Fara í efni

Fréttir

Fráveitutilkynning: Aðalgata á Sauðárkróki lokuð

01.06.2026
Vakin er athygli á því vegna bilunar í fráveitu þarf að loka Aðalgötu á Sauðárkróki frá kirkjunni að hraðahindruninni við bakaríið. Lokunin tekur gildi strax og stendur yfir þar til viðgerð er lokið. Vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát og virða merkingar á svæðinu. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

Fundarboð: Sveitarstjórnarfundur, miðvikudaginn 3. júní n.k.

30.05.2026
50. fundur sveitarstjórnar verður haldinn að Sæmundargötu 7a, miðvikudaginn 3. júní 2026 og hefst kl. 16:15 Dagskrá:Almenn mál1. 2605106 - Kjör forseta sveitarstjórnar 20262. 2605107 - Kjör fyrsta varaforseta sveitarstjórnar 20263. 2605108 - Kjör annars varaforseta sveitarstjórnar 2026Fundargerð4. 2605020F - Byggðarráð Skagafjarðar - 1964.1...

Undirritun viljayfirlýsingar um stækkun verknámsaðstöðu Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra

29.05.2026
Ánægjulegt er að greina frá því að í vikunni skrifuðu Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra, Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri Skagafjarðar og Selma Barðdal Reynisdóttir skólameistari Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra undir viljayfirlýsingu um stækkun verknámshúss Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra. Áætlað er að framkvæmdir hefjist næsta...

Byggðalistinn og Sjálfstæðisflokkurinn mynda meirihluta í Skagafirði

29.05.2026
Byggðalistinn og Sjálfstæðisflokkurinn hafa kynnt málefnasamning sinn fyrir kjörtímabilið 2026–2030 með skýra framtíðarsýn um að efla Skagafjörð sem öflugt og aðlaðandi samfélag fyrir íbúa og atvinnulíf. Í málefnasamningnum er áhersla lögð á öflugt atvinnulíf, uppbyggingu innviða, aukna nýsköpun, bætt aðgengi að húsnæði og þjónustu, heilsueflingu,...

Ertu með viðburð á 17. júní?

29.05.2026
Menning og mannlíf
Undirbúningur vegna hátíðarhalda í tilefni 17. júní stendur nú yfir og óskar sveitarfélagið eftir upplýsingum um viðburði eða opnanir víðsvegar úr Skagafirði sem hægt er að setja á dagskrá. Vinsamlegast sendið upplýsingar á mannlif@skagafjordur.is

Sigrún Alda Sighvats – 40 ára starfsafmæli

28.05.2026
Þau merku tímamót áttu sér stað á þriðjudaginn síðasta þegar Sigrún Alda deildarstjóri launadeildar fagnaði 40 ára starfsafmæli hjá sveitarfélaginu. Sigrún hóf störf 26. maí árið 1986 og hefur síðan þá unnið samfleytt í fjóra áratugi í fullu stöðugildi, að undanskilinni einni viku árið 2008 þegar hún fór í veikindaleyfi. Tilviljun ein réði því að...

Safnahús Skagfirðinga lokað vegna jarðarfarar 27. maí

26.05.2026
Vakin er athygli á því að Safnahús Skagfirðinga verður lokað miðvikudaginn 27. maí nk. kl. 13:00–16:00 vegna útfarar. Héraðsskjalasafnið verður því opið frá kl. 09:00 til 12:00 og Héraðsbókasafnið frá kl. 11:00 til 13:00 og 16:00 til 18:00. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

Breytingar á leikskólastarfi frá og með 10. ágúst nk.

26.05.2026
Fræðslunefnd og sveitarstjórn Skagafjarðar hafa samþykkt breytingar á reglum um leikskólastarf í sveitarfélaginu og taka þær gildi frá og með 10. ágúst nk. Breytingarnar koma til vegna vaxandi óánægju á meðal foreldra/forráðamanna og starfsfólks skólans með fyrirkomulag skráningardaga og gjaldskrá. Um er að ræða aðgerðir sem innleiddar voru árið...

Sumarlestur 2026 - skráning er hafin

21.05.2026
Skráning í sumarlestur er hafin og að þessu sinni verður farið í ævintýranlegt ferðalag með Gúnda geithafri. Fyrirkomulaginu er þannig háttað að fyrir hverjar 15 mínútur af lestri þarf að lita leiðina í ævintýrakortinu  í vegabréfinu. Við fjórða hvern lestur eiga börnin að hafa lesið í klukkustund og lenda á stjörnu. Fyrir hverja stjörnu...