópurinn Lotta sýnir Litaland á Sauðárkróki 22. júní nk.

19.06.2026
Leikhópurinn Lotta sýnir Litaland á Sauðárkróki mánudaginn 22. júní kl 17:00 í íþróttahúsinu. Leikhópurinn Lotta fagnar tuttugu ára afmæli í ár og setur af því tilefni upp söngleikinn Litaland um allt land í sumar! Eins og alltaf býður hópurinn upp á skemmtun fyrir alla fjölskylduna þar sem saman koma söngur, gleði, dans og húmor fyrir unga sem...

Héraðsskjalasafnið lokar vegna sumarleyfa

18.06.2026
Vakin er athygli á því að Héraðsskjalasafn Skagfirðinga verður lokað vikuna 22.-26. júní nk. vegna sumarleyfa starfsmanna. Frá 1. júlí verður opnunartími skjalasafnsins frá kl. 09:00-12:00 og 13:00-15:00, alla virka daga.

Stjórnendur í þjónustu við fatlað og eldra fólk efla samstarf og liðsheild á starfsdegi

18.06.2026
Í síðustu viku komu saman stjórnendur í þjónustu við fatlað fólk og eldra fólk í Skagafirði og Húnavatnssýslum á árlegum starfsdegi. Meginmarkmið dagsins var að efla samstarf, styrkja liðsheild og skapa rými fyrir ígrundun í annasömu starfi. Að þessu sinni var haldið í Húnaþing vestra, nánar tiltekið í Víðidal og hófst starfsdagurinn með útivist...