Fara í efni

Fréttir

Skipulag um viðhald og umhirðu hafið á Hólastað

20.05.2026
Starfsmenn veitu- og framkvæmdasviðs Skagafjarðar hafa hafist handa við að skipuleggja viðhald og umhirðu á Hólastað, þ.e. þeirra svæða sem munu heyra undir sveitarfélagið í kjölfar nýs samkomulags sveitarfélagsins og íslenska ríkisins um innviði og uppbyggingu á svæðinu. Á næstu vikum stendur til að hefja lagfæringar á klæðningu gatna og...

Gjaldfrjálsir matjurtagarðar í boði

20.05.2026
Að venju býður sveitarfélagið gjaldfrjáls garðlönd/kartöflugarða fyrir íbúa Skagafjarðar í sumar. Garðarnir verða staðsettir á þremur stöðum, þ.e. á Sauðárkróki, í Varmahlíð og á Hofsósi. Vakin er athygli á því að notkun eiturefna er ekki leyfð og æskilegt er að velja heilbrigt útsæði í...

Gatnaframkvæmdir: Hliðarstígur á Sauðárkróki verður lokaður 19-20. maí.

19.05.2026
Vakin er athygli á því að Hliðarstígur (Kirkjuklaufin) á Sauðárkróki verður lokaður vegna gatnaframkvæmda í dag, 19. maí og á morgun 20. maí. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

Úrslit sveitarstjórnarkosninga í Skagafirði 2026

19.05.2026
Sveitarstjórnarkosningar fóru fram 16. maí 2026 sl. og voru úrslitin eftirfarandi: B-Listi Framsóknarflokks - 2 fulltrúar - 571 atkvæði. D-Listi Sjálfstæðisflokks - 3 fulltrúar - 767 atkvæði. L-Listi Byggðalistans - 3 fulltrúar - 839 atkvæði. M-Listi Miðflokksins - 1 fulltrúi - 319 atkvæði. Á kjörskrá voru 3294 og greidd atkvæði voru alls...

Opið fyrir tilnefningar til Íslensku menntaverðlaunanna 2026

19.05.2026
Embætti forseta Íslands, mennta- og barnamálaráðuneyti, innviðaráðuneyti, Samtök iðnaðarins, Félag um menntarannsóknir, Grunnur – félag stjórnenda á skrifstofum fræðslumála í sveitarfélögum, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Kennarasamband Íslands, Listaháskóli Íslands, Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, Reykjavíkurborg, Samband íslenskra...

Fundarboð: Sveitarstjórnarfundur, þriðjudaginn 19. maí 2026

17.05.2026
49. fundur sveitarstjórnar verður haldinn að Sæmundargötu 7a, þriðjudaginn 19. maí 2026 og hefst kl. 16:15. Dagskrá:Fundargerð1. 2604018F - Byggðarráð Skagafjarðar - 1911.1 2604050 - Samstarf um uppbyggingu leigumarkaðar í Skagafirði1.2 2604067 - Viðauki 3 við fjárhagsáætlun 20261.3 2604052 - Tillaga um tímabundna lækkun gjaldskráa í A-hluta1.4...

Sveitarstjórnarkosningar 2026: Auglýsing um skipan í kjördeildir

15.05.2026
Við sveitarstjórnarkosningar sem fram fara laugardaginn 16. maí n.k. er skipan í kjördeildir sem hér segir: Kjördeild í Bóknámshúsi FNV: þar kjósa íbúar Sauðárkróks og fyrrum Skarðs-, Rípur- og Skefilsstaðahreppa – kjörfundur hefst kl. 09:00 Kjördeild í Grunnskólanum austan Vatna: þar kjósa íbúar fyrrum Hofs-, Fljóta-, Hóla- og...

Fyrsti fundur samráðshóps um málefni fatlaðs fólks á Norðurlandi vestra 13. maí sl.

15.05.2026
Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks á Norðurlandi vestra fundaði í fyrsta sinn þann 13. maí sl., en þetta ráð hefur það markmið að gæta hagsmuna fólks með fötlun á þessu svæði. Í ráðinu sitja þrír fulltrúar sem kosnir eru af sveitarstjórnum Húnabyggðar, Húnaþings vestra og Skagafjarðar. Það eru síðan hagsmunasamtök fatlaðs fólks sem tilnefna...

Skagafjörður nær samkomulagi við íslenska ríkið um innviði og uppbyggingu á Hólum í Hjaltadal

13.05.2026
Í dag var það mikilvæga framfararskref stigið fyrir Hóla í Hjaltadal að eftir áralangt samtal Skagafjarðar við íslenska ríkið um þéttbýlið á Hólastað hefur Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri undirritað samkomulag við forsætisráðherra og fjármálaráðherra fyrir hönd íslenska ríkisins um að koma innviðum, umhirðu og staðarhaldi svæðisins í það horf...